Föstudagur, 11. september 2020
Öfgamúslími krefst hælis á Íslandi
Í frétt Stundarinnar segir um egypskan múslíma sem krefst hælis á Íslandi fyrir sig og fjölskyldu sína:
Hafi hann gegnið úr flokknum og lýst opinberlega yfir stuðningi við Bræðralag múslima.
Bræðralag múslíma eru öfgasamtök sem boða ríki íslams. Í ríki íslam er ekki trúfrelsi, menn eru aflífaðir fyrir að ganga af trúnni; konur eru þrælar karlmanna og kristnir, fái þeir á annað borð að halda lífi, skulu krjúpa fyrir múslímum og borga þeim sérstakan skatt.
Vinstrimenn hér á landi eru áfram um að flytja inn í landið öfgamenn.
En, nei, takk við eigum nóg með innlendar öfgar.
Segja ummæli Áslaugar köld og ónærgætin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Föstudagur, 11. september 2020
Kristni er hefð - spyrjið Þórunni Jónsdóttur
Flestir eru skírðir ómálga til kristni af foreldrum sínum. Fyrirkomulagið er í gildi í þúsund ár, frá fyrstu og einu nafnfrægu fjöldaskírn fullorðinna hér á landi, í Öxará á Þingvöllum árið 1000.
Kennisetning frá blautu barnsbeini fylgir fólki út lífið. Þjóðkirkjan, sem á að heita vörslumaður kristni, sýnir hvorki sjálfri sér nærgætni né landsmönnum, sem komnir eru til vits og ára, virðingu með róttækri endurtúlkun á ímynd Krists.
Ekki það að kristni sé án endurtúlkunar. Á 16. öld skiptu landsmenn um útfærslu ritningarinnar, fóru úr kaþólsku yfir í lútersku, að boði Danakonungs. Umskiptin kostuðu blóðfórnir þar sem keik kaþólsk kona, Þórunn Jónsdóttir, stóð yfir höfuðsvörðum danska yfirvaldsins.
Þegar brotið er í blað hefðar þarf eitthvað að vera í húfi. Þjóðkirkja er býr til framandi útgáfu af Jesúbarninu vill eflaust vel og telur sig í takti við tíðarandann. En sá andi er um þessar mundir giska hjárænulegur. Eins og Kristsgervingar biskupsstofu.
Stundum er best að gera ekki neitt en leyfa hefðinni að lifa. Kristni á Íslandi er yfir þúsund ára. Þjóðkirkjan er ekki hálfdrættingur og er í kaupbæti danskur andskoti.
Munu birta fleiri Kristsgervinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)