Sósíalisti á flótta undan launþegum

Sósíalistinn Gunnar Smári yfirgefur launþegana á Fréttablaðinu kauplausa en með stór áform um að stofna Sósíalistaflokk.

Það er ekki nóg að reyna að hafa áhrif á umræðuna, við verðum að umbreyta upp­bygg­ingu sam­fé­lags­ins. Það er ekki nóg að benda á hversu spillt valda­stétt­in er og hvernig hún fær­ir eig­ur al­menn­ings til sín og sinna, við verðum að taka völd­in af þessu fólki.

Segir Gunnar Smári, stoltur sósíalisti á flótta frá launþegum sem hann borgaði ekki kaup.


mbl.is Skip­stjór­inn frá á ög­ur­stundu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump er mættur: Sýrland í dag, Úkraína á morgun

Rússum var gert viðvart um árás Bandaríkjanna á Sýrland í nótt, til að forða þeim frá manntjóni, segir Telegraph. Rússar berjast við hlið Assad forseta og Trump vildi ekki rússneskt mannfall.

Líkur eru á að vopnabúnaði herstöðvarinnar hafi verið komið undan áður en árásin var gerð. Sem gerir loftskeytaárásina að táknrænum viðburði. Andstæðingar Assad forseta fagna, t.d. Sádí Arabía, sem dundar sér við að slátra fólki í Yemen. Samherjar Assad, Íranir, fordæma aðgerðina.

Rússar munu svara Trump. Kannski með því að láta uppreisnarmenn í Úkraínu gera bandarísku herliði stjórnarinnar í Kiev skráveifu. En kannski finna þeir staðbundinn uppreisnarhóp í Sýrlandi, sem nýtur stuðnings Bandaríkjanna, til að líða fyrir.

Bandaríkin og Rússland eru bæði kjarnorkuveldi. Staðgenglastríð þeirra í miðausturlöndum og Úkraínu getur stigmagnast og orðið að beinum stríðsátökum. Það er ekki gott fyrir heimsfriðinn.


mbl.is Bandaríkin gerðu árás í Sýrlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeim var ég verst...

Eftirfarandi er úr Laxdælu þegar söguhetjan Guðrún Ósvífursdóttir gerir upp ástarmál sín á gamals aldri í samtali við son sinn.

Þá mælti Bolli: "Muntu segja mér það móðir að mér er forvitni á að vita? Hverjum hefir þú manni mest unnt?"
Guðrún svarar: "Þorkell var maður ríkastur og höfðingi mestur en engi var maður gervilegri en Bolli og albetur að sér. Þórður Ingunnarson var maður þeirra vitrastur og lagamaður mestur. Þorvalds get eg að engu."
Þá segir Bolli: "Skil eg þetta gerla hvað þú segir mér frá því hversu hverjum var farið bænda þinna en hitt verður enn ekki sagt hverjum þú unnir mest. Þarftu nú ekki að leyna því lengur."
Guðrún svarar: "Fast skorar þú þetta sonur minn," segir Guðrún, "en ef eg skal það nokkurum segja þá mun eg þig helst velja til þess."
Bolli bað hana svo gera.

Þá mælti Guðrún: "Þeim var eg verst er eg unni mest."

Ekkert torskilið þarna. En til að skilja svarið þarf að lesa söguna. Og kannski það hamli helst ungum íslenskum nemendum. Þeir lesa ekki nóg. 


mbl.is Fornsögur vinsælli hjá erlendum nemendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sósíalisminn tapar málgagni - byltingunni frestað

Fréttatíminn undir forystu Gunnars Smára átti að verða málgagn sósíalistaflokks sem þessi fyrrum viðskiptafélagi auðmanna vinnur að.

Gunnar Smári safnaði jöfnum höndum peningum í útgáfuna og flokksfélögum.

Almenningur sýndi sósíalistaútgáfunni lítinn áhuga. Auðmenn voru kallaðir til verka en ekki gekk dæmið upp.

Nú er höfuðpaurinn orðinn hornkerling og byltingunni er frestað.


mbl.is Nýir eigendur Fréttatímans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valdabarátta í Washington

Bandaríkin komast næst því að vera heimslögregla sem ákveður hvað má og hvað ekki í alþjóðasamfélaginu. Lögreglustjórinn þar á bæ er forsetinn.

Trump tók við embætti um áramótin og boðaði nýjar áherslur. Rússar voru ekki lengur höfuðóvinurinn heldur herskáir múslímar. En lögregluliðið, þ.e. embættismannakerfið, býr að langri hefð um að Rússar séu vandræðagemsinn í alþjóðasamfélaginu.

Trump mætti einnig andstöðu hjá öflugum fjölmiðlum, sem ala á þeim grun að forsetinn sé útsendari frá Kreml.

Á meðan valdabarátta geisar í Washington logar fjölþjóðlegt ófriðarbál í miðausturlöndum þar sem Rússland styður shíta múslíma (Assad forseta Sýrlands, Íran) en Bandaríkin súnni múslíma (Sádí Arabía, Tyrkland). Sumir hópar, t.d. Kúrdar, njóta velvildar beggja. Í orði kveðnu standa Rússar og Bandaríkjamenn sameiginlega gegn herskáum múslímum. En aðeins í orði kveðnu. Baráttan um ítök í ríkjaskipun miðausturlanda er í forgrunni.

Valdabaráttan í Washington hverfist um afstöðuna til Rússa. Án samvinnu við Rússa eru litlar líkur að ófriðarbálið í miðausturlöndum verði slökkt. Heimslögreglan ræður ekki ein við verkefnið.

 


mbl.is Sigur fyrir þjóðaröryggisráðgjafann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur tekur Valgerði á Dag

Ólafur Ólafsson auðmaður var handgenginn Valgerði Sverrisdóttur og Halldóri Ásgrímssyni sem réðu ferðinni í ráðherraliði Framsóknar þegar Búnaðarbankinn var seldur. Valgerður átti að gæta hagsmuna almennings.

Núna er Ólafur handgenginn Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og vinstrimönnum í borgarstjórn Reykjavíkur. Ólafur er á kafi í framkvæmdum borginni og nýtur fyrirgreiðslu og velvilja.

Líkt og hann gerði hjá Valgerði þegar hann eignaðist Búnaðarbankann.


mbl.is Ráðherra hafði ekki áhuga á málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Benedikt ráðherrabrandari

Fjármálaráðherra er efni í brandara erlendra viðskiptablaðamanna. Íslenska krónan þarf álíka mikið á festingu að halda og þorskur þarf reiðhljól, skrifa þeir.

Benedikt ráðherra lagði til 1. apríl, af öllum dögum, að krónan yrði fest við annað tveggja evru eða pund.

Þegar Benedikt stofnaði Viðreisn var krónan of veik, sagði hann. Núna er hún of sterk, að dómi ráðherra.

Önnur tillaga Benedikts er að tengja krónuna við meðaltal nokkurra gjaldmiðla, svokallað myntráð. Óráð, segir stórvesír alþjóðlegra fjármála, Mohamed A. El-Erian.

Hvað er til ráða fyrir Benedikt? Jú, kannski að tileinka sér það innsæi að á meðan allir heimsins gjaldmiðlar fljóta sé ekkert sniðugt að festa krónuna við neinn þeirra. Nema, auðvitað, að fjármálaráðherra óski sér að krónan sökkvi.


mbl.is „Þurfa gengisfestingu eins og þorskur þarf hjól“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB styður blóðbað í Sýrlandi

Evrópusambandið vill ekki frið í Sýrlandi. Forgangsverkefni ESB er að skipta um ríkisstjórn í Damaskus, bola Assad forseta frá völdum.

Assad sigraði tvennar síðustu kosningar í Sýrlandi. En ESB þykist vita betur en sýrlenska þjóðin hvernig skuli haga málum.

Bandaríkjamenn undir forystu Trump telja ekki lengur forgangsmál að Assad fari frá völdum. Stríðsþreyta gerir vart við sig í Washington eftir misheppnuð afskipti af málefnum Sýrlands, Írak og Líbýu sem öll eru í heljargreipum ofbeldis og stríðsátaka. Brussel skilur ekkert enn.


mbl.is Froða úr munni barnanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persónulegir hagsmunir þingmanna

Eflaust er Hugarafl góður og þarfur félagasskapur. En það er margur félagsskapurinn í samfélaginu, góðu heilli, og vinna þjóðþrifaverk á mörgum sviðum mannlífsins.

Þingmenn ættu að varast að persónugera þau mál sem þeir fjalla um. Þingmenn eru kjörnir til að vinna að almannahagsmunum en ekki sérgreindra.

Píratar keyra þá pólitík að almannahagsmunir standi ofar sérhagsmunum. En þegar kemur að þeim sjálfum fatast þeim flugið. Eins og dæmin sanna.   


mbl.is Þetta er algjör svívirða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pírati biður Ólaf auðmann að bjarga flokknum

Píratar loga stafnanna á milli vegna spillingarumræðu. Í borgarstjórn bera Píratar ábyrgð á því að veita alræmdasta auðmanni landsins, Ólafi Ólafssyni, fyrirgreiðslu sem skilar Ólafi milljörðum í hagnað. Þingmaður flokksins varð að láta af hendi niðurgreitt húsnæði sem hann þáði í gegnum eiginkonu sína.

Halldór Auðar Svansson borgarfulltrúi Pírata skrifar Ólafi Ólafssyni opið bréf þar sem hann biður Ólaf að bjarga flokknum frá spillingarumræðunni. Halldór var áður starfsmaður Ólafs hjá Kaupþingi og hagnaðist á hlutabréfaviðskiptum rétt fyrir hrun, að eigin sögn:

Ég fékk til dæmis hlutabréf í bankanum sem bónus jólin 2007 en seldi fáeinum mánuðum síðar...

Halldór biður Ólaf að stíga fram og hreinsa mannorð sitt til að Píratar geti haldið áfram að veita Ólafi og fyrirtækjum hans svigrúm að græða milljarða. Almenningsáltið er á móti Pírötum og Ólafi og þess vegna þarf að þykjast ,,einlægur." Til að viðskiptin nái fram að ganga.

Opið bréf Halldórs til Ólafs auðmanns sýnir svart á hvítu til hvers Píratar eru í pólitík: til að komast yfir völd og halda þeim. Og nú þarf, samkvæmt Halldóri pírata, smá ,,einlægni" til að lægja öldurnar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband