Blekkingar og bankasala

Fjárfestar sem núna ætla að eignast Arion-banka stunduðu blekkingar líkt og Ólafur Ólafsson og félagar þegar þeir keyptu forvera Arion-banka, sem þá hét Búnaðarbankinn.

Eigendur Arion-banka þóttust vera í viðræðum við lífeyrissjóði um sölu á hlut í bankanum en alltaf stóð til að selja hlutinn sjálfum sér. Það heitir að blekkja.

Arion-söluna á að stöðva.


mbl.is Gátu ekki varist blekkingunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurningalýðræði Pírata

Allt frá Forn-Grikkjum snýst pólitík um valkosti. Aþenskir stjórnmálamenn töluðu á þjóðfundum og mæltu fyrir þessum eða hinum valkosti við úrlausn mála. Öll vestræn stjórnmál byggja á greiningu á ástandi og tillögum til að breyta eða festa í sessi stöðu mála. Spurningar út í loftið án svara eru merkingarleysa.

Píratar á Íslandi kunna ekki einföldustu grunnatriði stjórnmála. Píratar hafa enga skoðun, þeir vilja bara ,,spyrja þjóðina." Píratar vita ekki hvort þeir vilja í Evrópusambandið, þeir vita ekki einu sinni hvort þeir vilja sækja um aðild. Þeir ætla að spyrja þjóðina.

Til að lýðræði verði annað en markleysa þarf að vera staðfastur vilji og sannfæring á bakvið valkosti sem kosið er um. Það dettur engum í hug, nema kannski Pírötum, að kjósa um hvort það eigi að vera sól á morgun eða rigning, eða hvort heimurinn eigi að vera friðsamur eða í ófriði.

Spurningalýðræði Pírata gerir stjórnmál að leikhúsi fáránleikans þar sem spurningum er svarað með spurningum: eigum við ekki að spyrja þjóðina hvort hún vilji þjóðaratkvæðagreiðslu? Eða þykjast Píratar einir hafa rétt til að spyrja spurninga?


mbl.is Vilja kjósa um nýjar viðræður við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunið var einkaframtak

Lóðbeint samband er á milli einkavæðingar bankanna um aldamótin og hrunsins 2008. Af þessum einföldu sannindum leiðir að einkaframtakið er í kreppu.

Þjóðin treystir ekki einkaframtakinu fyrir viðkvæmum rekstri þar sem meira er í húfi en debet og kredit, s.s. bankaþjónustu, heilbrigðiskerfinu og áfengissölu. Sporin hræða.

Enginn er á móti einkaframtaki í útgerð, byggingariðnaði, sjoppurekstri, fjölmiðlun og mörgum fleiri sviðum atvinnulífsins.

En einkaframtakið setti þjóðina á hausinn fyrir níu árum. Við skulum ekki gleyma því, Bjarni.


mbl.is Of neikvæð gagnvart einkaframtaki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur á beit hjá Degi B.

Ólafur Ólafsson auðmaður mætti ekki eiga banka, dæmdur maðurinn og nú uppvís að blekkingariðju við að sölsa undir sig Búnaðarbankann.

En Ólafur er boðinn velkominn í viðskipti við Reykjavíkurborg af Degi B. borgarstjóra.

Varla ætla Samfylking, Píratar og bjarti flokkurinn að sitja uppi með Svarta-Pétur.


mbl.is Fléttan stærri en nefndin bjóst við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðmenn í sósíalisma og fjölmiðlun

Auðmenn standa að baki samrunapælingum tveggja fjölmiðla sem báðir eru reknir á grunni sósíalískra hugmynda, Kjarninn og Fréttatíminn.

Samkvæmt fréttum eru þeir í viðræðum Sigurður Gísli Pálmason, í útgáfufélagi Fréttatímans, og Vilhjálmur Þorsteinsson, einn eigenda Kjarnans, um samruna.

Vilhjálmur er einn stofnenda Kjarnans sem boðar létt-sósíalisma í anda Samfylkingar.

Aðalsprautan í Fréttatímanum, Gunnar Smári Egilsson, stóð fyrir almennri fjársöfnun fyrir útgáfuna sem rambar á barmi gjaldþrots.

Þegar almenningur hafnar sósíalisma er gott að eiga einn eða tvo auðmenn í bakhöndinni.


Bretland fær fullveldið tilbaka: Smá-Evrópa situr eftir

Bretland tapaði fullveldi sínu hægt en örugglega í 44 ár, eða allt frá inngöngu í ESB 1973, sem þá hét Efnahagsbandalag Evrópu. Í dag byrjar tveggja ára ferli úrsagnar Bretlands úr Evrópusambandinu. Bretum er fullveldið meira virði en aðild að félagsskap með stórveldametnað án innistæðu.

Stærsta einstaka ástæðan fyrir úrsögn Breta er evran, sameiginlegur gjaldmiðill Evrópusambandsins, sem tók gildi um aldamótin. Bretar stóðu utan evrunnar, sem stóðst ekki próf kreppunnar 2008 og lagði hagkerfi Suður-Evrópu í rúst.

Evran sýndi að einn gjaldmiðill fyrir mörg þjóðríki virkar ekki nema með algjöru afsali fullveldis til miðstýrðs stórríkis er sæi um fjármál, þ.e. skatta og fjárlög, allra aðildarríkja gjaldmiðlasvæðisins. Almenningur í Evrópu er ekki tilbúinn í Stór-Evrópu.

Í dag er 50. grein Lissabonsáttmálans virkjuð með viðhöfn í London og Brussel. Enginn veit hvernig Evrópusambandinu mun vegna eftir fordæmalausa úrsögn Breta. Stórveldisdraumar valdaelítunnar á meginlandi álfunnar eru í endurskoðun. Sagan sýnir að undanhaldi stórvelda fylgja brak og brestir. Engan dreymir um Smá-Evrópu.

 


mbl.is May undirritaði úrsögnina úr ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslímar mótmæla samkynhneigðum kennara

Samkynhneigður leikskólakennari í Berlín er tilefni fjöldamótmæla múslímskra foreldra. Samkvæmt frétt Die Welt er múslímskum foreldrum illa við að karlmenn séu leikskólakennarar en þegar þeir fréttu af kynhneigð hans var múslímum í Reinickendorf-hverfinu í Berlín öllum lokið og gripu til mótmæla.

Íslamskar trúarkenningar fordæma samkynhneigð. Í Íran er dauðasök að vera hommi og í Sádí-Arabíu gilda sharía-trúarlög um samkynhneigð.

Berlín er talin umburðarlynd gagnvart samkynhneigðum. Yfirmaður viðkomandi kennara segir kynhneigð einkamál hvers og eins.

Die Welt vitnar í skoðanakönnun sem segir að 60 prósent múslíma myndu ekki vilja eiga samkynhneigðan einstakling fyrir vin. Hlutfall kristinna sömu skoðunar er 13 prósent.

 


Ásatrú og víkjandi kristni

Kristni er innfluttur siður og fylgir okkur í árþúsund en er víkjandi síðustu hundrað árin, eins og skriðjöklarnir sem þola ekki veraldarloftslagið.

Ásatrú er upphafssiður feðranna frægu sem komu austan um hyldýpishaf, eins og Jónas orti.

Ásatrú var aflögð með málamiðlun á alþingi árið 1000. Í málamiðluninni var kveðið á um að heiðnir siðir eins og fóstureyðingar með útburði, hrossakjötsát og launhelganir mættu haldast.

Mannasiðir eru hverju samfélagi nauðsynlegir og ásatrú stendur á gömlum merg. Endurreisn hennar þarf ekki að sýta. 


mbl.is Ásatrú á Íslandi í mikilli sókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tepruleg kvenremba

Valdefling kvenna er orðin slík að fulltrúar þeirra á alþingi tala niður til karla og segja þá ,,al­mennt ein­fald­ari og ódýr­ari gerð af homo sapiens en kon­ur."

Tilefnið er talnaleikfimi um að sérfræðilæknisþjónusta, þar sem konur eru meirihluti skjólstæðinga, séu dýrari en lækningar sem karlar nota í meira mæli en konur. Þingkonan sem tekur málið upp er of mikil tepra til að nefna hverskyns læknisverk það eru sem konur sækja í og er dýrari en almennt gengur og gerist.

En það er önnur hlið á málinu. Ef konur eru svo illa af guði gerðar að rándýrar læknisaðgerðir þarf til að halda þeim gangandi hlýtur að vera spurning hvort þær eigi ekki að greiða hærri skatta en karlar.


mbl.is Karlar greiða 33% minna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslynd kreppa leyst með stríði við Rússa

Frjálslyndir demókratar í Bandaríkjunum er orðnir helstu Rússahatarar á vesturlöndum. Demókratar eru í hlutverki kommúnistaveiðarans McCarty á tíma kalda stríðsins, skrifar Robert Parry.

Þingmaður Demókrataflokksins, Bonnie Watson Coleman, segir opinberlega að Rússar stundi stríðsaðgerðir gegn bandarísku lýðræði með tölvuárásum.

Stríðslyst frjálslyndra nær út fyrir Bandaríkin. Fyrrum framkvæmdastjóri Nató, Daninn Anders Fogh Rasmussen, segir vesturlönd ekki nógu ,,ákveðin" gegn Rússum og vill stórauknar vopnasendingar til stjórnarinnar í Kiev sem berst við uppreisnarmenn í austurhluta Úkraínu. Rússar styðja uppreisnarmenn og vilja ekki að Úkraína renni heil og óskipt til ESB og Nató.

Frjálslyndir á vesturlöndum eru í kreppu. Brexit var þeim þungbært og sigur Trump á Hillary Clinton kom við kaunin.

Stríð við Rússa, sem höfuðóvin lýðræðisins, kæmi þeim frjálslyndu fjarska vel. Eftir sigur á Pútín og fylgifé hans væru frjálslyndum vesturlöndum allir vegir færi að skapa ný lýðræðisríki í miðausturlöndum, með Sýrland og Írak sem sniðmát. Og heimurinn yrði til muna friðsælli.


mbl.is Kushner býður sig fram til yfirheyrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband