Múslímska bræðralagið og vinstrimenn

Múslímska bræðralagið er alþjóðlegt fyrirbæri sem stefnir á múslímavæðingu.

Náttúrulegur bandamaður þeirra eru vinstrimenn.

Hér er áhugavert 15. mín. myndband um starfsemi Bræðralagsins.


Sjónvarp, félagsmiðlar, bölsýni án sannleika

Netflix sýnir heimildaþátt um félagsmiðla, The social dilemma. Helstu viðmælendur eru ungir menn sem tóku þátt í þróun félagsmiðla en óttast afleiðingarnar.

Rökin fyrir slæmum áhrifum félagsmiðla eru, að breyttu breytanda, áþekk gagnrýni á yfirvald sjónvarpsins yfir samfélaginu undir lok síðustu aldar. Tvær kenningar úr þeirri átt, Miðillinn er merkingin eftir Marshall McLuhan og Skemmtun til ólífis eftir Neil Postman, enduróma í gagnrýninni á félagsmiðla.

Þó er einn veigamikill munur á. Sjónvarpsgagnrýnin á síðustu öld ól á þeim ótta að sjónvarpið steypti okkur öll í sama mót. Sjónvarpssannleikurinn myndi kæfa sjálfstæða einstaklinga. Þarna eimdi af hugsun kalda stríðsins um tvískiptingu heimsins, svart eða hvítt, kommúnismi eða kapítalismi. Félagsmiðlar, aftur á móti, eru ekki tvípóla heldur óreiða.

Undir lok þáttarins á Netflix segir aðalheimildarmaðurinn að við þurfum sannleika, einfaldlega til að skilja á milli þess sem er satt og ósanninda. Óreiða félagsmiðla skilar engu nema sífellt fleiri útgáfum af sannleika - sem þýðir, auðvitað, engan sannleika.

Sannleikurinn mun gera yður frjálsa, segir bók bókanna. Hafa skal það sem sannara reynist, skrifaði Ari Þorgilsson á skinnhandrit á 12. öld.

Tæknin kann að þróast en eilífðarspurningarnar fylgja okkur.


Bloggfærslur 20. september 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband