Ónýta Evrópa og vonin í Afríku

Evrópa, í merkingunni Evrópusambandiđ, er viđ dauđans dyr segir Macron Frakklandsforseti í opnu bréfi til íbúa álfunnar. Bréfiđ er hvatning til ađ kjósa ,,rétt" til Evrópuţingsins.

Frelsi, vernd og framfarir skulu verđa hornsteinar nýrrar Evrópu, segir Macron, en nefnir í leiđinni manngert veđurfar, sem honum tókst ekki einu sinni ađ selja samlöndum sínum, sbr. mótmćli gulvestunga í vetur.

Vinveittir álitsgjafar, t.d. á Guardian, segja viđbrögđ viđ forsetabréfinu háđsglósur.

Utan Evrópu nefnir Macron eina heimsálfu ađra, Afríku. Hann hvetur til nánari samstarfs, á sviđi efnahagsmála og menntunar.

Stór-Evrópusinnar í Brussel, menn eins og Guy Verhofstadt, gripu tillöguna á lofti og bođa draumsýn um evró-afrískt efnahagsbandalag.

Síđast ţegar Afríka spilađi rullu í evrópskum stjórnum, áratugina fyrir fyrra stríđ, kepptust heimsveldin ađ leggja undir sig álfuna.

Ađ Afríka skuli verđa von um endurnýjun Evrópusambandsins segir mikla sögu um örvćntinguna í Brussel, París og Berlín.


Eitruđ blanda: verkföll, engin lođna og fćrri ferđamenn

Sumariđ verđur sársaukafullt fyrir ţjóđarbúiđ. Lođnan lćtur ekki sjá sig, ţar tapast milljarđar. WOW flytur fćrri ferđamenn til landsins og kannski alls enga. Verkföll sósíalista valda tjóni, bćđi í bráđ og lengd.

Einkaneysla dregst saman, fyrirtćki halda ađ sér höndum í mannaráđningum og tekjur ríkis og sveitarfélaga verđa minni en áćtlađ var.

Sumarkreppan 2019 stafar af samspili náttúrulegra ţátta, heimsku og pólitískra öfga. 


mbl.is Segir Isavia skekkja samkeppni
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 9. mars 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband