Færsluflokkur: Dægurmál
Miðvikudagur, 29. júlí 2009
Íþróttafélög fái ríkisbankana
Bankarnir og sparisjóðir eru flestir í eigu ríkisins beint eða óbeint. Þeir sem áttu fjármálafyrirtækin geta ekki eignast þau aftur, fjárhagslegt sakavottorð þeirra leyfir það ekki. Við þurfum að finna nýja eigendur að fjármálastofnunum og hvers vegna ekki að koma þeim í eigu íþróttafélaga?
Íþróttafélög gegna lykilhlutverki í félagskerfi samfélagins og þau eru iðulega blönk. Með því að þau fái fjármálafyrirtækin er dreifð eignaraðild tryggð, samkeppnishugsun og gera mætti regluverkið þannig úr garði að vöxtur verði hóflegur og afrakstur fari í starfið.
Við núverandi aðstæður verður að hugsa út fyrir ramman. Félagslegur íþróttakapítalismi er pæling.
![]() |
Lítil trú á efnahagsmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 28. júlí 2009
Spænskur ráðherra: Íslensk fiskimið eru fjársjóður
Evrópumálaráðherra Spánar Diego Lopez Garrido segir í viðtali við spænska stórblaðið El Pais að Spánn muni sjá til þess að hagsmunir landsins verði ekki fyrir borð bornir í aðildarviðræðum Evrópusambandsins við Ísland. Hann segir íslensku fiskimiðin vera fjársjóð.
Spænski úthafsveiðiflotinn er einn sá stærsti í heimi og hefur um árabil stundað veiðar í lögsögu ríkja sem Evrópusambandið hefur gert samninga við. Spænskum togurum var hleypt inn í írska fiskveiðlögsögu eftir að Írland gekk inn í Evrópusambandið.
Hér er umfjöllun El Pais.
Þriðjudagur, 28. júlí 2009
Hernaðarsamvinna ESB vekur norskan óhug
Þrátt fyrir að standa utan Evrópusambandsins tekur Noregur þátt í hernaðarsamvinnu ESB. Yfirvöld í Brussel hafa smátt og smátt aukið herstyrk Sambandsins og í Lissabon-sáttmálanum eru heimildir til að efla enn þennan þátt starfseminnar.
Norðmenn hafa lofað 150 hermönnum í liðsstyrk ESB. Aðildarríki ESB framselja mannaforráð yfir þeim herstyrk sem eyrnarmerktur er Sambandinu. Brussel getur þar með ákveðið að senda hermenn hvert á land sem vera skal. Leiðandi stjórnmálamaður í Hægriflokknum í Noregi krefst þess að Norðmenn fái neitunarvald um einstaka leiðangra herstyrks ESB. Rökin eru þau að norsk ábyrgð er á lífi hermannanna en ekki evrópsk.
Hér er umfjöllun norska ríkisútvarpsins, NRK.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 28. júlí 2009
Útrásarmönnum er ekki landvært
Nýliðinn dagur bauð upp á morgunfréttir um að bankarnir hefðu verið komnir að fótum fram ári fyrir hrun; að Baugur hafi fengið 100 milljarða frá Landsbanka og Kaupþing; kvöldfréttir hermdu að auðmenn hafi kortéri fyrir hrun komið peningum úr íslenskum bönkum í útlent skjól.
Útrásarmenn eru sérstaklega illa gerðir einstaklingar. Þeir eru lygnir, svikulir, þjófóttir og ganga huglausir í græðgistakti úr landi með illa fengið fé - og skilja þjóðina eftir í örvæntingu um framtíð sína.
Útrásarbleyðurnar eiga ekki að láta sjá sig hér á landi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 27. júlí 2009
Atvinnulífið vill ekki í Evrópusambandið
Ein samfylkingarlygin sem ESB-miðlarnir eru óþreytandi að endurvarpa er að atvinnulífið vilji inn í Evrópusambandið. Það er bláköld lygi sem sést á því að Samtök atvinnulífsins tóku ekki afstöðu til þingsályktunar um umsókn að ESB vegna þess að samtökin voru áður búin að kanna hug félagsmanna í skoðanakönnun. Niðurstaðan var eftirfarandi
Niðurstaðan var sú að fyrirtæki með 42,7% atkvæða svöruðu spurningunni játandi, 40,1% neitandi og 17,0% tóku ekki afstöðu. Ef einungis er litið til þeirra sem tóku afstöðu þá svöruðu 51,6% játandi og 48,4% neitandi.
Ennfremur
Skoðanir eru mjög skiptar í þessu máli innan samtakanna og á grundvelli niðurstaðna könnunarinnar er staðfest að SA muni ekki beita sér fyrir aðild Íslands að ESB og upptöku evru á Íslandi.
Sjá hér frétt Samtaka atvinnulífsins frá í desember.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 27. júlí 2009
Svikull krefst heilinda
Einn svikulu áttmenningana í þingflokki Vg sem samþykkti umsókn Íslands til Evrópusambandsins er Árni Þór Sigurðsson. Á heimasíðu sinni atyrðir handlangari formanns Vg eina ráðherra flokksins sem fylgdi yfirlýstri stefnu Vg um að Íslandi skyldi haldið utan Evrópusambandsins og sagði nei í atkvæðagreiðslunni 16. júlí.
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra talar fyrir hönd afgerandi meirihluta kjósenda Vg og meirihluta þjóðarinnar þegar hann leggur til frestun á aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Svikuli handlangarinn sýnir sitt rétta innræti þegar hann krefur Jón Bjarnason um heilindi við margfalda misþyrmingu á trúnaði almennings. Vonandi stendur Jón keikur og býður hyskinu byrginn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 27. júlí 2009
Hringurinn þrengist um Jóhönnu
All nokkrar undirtektir eru við hugmyndina í leiðara Fréttablaðsins að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra taki Icesave-málið beint til forsætisráðherra Breta og Hollands. Tillagan og viðbrögðin eru til marks um vaxandi samstöðu um tvennt. Í fyrsta lagi að ekki sé hægt að samþykkja Icesave-samningana og í öðru lagi að ríkisstjórnin falli með samningunum.
Alþingi tók sér stutt frí til að stjórnvöld mættu melta pólitíska framtíð sína. Tillagan um Jóhönnuför til Lundúna og Niðurlanda þrengir hringinn um forsætisráðherra. Hrekkur Jóhanna eða stekkur?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 27. júlí 2009
Þjófar búa sér til reglur
![]() |
Reglurnar eigi ekki alltaf við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 26. júlí 2009
Krónan gerir kraftaverk
Dálkahöfundur Telegraph var hér á dögunum og hitt ráðherra, Seðlabankastjóra, rithöfunda og ónefnda. Hann gerir samanburð á stöðu Íslands og Evrópusambandslandanna Írlandi og Lettlandi. Niðurstaðan er að vegna krónunnar verður kreppan hér ekki eins djúp og við verðum fyrr að ná jafnvægi í hagkerfinu.
Hér er greinin eftir Evans-Pritchard.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 26. júlí 2009
Höfuðsynd Steingríms J.
Pólitískur sjálfsmorðskandídat og formaður Vg skrifar félögum sínum og biður þá að fylgja sér fram af bjargbrúninni. Eftir svikin í ESB-málinu krefst Steingrímur J. Sigfússon stuðnings til að troða Icesave-samningnum ofaní kokið á þjóðinni. Gangi það fram verður syndaþrenna formannsins fullkomin: Umsóknin, Icesave og endalok Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Sjálf höfuðsyndin var framin fyrir kosningar, eins og fram kemur í pistlinum.
Þeir eru ánægðir með svikin sem hagnast á þeim. Samfylkingarevrópuskríkjan Kolbrún Bergþórs lofar Steingrím J. í moggadálki í dag jafnframt sem hún dylur lítt fyrirlitningu sína á öllu því sem Vg stendur fyrir. Lofrulla frá Kolbrúnu Bergþórs er álíka þörf formanni Vg og rabbína sem fengi stuðningsyfirlýsingu frá nýnasista.
Í pistli sínum á vefgátt Vg er ekki orð sem réttlætir helför formanns Vg heldur er þar að finna grjótharða forherðingu. Með þótta nývaldsins gerir hann óbreytta liðsmenn samseka svikunum með eftirfarandi orðum
Þannig er þessi niðurstaða vel samrýmanleg landfundarályktun í mars síðastliðnum sem lögð var fram í kjölfar mikils starfs innan flokksins sem allir flokksmenn gátu tekið þátt í.
Orð Steingríms J. afhjúpa að hann lagði drög að svikunum löngu fyrir stjórnarmyndunarviðræður við Samfylkinguna. Hann fékk samþykktan texta á landsfundi sem mætti lesa, væri maður andskotinn með biblíu í hendi, þannig að það sé allt í lagi að hefja undirbúning að inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Í framhaldi sendi formaðurinn þingmannsefni sín út á meðal fólks með þau skilaboð að traust væri lykilorðið. Vg væri treystandi. Sjálfur stóð hann keikur að kveldi síðasta dags kosningabaráttunnar og sagði Vg stefnufastan flokk. Í tugþúsundavís voru kjósendur blekktir. Þeim var talin trú um að Vg stæði gegn aðild að Evrópusambandinu.
Almenningur gat ekki með nokkru móti vitað að Steingrímur J. væri búinn að svíkja og hanna atburðarás sem réttlætti þau. Þegar það rennur upp fyrir alþjóð hvernig sá trausti Steingrímur J. er svikamörður sem á ekki til ærlega pólitíska taug munu kjósendur gera Vg að hjáróma krypplingaflokki þar sem félagarnir fróa sér við marxískar textaanalísur.