Liverpool ekki meistari í vor...WTF

Úrvalsdeildarleikjum í ensku verður aflýst vegna kórónuveirunnar, segir Telegraph, og mögulega engir meistarar krýndir í vor.

Skítt með peninga, þrítugur draumur YNWA-fólksins gæti breyst í martröð.

Menn verða andvaka af minna tilefni.


mbl.is Mesta hrun á hlutabréfamarkaði í tólf ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkföll breyta ekki hallæri í góðæri

Samdráttur er í efnahagskerfinu. Atvinnuleysi eykst, fyrirtæki minnka umsvifin, launagreiðslur standa í stað eða lækka og ríki og sveitarfélög fá lægri skatttekjur.

Verkföll breyta ekki hallæri í góðæri. Herskáir Eflingarsósíalistar geta hamast hvað þeir vilja en þeir breyta ekki lögmálum jafngömlum launavinnunni. Ef minna er til skiptanna þýðir ekki að berja hausnum við steininn og krefjast hærri launa.

Og vitanlega á ekki að setja lög á verkföll fólks sem er jafn skyni skroppið og Eflingarforystan. Það væri að níðast á minnimáttar.


mbl.is Lögbann á verkfall ekki komið til tals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efling eykur atvinnuleysi, félagslega einangrun

Sósíalistaforysta Eflingar lokar leikskólum og launþegar verða að taka sér frí úr vinnu til að gæta barna sinna sem einangrast félagslega.

Predrag er frá Serbíu, en hef­ur búið á Íslandi í rúm 20 ár. Bak­land fjöl­skyld­unn­ar hér á landi er engu að síður lítið og eng­inn sem get­ur stokkið til og gætt dótt­ur­inn­ar á meðan þau vinna. Þau þurfa því al­farið að reiða sig á sig sjálf. „Við erum eldri for­eldr­ar og við eig­um ekki ræt­ur hér á landi. Það eru því ekki ömm­ur og afar sem geta hlaupið til. Í síðustu viku var kon­an heima í þrjá daga á meðan ég fór að vinna. Í þess­ari viku er það öf­ugt, ég vinn tvo daga og hún þrjá.“

Nýir Íslendingar eins og Predrag er frá Serbíu standa sýnu verst að vígi. Þeir eiga ekki fjölskyldu og frændgarð til að aðstoða þegar sósíalistar úthýsa börnum þeirra úr leikskólum borgarinnar.

Fyrirsjáanleg áhrif verkfalls Eflingar er félagsleg einangrun barna og atvinnuleysi fullorðinna. Sósíalisminn virkar alltaf eins, hvort heldur á Íslandi eða Venesúela.

 


mbl.is Atvinnuleysi náð toppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veiran, varkárni og móðursýki

Kórónaveiran mun líklega nema land á Íslandi. Ekki er raunhæft að loka landinu og bíða af sér sóttina. Skynsamlegar varúðarráðstafanir draga úr líkum að veiran breiðist út til þeirra sem síst þola álagið sem fylgir, þ.e. þeir sem veikir eru fyrir.

Móðursýki um að veiran sé svarti dauði samtímans hjálpar ekki. Þeir sem nota veiruna til að slá pólitískar keilur ættu að láta af þeirri iðju. 

Verum varkár og gerum skynsamlegar áætlanir um hvernig skuli taka á vandanum. Sýnum samstöðu og yfirvegun.


mbl.is 46 sýni rannsökuð hér og öll neikvæð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loga-lýðræði: aðeins að vori

Lýðræði, samkvæmt formanni Samfylkingar, virkar aðeins að vori. Kosningar, sem haldnar eru á öðrum árstíma, eru ólýðræðislegar.

Samfylkingin er þekkt fyrir spuna.

En að segja lýðræði bundið við eina árstíð er nokkuð langt gengið í tilbúningi. Jafnvel á mælikvarða Samfylkingar.


mbl.is Lýðræðismál að kjósa að vori
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólveig í sjokki: sósíalistar eru ómarktækir

Sólveig Anna formaður Eflingar-deildar Sósíalistaflokks Íslands er í sjokki.

Efling skrifaði upp á lífskjarasamning á almennum vinnumarkaði á síðasta ári. Í dag segist Sólveig Anna ekki taka mark á þeim samningum og vill meiri launahækkanir hjá félagsmönnum sem starfa hjá Reykjavíkurborg.

Og Sólveig er í sjokki að komast ekki upp með ósvífnina.


mbl.is Undrandi og sjokkeruð eftir fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efling er stjórnmálaflokkur

Stjórnmálaflokkar kaupa sér skoðanakannanir til að fá byr í seglin. Þeim niðurstöðum sem ekki gefa ,,rétta" mynd eða sýna slæma stöðu er ýmist hagrætt eða stungið undir stól.

Efling kaupir sér könnun til að fegra ásyndina.

Enda Efling deild í Sósíalistaflokki Íslands.


mbl.is Meirihluti styður verkfallsaðgerðir Eflingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veiran, Evrópa - hagvöxtur, líf og dauði

Hagvöxtur í Evrópu er sá minnsti í sjö ár áður en kórónaveiran kom til sögunnar. Áhrif veirunnar á hagvöxt verða öll neikvæð. Verslunum og verksmiðjum er lokað og ferðaþjónusta verður fyrir höggi.

Verði veiran að faraldri hætta menn áhyggjum af efnahagslegum samdrætti. Spurningin verður um líf og dauða.

Einangrun og landamæri fá nýja merkingu.


mbl.is Ný smit í Evrópu öll rakin til Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin lög betri en ólög - öfugt hlutfall magns og gæða

Hárrétt hjá Birgi Ármannssyni þingmanni að magn og gæði fylgjast ekki að í störfum löggjafans. Oft er hlutfallið öfugt; fleiri lög en minni gæði.

Stjórnarandstöðuþingmenn hljóta að geta fundið sér eitthvað til dundurs. Til dæmis að útskýra fyrir sjálfum sér, og þjóðinni í framhaldi, hvers vegna sé þörf á 5 flokkum í stjórnarandstöðu.

Gæði stjórnarandstöðunnar eru einmitt í öfugu hlutfalli við fjölda flokka. Miðflokkurinn er sá eini sem vinnur að fækkun flokka á alþingi, með sameiningu við hálfan þingflokk Flokks fólksins. 


mbl.is „Er þessi ríkisstjórn hætt störfum?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífsgæði mæld í atvinnuleysi og mínútum

Lífskjarasamningarnir styttu vinnuvikuna. Útfærslan var látin eftir vinnumarkaðnum. Fréttir af útfærslunni hljóma svona:

algengasta útfærslan var að stytta einn vinnudag vikunnar um 45 mínútur en 43% fyrirtækjanna tóku þann kost í samráði við starfsfólkið.

Ein leið til að mæla lífsgæði er sjálfsagt tíminn sem maður er ekki í vinnunni. Sumir, aftur á móti, þrífast svo vel í vinnunni að minni viðvera skerðir lífsgæði þeirra.

Alvarlegra í frétt Viðskiptablaðsins er að

um 36% fyrirtækja í Félagi atvinnurekenda sem svöruðu könnun félagsins þess efnis hafa þurft að segja upp fólki til að mæta hækkun launakostnaðar vegna kjarasamninganna sem gerðir voru síðastliðið vor.

Víst er að atvinnuleysi eykur ekki lífsgæði. 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband