Grænland tapast, Sahara-eyðimörkin verður græn

Ef Grænlandsjökull bráðnar hverfur vatnið ekki út í himingeiminn heldur verður það hluti af náttúrulegu samspili hafs, lofts, meginlanda og sólarljóss sem gerir jörðina byggilega.

Vísindamenn glíma enn við að skilja þetta samspil. Aðgerðasinnar í þeirra röðum halda að maðurinn stjórni náttúrulegum ferlum, sem er fáviska klædd í búning vísinda.

Ef Grænlandsjökull tapast er eins víst að Sahara-eyðimörkin verði græn. Engin ástæða til að kvarta yfir því. 


mbl.is „Munum missa Grænland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin og fyrirgefningin

Væntumþykja og fyrirgefning eru mannkostir. Ef meðbróður - eða systur - verður á í messunni er kristið og mannlegt að fyrirgefa yfirsjónina.

Væntumþykja sem stjórnast af flokkspólitík er aftur til marks um tvöfalt siðgæði, sem hvorki er kristið né mannkostur.

Klausturmenningunum átta, mínus Líf og Gunnlaugi, urðu á mistök. Ágúst Ólafur fokkaði svolítið upp sínum málum. Við skulum fyrirgefa þeim öllum.

Eftir því sem þeim krötum fjölgar er þurfa á náð fyrirgefningarinnar að halda verður líklegra að Samfylkingin láti af flokkspólitískri hræsni og tileinki sér mannkosti er lítt voru í hávegum þar á bæ til skamms tíma.


mbl.is Líkaði við færslu Ágústs Ólafs með hvatvísu hjarta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brexit og ESB-útlegð vinstrimanna á Íslandi

Úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu, Brexit, breytir íslenskum stjórnmálum. Að frátöldum Norðurlöndum stendur Bretland okkur næst í Evrópu. Úrsögn Breta stokkar upp valdajafnvægið í Evrópu, færir ESB nær því að vera hreinn félagsskapur meginlandsþjóða með nokkuð voldugan nágranna í austri, Rússland. Bretland, sem var milliliður fyrir aðkomu Bandaríkjanna að Evrópustríðum á fyrri hluta síðustu aldar er ekki lengur hluti af bandalaginu sem mótaðist í kalda stríðinu.

Áhrif Brexit á íslensk stjórnmál verða þau að ESB-flokkar eins og Samfylking og Viðreisn eiga sér ekki lengur pólitískar forsendur. Samfylkingin er búin til sem ESB-flokkur og á enga framtíð sem slíkur. Sama gildir um Viðreisn.

Annað meginhlutverk Samfylkingar var að sameina vinstrimenn. Sá draumur er mun fjarlægari núna en um aldamótin, þegar flokkurinn var stofnaður, og ástæðan er að ESB-aðildin reyndist mýrarljós.

ESB-mistökin færðu frumkvæðið í vinstripólitík frá Samfylkingu til Vinstri grænna. Kjölfestulaus Samfylking reynir að veiða fylgi á sömu miðum og Píratar - með upphlaupspólitík. Á meðan sitja Vinstri grænir í landsstjórninni með Sjálfstæðisflokki og Framsókn, tveim elstu starfandi stjórnmálaflokkum þjóðarinnar. 

 


mbl.is Flestir taka ekki afstöðu til Brexit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. desember 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband