Kaupin á Arion-banka eru blekking

Erlendir eigendur Arion-banka ætla að taka snúning, selja bankann sjálfum sér og færa niður eigið fé bankans og leysa til sín ótalda milljarða til að flytja úr landi.

Framsóknarmenn undir forystu Sigmundar Davíðs benda á mótleik; að ríkið nýti forkaupsréttinn og leysi hlutinn til sín.

Sigmundur Davíð sýndi og sannaði í forsætisráðherratíð sinni að hann kann réttu handtökin í samskiptum við erlenda vogunarsjóði.


mbl.is Stærri en salan á Búnaðarbankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar, vinstrimenn tækla spillingu

Píratar og vinstriflokkarnir gengu til síðustu kosninga með loforð um að ,,tækla" spillingu.

Reykjavíkurborg stjórna Píratar, Vinstri grænir og Samfylkingin. Nú er það komið á daginn að borgin hyglar alræmdum spillingargosa með því að gefa honum lóðir og byggingarleyfi.

Nú vitum við hvernig Píratar og vinstrimenn tækla spillingu: með því að verðlauna hana.


mbl.is Gagnrýna söluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðreisn tapar vegna Vinstri grænna og Brexit

Viðreisn varð til sem stjórnmálaflokkur af tveim ástæðum. Í fyrsta lagi sem heimili ESB-sinna í röðum sjálfstæðismanna. Í öðru lagi til að verða samstarfsaðili Samfylkingar um frjálslynda vinstripólitík.

Úrsögn Breta úr ESB, Brexit, kippti fótunum undan aðildarsinnum á Íslandi. Bæði sýnir Brexit veikleika ESB og líka hitt að öll viðskipta og hagkvæmnisrök fyrir ESB-aðild hverfa. Eftir Brexit væri Ísland að útiloka sig frá Bretlandi með inngöngu í ESB. Og Bretland er mikilvægasta viðskiptaland Íslands í Evrópu.

Raunir Samfylkingar á vinstri kanti stjórnmálanna veikja Viðreisn. Bandalag Viðreinar og Samfylkingar um frjálslynda pólitík er dauðanum merkt þar sem Vinstri grænir eru stórveldið á vinstri vængnum. Vinstri grænir og Viðreisn blandast álíka vel og olía og vatn.

Í öngum sínum reynir forystufólk Viðreisnar að tala upp evruna og Evrópusambandsaðild. Það er eins og að berja dautt hross til lífs.


mbl.is Misvísandi skilaboð ráðamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalok evrunnar - spurning um tíma

Á meðan fjármálaráðherra Íslands óskar eftir evru í stað krónu ræða Þjóðverjar endalok evrunnar. Tilefnið er ný skýrsla Bank of America.

Die Welt birtir línurit um gengisfellingar og gengishækkanir í kjölfar endaloka evrunnar. Nýtt þýskt mark yrði 15 prósent hærra en evran er í dag og nýir gjaldmiðlar Spánar og Grikklands 7,5 prósent lægri. Í reynd yrðu sveiflurnar meiri þar sem trúverðugleiki gjaldmiðlanna yrði ólíkur.

Ástæðan fyrir aukinni umræðu um endalok evrunnar að þessu sinni er ósjálfbær skuldastaða evruríkja í Suður-Evrópu.

Evrópski seðlabankinn rekur núllvaxtastefnu síðustu ár til að halda hjólum atvinnulífsins gangandi. Fyrr heldur en síðar verður að hækka vexti vegna verðbólgu. Fyrirsjáanleg afleiðing er að Suður-Evrópuríki standi ekki undir skuldum sínum.


mbl.is Stendur ekki til að festa gengið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Benedikt er fangi eigin fávisku

Garðabær gæti gefið út eigin gjaldmiðil og haldið honum stöðugum að tveim forsendum gefnum: í fyrsta lagi að rekstur bæjarsjóðs væri í jafnvægi og í öðru lagi að vöxtur garðbæska hagkerfisins væri eðlilegur. Þriðja atriðið sem gæti leitt til óstöðugleika er að fjármálastjóri bæjarins gæfi út yfirlýsingu um að gjaldmiðillinn væri ekki á vetur setjandi.

Í hagfræðibókmenntum er ekki til nein hámarksstærð gjaldmiðlasvæðis og heldur ekki nein lágmarksstærð. Fjölskylda gæti þess vegna gefið út gjaldmiðil.

Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar og fjármálaráðherra tileinkaði sér valkvæða heimsku um gjaldmiðla þegar hann ruddi sér braut í stjórnmálum. Heimska Benedikts kemst fyrir í tveim orðum: ónýt króna.

En var norska krónan ónýt þegar hún féll um 24 prósent árið 2014 gagnvart dollara? Var breska pundið ónýtt þegar það féll í fyrra um 17 prósent gagnvart dollara?

Nei, hvorki er norska krónan ónýt né breska pundið. Ástæður hreyfinga gjaldmiðla eru m.a. breytingar á verði mikilvægra framleiðsluþátta, olía í tilfelli Noregs, og pólitískrar óvissu, Brexit sem leiddi til lækkunar pundsins.

Á Íslandi leiðir ofurvöxtur eins framleiðsluþáttar, ferðaþjónustu, til þess að krónan ofrís. ,,Sterkasta og stöðugasta króna heims," segir greiningardeild Arion-banka. Sterkari króna gerir útflutningsgreinum erfitt um vik. Það er pólitískt verkefni að vinna úr þessari stöðu. Hvorki norskir né breskir stjórnmálamenn gáfust upp á sínum gjaldmiðli þegar á bjátaði.

Ef Benedikt væri fjármálastjóri fyrirtækis sem gæfi út skuldabréf og segði að hann efaðist um að skuldbréfin væru nokkurs virði þá yrði fjármálastjórinn einfaldlega rekinn - hann væri ekki starfi sínu vaxinn.

Fjármálaráðherra er eins og flokkurinn sem hann stendur fyrir: rusl með sex prósent fylgi.

Dómgreindarruslið í fjármálaráðuneytinu boðar tvær lausnir í viðtali við Financial Times: tengja krónuna við breska pundið eða evruna. Hvers vegna ekki dollar eða japanskt jen eða kínverskt yuan?

Krónan er ekki ónýt frekar en aðrir gjaldmiðlar. En við sitjum uppi með ónýtan fjármálaráðherra. Og verðum að breyta þeirri stöðu áður en frekari skaði hlýst af.

 

 


mbl.is Óbreytt ástand „óforsvaranlegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kverúlantavinstrið frá Pírötum til sósíalisma

Í samfélaginu er hópur kverúlanta sem á það sameiginlegt að vera vinstrisinnað, síóánægt og kröfuhart á alla aðra en sig sjálfa.

Til skamms tíma studdu kverúlantarnir Pírata, sem núna eru á fallandi fæti, en þar áður Samfylkinguna. 

Gunnar Smári, fyrrum handlangari auðmanna í fjölmiðlarekstri, síðar félagi í trúflokki múslíma og talsmaður inngöngu Íslands í Noreg, er í óða önn að smala kverúlöntum í sósíalistaflokk.

Marx gamli boðaði að menn ættu að vinna eftir getu og fá það sem þeir þyrftu. Smárasósíalismi gengur út á að kverúlantarnir fái það sem þeir vilja en aðrir borgi.


mbl.is Möguleiki á sósíalistaflokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mútur við sölu Arion-banka

Einn af kaupendum Arion-banka játar á sig stórfelldar mútugreiðslur og greiðir 47 milljarða króna í sekt fyrir vikið.

Och-Ziff Capital Management Group getur ekki talist heppilegur eigandi að íslenskum banka. Gangi kaupin fram er boðið heim sama viðskiptasiðferði og leiddi til hrunsins.

Stjórnsýslan verður að koma í veg fyrir viðskiptin með Arion-banka.


mbl.is Greiddi metsektir fyrir mútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB er að deyja - spurningin er hvernig

Evrópusambandið liðast í sundur eftir útgöngu Bretlands. Spurningin er hvort ESB hörfar skipulega frá fyrri markmiðum um sameinaða Evrópu eða hvort undanhaldið verði tætingslegt.

Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB, kynnti fimm útgáfur að breyttu sambandi. Aðeins ein þeirra, og sú sem ólíklegust er að nái fram að ganga, gerir ráð fyrir Stór-Evrópu á meginlandi álfunnar þar sem ríkin 27 verða héruð í stóru sambandsríki.

Aðrar útgáfur Junkers af framtíð sambandsins eru líklegri, t.d. kjarnasamstarf ,,viljugra" þjóðríkja á meðan önnur sætti sig við aukaaðild.

Stærsti vandinn í tilvistarkreppu ESB er evran, sameiginlegi gjaldmiðillinn sem reynslan sýnir að er ósjálfbær. Aðeins 19 af 27 ríkjum ESB nota evruna. Danir, Svíar, Pólverjar, Tékkland og Ungverjar eru meðal þeirra sem standa utan gjaldmiðlasamstarfsins.

En vegna þess að evran veldur innbyrðis óstöðugleika milli þeirra ríkja sem hana nota, einkum milli Suður-Evrópu og nyrðri ríkjanna, geta evru-ríkin 19 ekki myndað kjarnasamstarf í nýrri útgáfu Evrópusambandsins.

Það mun taka mörg ár, ef ekki áratugi, að gera upp dánarbú draumsins um sameinaða Evrópu.


mbl.is Telja rétt að ganga úr ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mistökin við fall Sovétríkjanna

Sovétríkin féllu 1991 og þar með lauk samkeppni kommúnistaríkja við vestræn lýðræðisríki, sem kennt er við kalda stríðið.

Rússum átti að bjóða aðild að nýju alþjóðakerfi er leysti af hólmi vígbúnaðarkapphlaup risaveldanna, segir í Guardian.

Vinátta forseta Bandaríkjanna og Sovétríkjanna var fyrir hendi, eins og kemur fram í síðasta símtali þeirra. Aðstæður í alþjóðasamskiptum voru jákvæðar.

En þróunin varð önnur. Sterk öfl í Bandaríkjunum telja Rússland höfuðóvin. Evrópusambandið er meira og minna á sama máli.

Samfelld útþensla Nató í austurátt er birtingarmynd andstöðunnar. Nú stendur til að Svartfjallaland verði Nató-ríki. Aðeins til að sýna Rússum í tvo heimana, segir bandaríski þingmaðurinn Rand Paul og mótmælir hástöfum. En það kemur fyrir lítið.

Ef ekki væri fyrir mistökin eftir fall Sovétríkjanna væri til muna friðsælla í heiminum í dag. 


mbl.is Flynn talar gegn friðhelgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afmenntun karla er bannorð í umræðunni

Rúmlega 19 þúsund nemendur eru skráðir í nám á háskólastigi. Hlutfall kvenna er 63% en karla aðeins 37%, samkvæmt Hagstofu. Engin umræða er um þá staðreynd að karlar eru á stórflótta frá háskólanámi.

Konur eru 80 prósent kennara í grunn- og framhaldsskólum. Samt er haldið í úrelta ímynd um að konur séu fórnarlömb.

Helsta ástæðan fyrir yfirvofandi kennaraskorti er að karlar snúa baki við háskólanámi. En enginn þorir að taka umræðuna um afmenntun karla.


mbl.is Komið verði í veg fyrir kennaraskort
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband