Mánudagur, 7. ágúst 2017
Vantrú og siðleysi
Ný alþjóðleg könnun gefur til kynna að almenningur líti á trúlausa sem siðlaust fólk. Samkvæmt könnuninni telur almenningur í ólíkum trúarsamfélögum að líklegra sé að trúlausir fremji viðurstyggilega glæpa en trúaðir.
Guardian segir frá könnuninni.
Ein spurning: hvers vegna ætti niðurstaðan að koma á óvart?
Mánudagur, 7. ágúst 2017
4 valdablokkir í miðausturlöndum
Stjórnvöld í Ísrael taka undir harðlínustefnu Sádí-Arabíu gegn fjölmiðlinum Al Jazeera. Þetta gerist í beinu framhaldi af tilraunum til að efna til óeirða vegna deilunnar um Musterishæð, sem er bæði gyðingum og múslímum heilög.
Jerusalem Post birtir fréttaskýringu sem skilgreinir fjórar valdablokkir í miðausturlöndum. Þessar valdablokkir berjast um forræðið í heimshlutanum. Hægt er að skilja staðbundin átök út frá valdablokkunum.
Sú fyrsta er Íran, sem er forysturíki shía-múslíma. Önnur er Ríki íslams, en það eru herskáir súnní-múslímar er stefna að trúarríki. Þriðja valdablokkin er Múslímska bræðralagið með ríki eins og Tyrkland, Hamas-hryðjuverkasamtökin og Katar. Fjórða blokkin er stöðugleikaríkin: Egyptaland, Jórdanía, Sádí-Arabía og Ísrael.
Stöðugleikaríkin tóna niður deiluna um Musterishæð og er umhugað um að halda friðinn í heimshlutanum enda getur ófriður utan landamæranna óðara breyst í innanlandsátök.
Múslímska bandalagið, undir forystu Tyrkja, vildi átök. Erdogan forseti hvatti til óeirða undir trúarlegum formerkjum. Hann lítur á Tyrkland sem upphaf að endureisn kalífaríkis múslíma.
Ríki íslams var ekki aðili að deilunni um Musterishæð, þeir eiga nóg með sitt í borgarastríðinu í Sýrlandi og Írak.
Stöðugleikaríkin virðast hafa náð því að kæla deiluna í þessari umferð. Og Ísrael og Sádí-Arabía eru samstíga í að koma Al Jazeera fyrir kattarnef.
![]() |
Vilja leggja niður Al Jazeera |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 6. ágúst 2017
RÚV: Panama-skjölin voru falsfrétt
RÚV viðurkennir að hafa ekki undir höndum Panama-skjölin, sem voru einu heimildirnar fyrir raðfréttum um meinta spillingu - en raðfréttirnar sviptu menn ærunni, starfinu og ollu stjórnarkreppu.
Skilgreining á falsfrétt er að hún er án heimilda. Og RÚV viðurkennir að hafa ekki heimildir fyrir frétt um Panamaskjölin. Einn þeirra sem varð fyrir barðinu á raðfréttum RÚV er Kári Arnór Árnason. Hann kannaðist ekki við þær sakir sem á hann voru bornar og vildi fá aðgang að heimildum RÚV. En RÚV neitaði og þá kærði Kári Arnór stofnunina.
Í frétt RÚV fyrir tveim dögum, 4. ágúst, kemur svar frá Efstaleiti:
RÚV svaraði þessari kæru og sagðist ekki hafa umrædd gögn né forræði yfir þeim heldur hefði fengið aðgang að gögnunum hjá þriðja aðila.
Engin frétt er betri en heimildin fyrir henni. Og þegar engin heimild er fyrir frétt er hún falsfrétt.
Þetta er ekki fyrsta sinn sem viðurkennt er að Panamasjölin eru falsfrétt. RÚV vann raðfréttirnar með aðstoð fyrrum starfsmenns á Efstaleiti, sem gerðist verktaki, og rekur fyrirtækið Reykjavík Medía. Hér er frétt mbl.is frá 14. júlí í fyrra
Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Reykjavík Media, svaraði kröfu ríkisskattstjóra og segist engin viðbrögð hafa fengið við því svari. Í svari hennar kom einfaldlega fram að Reykjavík Media gæti ekki afhent eitthvað sem ekki væri í vörslu þeirra.
Þeir hafa ekki aðgang að gögnunum með þeim hætti að þeir geti bara afhent einhver gögn. Þetta er físískur ómöguleiki. Þú getur ekki afhent eitthvað sem þú ert ekki með.
Sem sagt: gögnin sem raðfréttir RÚV byggðu á er ekki hægt að leggja fram. Ef heimildir frétta eru ekki fyrir hendi eru þær fréttir falsfréttir - tilbúningur að hluta eða öllu leyti.
Sunnudagur, 6. ágúst 2017
Heimsendir verður EKKI vegna veðurfars
Maðurinn dundar sér frá fornsögulegum tímum að spá heimsendi. Í trúarritum og öðrum ævintýrum er sagt fyrir um hinsta dag. Síðasta útgáfan af heimsendaspámennsku er að veðurfarið geri jörðina óbyggilga vegna hlýnunar.
Veðurfarsheimsendaspámennska er stóriðnaður, þar sem sumir græða en aðrir tapa. Líkt og í trúarbrögðum er hér um eilíft líf að tefla og fjármunir verða aukaatriði. En við það verða til viðskiptatækifæri mæld í milljörðum.
Ástæðan fyrir því að hægt er að slá föstu að heimurinn ferst ekki vegna veðurfarsbreytinga er einföld. Veðurfar á jörðinni hefur tekið breytingum löngu áður en maðurinn gat nokkur áhrif haft þar um. Norræn byggð á Grænlandi lagðist af á miðöldum vegna veðurfarsbreytinga; siðmenning í suðaustur Evrópu og miðausturlöndum eyddist í lok bronsaldar að hluta vegna veðuröfga.
Litla ísöld, frá síðmiðöldum og fram á nýöld, gróflega 1400 til 1800, skóp önnur lífsskilyrði en verið höfðu. Við þekkjum það á eigin skinni. Á landnámsöld bjuggum við í upphituðum skálum en færðumst ofan í moldarkofa án upphitunar á litlu ísöld.
Heimsendaspámennska á seinni tímum gerir ráð fyrir að svokölluð gróðurhúsaárif, sem verða til við brennslu jarðefnaeldsneytis, muni gera jörðina óbyggilega. Hlýnun átti samkvæmt spánni að leiða til bráðnunar norðurheimskautsins. Wille Soon gerir grín að þessum ,,vísindum" og vísar m.a. í grein í New York Times frá 1969 um að norðurheimskautið yrði íslaust árið 1988. En, sem sagt, enn er ís á norðurpólnum og á suðurpólnum stækkar ísbreiðan.
Wille Soon spyr hvort sólin sé áhrifavaldur í loftslagsbreytingum. Rannsókn þýskra vísindamanna gefur til kynna að virkni sólar sé einmitt áhrifaþáttur um veðurfar á jörðunni - og spá kólnun til 2070, sem gengur þvert á heimsendaspámennsku um hlýnun.
Í hnotskurn: veðurfar á jörðinni hefur alltaf tekið breytingum. Enginn vísindamaður, hvorki þeir sem aðhyllast kenningar um manngerðar loftslagsbreytingar né þeir sem hafna slíkum kenningum, geta sagt hvert er rétt meðalhitastig fyrir jörðina. Það getur hlýnað en það getur líka kólnað. Við verðum að lifa með þeirri óvissu, líkt og mannkynið hefur gert fram til þessa dags.
![]() |
Öfgar í veðri kosta þúsundir lífa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 5. ágúst 2017
Múslímatrú elur af sér hryðjuverk - ný rannsókn
Ný rannsókn kemst að þeirri niðurstöðu að trúin sé miðlæg í réttlætingu múslímskra glæpamanna á verkum sínum. Rannsóknin er gerð í Austurríki og byggir á viðtölum við 29 dæmda múslíma.
Til skamms tíma var talið að slæmar félagslegar aðstæður s.s. fátækt og atvinnuleysi skýrðu tilurð herskárra múslíma fremur en trúin sjálf. En rannsóknin sýnir að múslímsku glæpamennirnir fundu í trúnni sannfæringu og réttlætingu fyrir athöfnum sínum. Stærsti hluti múslímsku afbrotamannanna komu frá trúuðum heimilum og þekktu vel til helgirita múslíma.
Með þennan trúarbakgrunn og boðskap róttækra múslímapresta sannfærðust afbrotamennirnir að veraldlegt vestrænt samfélag væri óvinur sannra múslíma.
Sannir múslímar sækja sem sagt trúarlegan innblástur í hryðjuverk á hendur saklausra borgara á vesturlöndum.
Stóra spurningin er þessi: hverjir eru sannir múslímar?
Laugardagur, 5. ágúst 2017
RÚV miðaði á Bjarna, en hitti Guðna Th.
RÚV hannaði fréttir um að Bjarni Benediktsson forsætisráherra bæri ábyrgð á uppreisn æru kynferðisbrotamanns. Fréttahönnun RÚV fylgdi þekktri uppskrift fréttafölsunar um að gefa í skyn misræmi í framburði og styðjast við hálfsannleik annarra fréttamiðla.
En tilræðið á Bjarna geigaði og hitti fyrir Guðna Th. forseta, eins og alþjóð er ljóst þegar bréfið um uppreisn æru Roberts Downey liggur fyrir með undirskrift forseta.
Nú vandast málið fyrir RÚV. Ef Bjarni væri enn i skotlínunni myndi RÚV gera sér far um að teikna hann upp sem sérstakan vin kynferðisafbrotamanna.
En Guðni Th. situr uppi með skömmina. Hann sem forseti sagði nýverið, þegar hann átti að skrifa undir skipun dómara við landsrétt, að hvergi væri sjálfsagt að forseti skrifaði undir stjórnvaldsákvarðanir sem honum væri á móti skapi.
Mun RÚV hundelta Guðna Th. með fréttaásökunum um að hann sé besti vinur kynferðisafbrotamanna? Verða fréttaskýringar þar sem borin er saman rannsókn forsetaembættisins á tilurð skipunar dómara við landsrétt annars vegar og hins vegar uppreisn æru kynferðisbrotamannsins? Verða álitsgjafar kallaðir til að fordæma forsetann?
Nei, ekkert af þessu mun RÚV gera í málefnum forsetans. Guðni Th. nýtur friðhelgi á fréttastofu RÚV en það er skotleyfi á Bjarna Benediktsson.
![]() |
Bréfið sem veitti Robert uppreist æru |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 4. ágúst 2017
Pútín-viðtalið og einpóla heimur
Fyrsti hluti af viðtölum Oliver Stone við Pútín Rússlandsforseta var sýnt á RÚV. Þættirnir eru sérstakir fyrir þá sök að Stone fékk greiðan aðgang að Pútín í tæp tvö ár til að spyrja hann um heima og geima.
Í fyrsta þætti kom m.a. fram að Pútín var tregur til að þiggja völd frá veikum Yeltsin forseta um aldamótin. Pútín er frá Leníngrad og var með takmörkuð tengsl við valdakerfið í Mosvku. Þá var Pútín óviss um hvaða framtíð biði sín. Yrði honum fórnað við fyrsta tækifæri og voru völdin þess virði að gefa frá sér allt sem heitir einkalíf?
En Pútín sló til og stjórnar Rússlandi meira og minna frá aldamótum.
Samskiptin við Bandaríkin og Nató komu við sögu. Sýnt var úr ræðu Pútín frá 2007 á öryggisráðstefnunni í Munchen þar sem hann varaði við einpóla heimi þar sem sem Bandaríkin, með Nató sem verkfæri, væru lénsherra með allar aðrar þjóðir sem undirsáta.
Einpóla heimur, sagði Pútín, er hættulegur vegna þess að hann spillir bæði stjórnvaldinu, sem fyllist hroka, og undirsátum, sem finna ekki til lýðræðislegrar ábyrgðar - valdið er jú allt í Washington.
Um aldamótin, þegar Sovétríkin höfðu verið dauð í tíu ár og Rússland var veikt, gerðu Bandaríkin sér vonir um að verða heimsveldi. Stríð í Afganistan, Írak, Sýrlandi og Úkraínu eru viðleitni til að þvinga fram einpóla heim.
Tilraunin mistókst. Bandaríkin gerðu heiminn ekki betri heldur skildu eftir sig slóð ónýtra ríkja, þúsundum mannslífum var fórnað, milljónir fóru á vergang og samfélög tortímdust. Sér ekki fyrir endann á óöldinni, þótt hún hafi staðið fyrir frá aldamótum.
Og hvað gera Bandaríkin þá? Jú, kenna Rússum um ófarir sínar og gera Pútín að þjóðaróvini.
Smekklegt.
Föstudagur, 4. ágúst 2017
Ekki einkavæða RÚV; gerum það að menningarstofnun
RÚV þjónar engum tilgangi í íslenskri fjölmiðlun, sem aðrir miðlar geta ekki sinnt. Það sem verra er; RÚV er rekið í starfsmannapólitískum tilgangi að reka áróður fyrir þá útgáfu vinstristjórnmála sem líkleg er til vinsælda hverju sinni.
En RÚV á að baki merka sögu á framleiðslu og miðlun íslenskrar menningar. Þess vegna ætti að leggja RÚV niður í núverandi mynd og gera það að menningarstofnun sem varðveitti, framleiddi og miðlaði íslensku efni.
Með öðrum orðum, RÚV verði ekki lengur ríkisútvarp vinstrimanna heldur menningarstofnun.
![]() |
Meirihluti andvígur einkavæðingu RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 4. ágúst 2017
Flokkur fólksins er stjórnarandstaðan: rökin
Stjórnarandstöðuflokkurinn sem bætir mest við sig fylgi í skoðanakönnunum á milli kosninga er ,,stjórnarandstaðan" á hverjum tíma. Ástæðan er sú að í umræðunni er litið svo á að sá flokkur sem er á mestu flugi geti orðið afl í næstu ríkisstjórn.
Allt síðasta kjörtímabil voru Píratar ,,stjórnarandstaðan" á meðan Vinstri grænir spiluðu aukahlutverk. Þegar kom að kosningum misstu Píratar fylgi en Vinstri grænir styrktust.
Þessa dagana er Flokkur fólksins ,,stjórnarandstaðan", samkvæmt ofangreindri skilgreiningu. Formaður flokksins, Inga Sæland, notar önnur rök fyrir stöðunni. Við erum alþýðan, segir hún.
Munurinn er á því kenna sig við alþýðuna og vera alþýðan eins og ég. Ég stend í nákvæmlega þeim skóm og búin að gera alla mína ævi, þess hóps sem ég er að berjast fyrir. Ég er varanlegur 75% öryrki með rúmar 200 þúsund krónur á mánuði, ég er að berjast fyrir þennan hóp, við viljum fá að taka þátt í samfélaginu og við viljum vera með. Og svo framarlega sem ég heiti Inga Sæland þá er að marka hvert einasta orð sem ég segi.
og
Litli Flokkur fólksins hann er eina stjórnarandstaðan í landinu í dag! Hinir eru allir í sumarfríi! Það er enginn að gera neitt, fara bara í langt langt sumarfrí, ofsalega gaman hjá þeim, en það þarf að vinna fyrir fólkið í landinu! Þessir einstaklingar eru kjörnir af okkur til að vinna fyrir okkur og þeir eru með ágætis laun. Þeir ættu að sýna sóma sinn í að vinna fyrir fólkið í stað þess að liggja og sóla á sér.
Inga er stjórnmálamaður annarrar gerðar en við eigum að venjast. Hún er ekki sprottin úr jarðveginum Reykjavík 101, eins og flestir Píratar, Vinstri grænir, Björt framtíð og þeir sem einu sinni kenndu sig við Samfylkinguna.
Reykjavík 101-liðið vildi bæta hag háskólafólksins, sérfræðinganna. Þingmaður þeirra, úr röðum Pírata, sagði á ASÍ-þingi að atvinnustefnan væri að Ísland yrði aðili að geimferðarrannsóknaráætlun Evrópusambandsins.
Í óreiðunni eftir hrun var markaður fyrir stórar lausnir: ESB-aðild, nýr gjaldmiðill, ný stjórnarskrá og nýtt Ísland.
Þegar óreiðan sjatnaði afhjúpuðust stóru hugmyndirnar og reyndust ferðir út í geiminn. Flokkur fólksins, með Ingu sem formann, vill gera gott Ísland betra fyrir þá sem minnst hafa á milli handanna. Þess vegna er Flokkur fólksins stjórnarandstaðan.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 3. ágúst 2017
Nató er bandalag stríðsæsingamanna
Nató var stofnað 1949 sem varnarbandalag vestrænna þjóða gegn ásælni Sovétríkjanna.
Gott og vel, kalda stríðið og allt það; Varsjárbandalag Sovétríkjanna og kommúnistaríkja Austur-Evrópu var stofnað 1955, sex árum eftir Nató.
En Sovétríkin hættu störfum árið 1991 og sama ár var Varsjárbandalagið lagt niður.
Árið er 2017. Sovétríkin eru dauð í 26 ár og kommúnisminn kominn á öskuhauga sögunnar. Varsjárbandalagið er steindautt í aldarfjórðung.
En Nató lifir sem aldrei fyrr, leitar sér að óvinum um allar heimsins trissur.
Nató ætti fyrir löngu að vera komið á ruslahaug sögunnar, líkt og kommúnisminn.
Til hvers er Nató? Jú, til að stuðla að stríði.
![]() |
Versnandi samskipti NATO og Rússlands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)