Nasismi, fasismi: merkjavörur stjórnmálanna

Þekktustu merkjavörur stjórnmálanna eru fasismi og nasismi. Ástæðan fyrir vaxandi notkun á þekktum vörumerkjum í pólitískri umræðu er einföld.

Vestræn stjórnmálaumræða er í kreppu. Viðurkennt viðmið síðustu áratuga, frjálslynd alþjóðahyggja, er að niðurlotum komin. Ekkert annað viðmið er komið í staðinn.

Í tómarúmi umræðunnar er merkjavara gærdagsins dregin fram: fasismi og nasismi.


mbl.is Ummæli Erdoğan óásættanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitísk réttarhöld Samfylkingar og Vg

Landsdómur snerist upp í pólitískt einelti gagnvart Geir H. Haarde þegar meirihlutinn á alþingi, Samfylking og Vinstri grænir, ákvað að kæra ekki ráðherra Samfylkingar í hrunstjórninni 2007-2009.

Hrunstjórnin bar pólitíska ábyrgð á stjórnarfarinu í aðdraganda hrunsins. Ef réttarhöld skyldu fara fram átti að ákæra jöfnum höndum þá ráðherra sem báru ábyrgð. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingar og bankamálaráðherrann, Björgvin G. Sigurðsson, báru sinn hluta ábyrgðarinnar.

Í aðdraganda hrunsins brást pólitíska kerfið þeirri skyldu sinni að gæta almannahagsmuna. Samfylking og Vinstri grænir vildu skrifa það á reikning eins manns með landsdómsákæru. 


mbl.is Vill leggja landsdóm af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullveldið bjargaði Íslandi

Ísland fékk engar bjargir á alþjóðavísu nema þær sem við áttum rétt á - frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Ástæðan fyrir áhugaleysi alþjóðar á íslenskum vanda er að bankamenn hér á landi höfðu meira og minna yfirtekið stjórn landsins.

Viðvörunarbjöllur hringdu í forkreppunni 2006. Ekkert var gert vegna þess að bankakerfið stjórnaði landinu. Þegar hrunið dundi yfir tveim árum síðar var almenn sannfæring í útlöndum að spilltir fjármálamenn réðu ferðinni á Íslandi. Sem var rétt, eins og kom á daginn.

Vinstristjórnin 2009-2013 taldi stöðu Íslands svo vonlausa að við yrðum að segja okkur til sveitar hjá ESB. Góðu heilli misheppnaðist það glapræði. Sigmundur Davíð og stjórn hans sýndi fram á hvernig nota á fullveldi þjóðar til að rétta úr kútnum eftir efnahagsleg og pólitísk áföll.

 


mbl.is Sýnidæmi um land sem átti ekki að bjarga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðlaus blaðamennska verðlaunuð

Jóhannes Kr. Kristjánsson notaði sænskan blaðamann sem tálbeitu í alræmdu viðtali við forsætisráðherra. RÚV var verkkaupi Jóhannesar.

Tálbeitan laug blákalt um tilefni viðtalsins. Forsætisráðherra mætti í viðtalið ,,í þeirri trú að umræðan verði um hvernig tókst að endurreisa Ísland eftir hrun," eins og segir í frétt norsku útgáfunnar Aftenposten - og kemur fram í óklipptu viðtali.

Fagfélag íslenskra blaðamanna verðlaunar siðlausa blaðamennsku og segir það töluvert um faglega vitund stéttarinnar.


mbl.is Hlutu Blaðamannaverðlaun BÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Benedikt gerir Ísland gjaldþrota - og ESB-ríki

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra og formaður Viðreisnar er í pólitík til að gera Ísland að ESB-ríki. Öruggasta leiðin inn í ESB er að Ísland verði gjaldþrota.

Með því að eyðileggja vinnu fyrri ríkisstjórnar um losun hafta færir Benedikt landið inn í ferli haftabúskapar sem endar með gjaldþroti - og ESB aðild.

Pólitísk tilvera Benedikts og Viðreisnar byggir á þeirri forsendu að Ísland geti ekki rekið sig sem sjálfstætt fullvalda ríki. Sem fjármálaráðherra tekur Benedikt flokkshagsmuni fram yfir þjóðarhagsmuni.


mbl.is Væru kolröng skilaboð frá stjórnvöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar vilja einkavæða áfengissölu

Þrír þingmenn Pírata, Jón Þór Ólafsson, Ásta Guðrún Helgadóttir og Viktor Orri Valgarðsson, flytja áfengisfrumvarpið í félagi við þingmenn úr Sjálfstæðisflokki, Bjartri framtíð og Viðreisn.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að áfengi verði selt í matvöruverslunum og mætir andstöðu í samfélaginu. Nú býður formaður Sjálfstæðisflokksins þá málamiðlun að áfengissalan fari til einkaaðila en haldi starfseminni að öðru leyti óbreyttri - þ.e. að áfengi verði selt í sérverslunum.

Píratar eru áhugasamir að færa einkaaðilum ábatasöm viðskipti og hljóta að stökkva á tilboð forsætisráðherra.


mbl.is Vel hægt að færa áfengisverslun til einkaaðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Katrín felur klofning Vinstri grænna

Stjórnarmyndun er málamiðlun. Vinstri grænum stóð til boða tveggja flokka stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Vinstri grænir voru klofnir í afstöðu sinni og formaðurinn, Katrín Jakobsdóttir, tók ekki af skarið. Hún lúffaði fyrir hreintrúarfólki.

Vinstri grænir munu aldrei geta breytt Íslandi í sósíalískt lýðveldi. Aftur gæti flokkurinn haft áhrif á hvernig málum er skipað í blönduðu hagkerfi.

Kjarni málsins er að Vinstri grænir eiga eftir að gera upp við sig hvernig flokkur þeir ætla að vera. Valkostirnir eru tveir: í eilífri stjórnarandstöðu, sem aðeins er rofin undir sérstökum kringumstæðum - t.d. vegna hruns - eða stjórntækur flokkur málamiðlana.


mbl.is Samstarfið lá í loftinu allan tímann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitík er trú með djöflum og guðum: Trump, Pútín og ESB

Einu sinni voru nornir brenndar (karlar á Íslandi) vegna rangrar trúar. Vesturlönd skiptu út trú fyrir pólitík eftir frönsku byltinguna en áfram er fólk brennt fyrir ranga trú. Dauðinn birtist í mörgum myndum.

Pólitík er trúarvald í veraldlegu samfélagi. Þeir sem ráða pólitíkinni í helstu höfuðborgum eru í forræði ákvarðana sem skipta öllu, jafnvel lífi og dauða, fyrir íbúa heimsbyggðar.

Til skamms tíma var ein pólitísk trú ríkjandi á vesturlöndum, líkt og kaþólsk kristni var ráðandi í Evrópu í lok miðalda. Frjálslynd alþjóðahyggja var boðorð dagsins. Undir hennar merkjum ríkti ómælt frelsi heima fyrir ásamt sívaxandi velmegun. Vesturlönd ætluðust til að aðrir tækju þessa trú.

Eftir fall Sovétríkjanna var Rússum ætlað að taka frjálslynda alþjóðahyggju. Rússland reyndi, undir Yeltsin, að meðtaka kennisetningar kapítalisma og frjálslyndis. Tilrauninni fylgdi veldisvöxtur spillingar og samfélagsólgu. Pútín kom til sögunnar um aldamótin og skóp stöðugleika á kostnað vestrænna gilda.

Þar með varð Pútínn djöfullinn í augum frjálslynda.

Eftir Rússland bar vestræna alþjóðahyggju niður í miðausturlöndum. Innrás Bandaríkjanna í Írak 2003 var tilraun til að umskapa landið í anda vestrænna gilda. Það mistókst herfilega, þótt litli djöfullinn þar, Hussein, væri auðveld bráð. En kennisetningin var ein og söm og tilraunin var endurtekin í Sýrlandi og Líbýu. Gadaffi fór sömu leið og Hussein en aðaldjöfullinn í Moskvu barg Assad forseta Sýrlands. Öll ríkin þrjú eru ónýt, í helgreipum ófriðar.

Til að skáka djöflinum Pútín stóðu Bandaríkin/ESB/Nató fyrir stjórnarskiptum í Úkraínu 2014, nágrannaríkis Rússa. Pútín stöðvaði það, yfirtók Krímskaga og sýndi vestrænu trúnni fingurinn í austurhéruðum Úkraínu þar sem ríkir borgarastyrjöld.

Frjálslynd alþjóðahyggja var að þrotum komin. Vestur í Bandaríkjunum tók Trump forsetaembættið frá frambjóðanda pólitíska rétttrúnaðarins, Hillary Clinton. Trump segir falleg orð um Pútín og sjálfkrafa verður hann að stórasta djöflinum í augum rétttrúaðra. En Trump á sér sína vini í villtrúnni. Rússland getur ekki verið óvinurinn, segir íhaldsmaðurinn og fyrrum forsetaframbjóðandi, Patrick J. Buchanan.

Wasington féll í hendur villitrúarmanns, ekki aðeins vegna misheppnaðrar utanríkisstefnu. Alþjóðvæðingin skilaði ekki velmegun til allra. Elítan fékk mest, alþýðan minnst. Og almenningur kaus Trump.

Önnur háborg frjálslyndrar alþjóðahyggju, Brussel, er í uppnámi. Eftir Brexit er Evrópusambandið í reiðileysi. Einn þekktasti blaðamaður Þýskalands, Henryk M. Broder, líkir Evrópusambandinu við Þýska alþýðulýðveldið sem haldið var uppi á lygum. Ef ESB væri fyrirtæki væri það löngu komið til gjaldþrotaskipta, segir Þjóðverjinn.

Trúin sem kenna má við frjálslynda alþjóðahyggju er komin á endastöð. Henni verður ekki bjargað. Óvissa er um hvað taki við. Við lifum fjarska spennandi tíma. Enda eru þeir lífshættulegir.


mbl.is Nornaveiðar segir Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brúnegg og valdefling RÚV

RÚV þrífst á þeirri hugmynd að vera mikilvæg valdastofnun. Áhrifaríkasta leiðin til að undirbyggja hugmyndina er sýna hvers RÚV-valdið er megnugt.

RÚV prufukeyrir reglulega sömu aðferðina: í Panama-skjölunum, tilræðinu við hæstarétt og nú síðast aðförina að Brúneggjum.

RÚV var á sínum tíma stofnað til að flytja fréttir og efla íslenska menningu. Sá tilgangur er löngu gleymdur. RÚV haslar sér völl sem valdastofnun í opinberri umræðu og misnotar reglulega það vald.


mbl.is „Nú er mál að linni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

CIA: drepum Rússa - hatur frjálslyndra

Rússahatur er fyrsta boðorð frjálslyndra demókrata undir forystu Obama fráfarandi forseta og Hillary Clinton forsetaframbjóðanda. Frjálslyndir í Evrópu eru margir sömu skoðunar. Ástæðan er í meginatriðum tvíþætt.

Í fyrsta lagi þjónar Rússahatur þeim tilgangi að sameina pólitísk öfl sem standa höllum fæti. Frjálslyndir ESB-sinnar töpuðu í Brexit. ESB rekur sérstaka deild til að útmála Rússa sem óvin. Sigur Trump í Bandaríkjunum var ósigur frjálslyndra. Með því að kenna Rússum um ósigurinn er athyglinni beint frá raunverulegum ástæðum fyrir tapinu, sem er að almenningur gafst upp á alþjóðahyggju frjálslyndra.

Í öðru lagi standa Rússar gegn þeirri áráttu frjálslyndra að umskapa heiminn í anda vestrænna lífshátta. Bandaríkin reyndu að umskapa Írak með innrás 2003 og í framhaldi með afskiptum af borgarastyrjöldinni í Sýrlandi og í Líbýu. Rússar eru bandamenn stjórnvalda í Sýrlandi til áratuga og stóðu með Assad forseta gegn hagsmunum Bandaríkjanna.

Í nýrri útgáfu New Yorker, sem er frjálslynt tímarit, er enn ein greinin sem réttlætir Rússahatrið. Blaðamaðurinn Glenn Greenwald fer í gegnum greinina og lýsir blæbrigðum Rússahaturs frjálslyndra.

Greenwald birtir stutta ræmu úr viðtali við forstjóra leyniþjónustunnar CIA í tíð Obama forseta. Forstjórinn, Mike Morell, segir blátt áfram að nauðsynlegt sé að drepa Rússa, láta þá blæða.

Viðtalið er tekið í kosningabaráttu Trump og Clinton. Þegar forstjóri CIA segir opinberlega að nauðsyn sé að drepa Rússa, láta þá finna til tevatnsins, er augljóst að Rússahatrið er samofið stofnanaveldi Bandaríkjanna. Og það veit ekki á gott í samskiptum kjarnorkuvelda.


mbl.is Ber fullt traust til Sessions
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband