Ísland - Evrópa: önnur víglína 2019 en fyrir tíu árum

Vinstristjórn Jóhönnu Sig. sótti um aðild að Evrópusambandinu 16. júlí 2009. Næstu árin var víglínan milli þeirra sem vildu ESB-aðild og hinna sem töldu fullvalda Ísland farsældar Frón.

Tíu árum síðar er víglínan önnur. Hún er á milli þeirra sem telja EES-samninginn upphafið og endir að alþjóðasamskiptum Íslands og hinna sem gjalda varhug við ofríki Evrópusambandsins sem notar EES-samninginn að sækja sér valdheimildir á Íslandi, nú síðast í orkupakkamálinu.

Tveir álitsgjafar, Björn Bjarnason, og ritstjóri Fréttablaðsins, báðir hlynntir EES, staðfesta breytta víglínu.

Andstæðingar ESB-aðildar mega vel við una. Það er pólitískt dautt mál að berjast fyrir ESB-aðild Íslands. Orkupakkaumræðan sýndi að þeir sem styðja valdaframsal frá Íslandi til Brussel verða fyrir þungum búsifjum. 

Sjálfstæðisflokkurinn er í pólitískri sjálfheldu. Þessi fyrrum móðurflokkur borgaralegra stjórnmála flýr á vit gelgjulegra heimsendaspádóma í loftslagsmálum og sér það bjargráð að skattleggja ferðir á bíl og með flugi. Allt í nafni framandi hugmyndafræði glópahlýnunar. 

Flokkur sem útvatnar erfðaefni sitt, sjálfstæðið í flokksheitinu, líkt og gerðist í orkupakkamálinu, er kominn á vonarvöl. Sjálfsmynd flokksins er svo löskuð að andstæðingarnir þurfa ekki einu sinni að nefna flokksmyndina á nafn í gagnrýni sinni. Það þarf ekki að miða skeytunum á skotmarkið. Þau hitta sjálfkrafa.

Stjórnmálaflokkar komast í gegnum ólgusjó umræðunnar með kjölfestu. Vanti kjölfestuna verður fleyið stjórnlaust, steytir á skeri og brimaldan brýtur það í spón.

,,hefnist þeim er svíkur sína huldumey" segir í vísunni. Síðasta vísuorðið verður ekki haft eftir. Ekki skal nefna snöru í hengds manns húsi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband