Viðreisn afneitar Bandaríkjunum, fylgir X-D?

Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar afneitar samstarfi við Bandaríkin. Þorsteinn Pálsson, einn af stofnendum flokksins, heggur í sama knérunn.

Friðjón almannatengill orkufyrirtækja sem vilja leggja sæstreng er borinn fyrir afneitun sjálfstæðismanna á Bandaríkjunum. Það er hægt að græða meira á Evrópusambandinu.

Beðið er eftir útspili Gamma-strákanna. Styðji þeir nýja utanríkispólitík Sjálfstæðisflokksins er málið í höfn fyrir ESB-sinna.


mbl.is Vill endurskoða samskipti við Bandaríkin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Logi biður Trump um hermenn

Logi formaður Samfylkingar er alfarið á móti því að Trump Bandaríkjaforseti afturkalli hermenn frá Sýrlandi.

Lítið heyrðist í Loga þegar Obama og Clinton sendu hermenn upphaflega til Sýrlands, m.a. til að hrekja forseta landsins, Assad, frá völdum líkt gert var 2003 í Írak með hörmulegum afleiðingum.

Stríðsæsingamaðurinn Logi ætti að hugsa áður en hann talar. Einu sinni hlýtur allt að vera fyrst.


mbl.is „Hryllilegt ef Trump stefnir nú Kúrdum í voða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland - Evrópa: önnur víglína 2019 en fyrir tíu árum

Vinstristjórn Jóhönnu Sig. sótti um aðild að Evrópusambandinu 16. júlí 2009. Næstu árin var víglínan milli þeirra sem vildu ESB-aðild og hinna sem töldu fullvalda Ísland farsældar Frón.

Tíu árum síðar er víglínan önnur. Hún er á milli þeirra sem telja EES-samninginn upphafið og endir að alþjóðasamskiptum Íslands og hinna sem gjalda varhug við ofríki Evrópusambandsins sem notar EES-samninginn að sækja sér valdheimildir á Íslandi, nú síðast í orkupakkamálinu.

Tveir álitsgjafar, Björn Bjarnason, og ritstjóri Fréttablaðsins, báðir hlynntir EES, staðfesta breytta víglínu.

Andstæðingar ESB-aðildar mega vel við una. Það er pólitískt dautt mál að berjast fyrir ESB-aðild Íslands. Orkupakkaumræðan sýndi að þeir sem styðja valdaframsal frá Íslandi til Brussel verða fyrir þungum búsifjum. 

Sjálfstæðisflokkurinn er í pólitískri sjálfheldu. Þessi fyrrum móðurflokkur borgaralegra stjórnmála flýr á vit gelgjulegra heimsendaspádóma í loftslagsmálum og sér það bjargráð að skattleggja ferðir á bíl og með flugi. Allt í nafni framandi hugmyndafræði glópahlýnunar. 

Flokkur sem útvatnar erfðaefni sitt, sjálfstæðið í flokksheitinu, líkt og gerðist í orkupakkamálinu, er kominn á vonarvöl. Sjálfsmynd flokksins er svo löskuð að andstæðingarnir þurfa ekki einu sinni að nefna flokksmyndina á nafn í gagnrýni sinni. Það þarf ekki að miða skeytunum á skotmarkið. Þau hitta sjálfkrafa.

Stjórnmálaflokkar komast í gegnum ólgusjó umræðunnar með kjölfestu. Vanti kjölfestuna verður fleyið stjórnlaust, steytir á skeri og brimaldan brýtur það í spón.

,,hefnist þeim er svíkur sína huldumey" segir í vísunni. Síðasta vísuorðið verður ekki haft eftir. Ekki skal nefna snöru í hengds manns húsi.

 


Bloggfærslur 8. október 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband