Mánudagur, 20. júlí 2020
Sósíalísk verkó
Efling sækir fyrirmynd til Venesúela, VR til gulvestunga í Frakklandi. ASÍ smitast af róttækni Eflingar og VR, enda annars hætta á að Sólveig Anna og Ragnar Þór taki höndum saman um hallarbyltingu.
Á hinn bóginn. Herskár sósíalismi ber dauðann í sér fyrir verkalýðshreyfinguna.
ASÍ náði völdum og áhrifum í samfélaginu á síðustu öld með samvinnu við hægrimiðjuna sem er ráðandi í íslensku samfélagi. Ef ASÍ segir sig frá þeirri samvinnu er úti um verkalýðshreyfinguna.
Útlenskir ismar ná aldrei árangri á Íslandi. Sögulega er isma-fólkið eins og Gísli á Uppsölum. Skrítið, sniðugt en ómarktækt.
![]() |
Risastór orð látin falla á föstudaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 19. júlí 2020
Ingibjörg Sólrún, alþjóðahyggjan og fjölmenning
Ingibjörg Sólrún fyrrum ráðherra og formaður Samfylkingar segir farir sínar ekki sléttar á alþjóðavettvangi. Þrjú múslímaríki hröktu hana úr starfi hjá alþjóðlegri stofnun, ÖSE, sem lætur sig mannréttindi varða.
Í viðtali við RÚV saknar Ingibjörg Sólrún Bandaríkjanna, sem áður voru kjölfestan í alþjóðlegu samstafi. Bandaríkin hefðu slegið á putta múslímaríkjanna með sorglega mannréttindasögu.
En hvers vegna hafa Bandaríkin dregið sig úr alþjóðlegu samstarfi af þessu tæi?
Jú, vegna þess að kratavinir Ingibjargar Sólrúnar í Evrópusambandinu gerðu fjölmenningu að sáluhjálp í alþjóðsamstarfi. Í anda fjölmenningar mátti ekki segja upphátt að vestræn mannréttindi eru ósamrýmanleg íslam, múslímatrú. Miðaldamenningu múslíma var gert jafn hátt undir höfði og vestrænni mannréttindamenningu. Til að bæta gráu ofan á svart lætur krataliðið, stundum kallað frjálslynda vinstrið, sér vel líka að múslímaríki nota alþjóðastofnanir í skefjalausu áróðursstríði gegn Ísrael - sem er eina lýðræðisríkið í miðausturlöndum.
Múslímsk uppsögn Ingibjargar Sólrúnar sýnir svart á hvítu að hugmyndin um algild mannréttindi er bábilja. Mannréttindi eru einskins virði nema þau séu varin með valdi. Fjölmenning gerir ekki ráð fyrir að ríkisvald tryggi mannréttindi.
Karl Marx, andlegur faðir vinstrimanna, vissi sem er að hugmyndafræði er einskins virði gagnvart hlutlægum veruleika. Valdið er hlutlægt, mannréttindi eru huglæg.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 18. júlí 2020
Réttur verkó að knýja fyrirtæki í gjaldþrot
Vinstrimenn verja rétt verkalýðsfélaga að setja fyrirtæki í gjaldþrot. Kemur ekki á óvart.
Flugfreyjur með stuðningi ASÍ og vinstrimanna á alþingi eru einbeittar að semja ekki við Icelandair og heimta ríkisrekstur ef ekki vill betur.
En ríkisrekstur er ekki í boði. Opin spurning er aftur hvort verkalýðsfélög eigi heilagan rétt að knýja fyrirtæki í gjaldþrot og þar með hirða lífsviðurværið af starfsviljugum launþegum.
![]() |
Alger lágkúra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 17. júlí 2020
Krónan er raunsæi og jöfnuður
Krónan speglar íslenskan efnahagsveruleika. Í hagvexti og þenslu styrkist hún en gengið lækkar í samdrætti. Krónan jafnar lífskjörin. Kaupmáttur almennings eykst þegar krónan styrkist, miðað við verðlag á vöru og þjónustu erlendis, en minnkar við gengislækkun.
Viðreisn og Samfylking vilja krónuna feiga og taka upp annan gjaldmiðil, sem hvorki endurspeglar íslenskt efnahagslíf né stuðlar að jöfnuði.
Viðreisn kennir sig þó við raunsæi í efnahagsmálum og Samfylking við jöfnuð. Margt er skrýtið í kýrhausnum.
![]() |
Krónan sýnir styrk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 16. júlí 2020
Draugar, rasismi og sjálfsblekking
Ef við tölum nógu mikið um drauga trúum við á þá. Sama gildir um rasisma. Enginn nema fáeinir í Bristol vissu hver Edward Colston var þangað til styttu hans var steypt af stalli. Colston er draugur úr fortíðinni.
Þeldökki leikarinn Morgan Freeman segir í viðtali að rasismi sé tilbúningur orðræðunnar. Stafræn miðlun orðræðunnar fær fólk til að trúa draugasögum um rasisma.
Economist, blað breskrar raunhyggju, segir vestræna blaðamenn, einkum þá amerísku, óðum að tapa tiltrú á hlutlægri miðlun upplýsinga. Á bandarískum ritstjórnum er nóg að háværum minnihluta ,,finnist" rasismi liggja í loftinu þá skal birta fréttir sem renna stoðum undir tilfinninguna. Skoðanir ryðja úr vegi hlutlægum staðreyndum.
Sjálfsblekkingin er í grunninn pólitísk. Þeir sem halda fram rasisma héldu áður fram sósíalisma. Ismar af ýmsu tæi eiga sameiginlegt draugasögum að afneita veruleikanum eins og hann blasir við og leggja trúnað á falsorðræðu. Eins og trúin flytja ismar fjöll. Í þeim flutningum verða til staðir eins og Gúlagið.
![]() |
Styttu af svartri konu steypt af stalli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 16. júlí 2020
Óvinaímyndir: Kína og Rússland
Stórveldi þurfa óvini, bæði til að réttlæta sig gagnvart bandamönnum og friðþægja lýðinn heima fyrir. Án óvina eykst lausung meðal bandamanna og lýðurinn verður hvikull. Allt frá dögum Rómarveldis styðjast heimsveldi við sömu herkænskuna.
Í Bandaríkjunum er boðið upp á tvær óvinaímyndir. Demókratar segja Rússland óvininn en Trump og félagar Kína. Demókrötum tókst næstum að gera Trump að strengjabrúðu Pútín og þar með væri pólitískur ferill sitjandi forseta á enda. En það mistókst, ímyndin þarf flugufót í veruleikanum.
Óvinaímyndin sem verður ofan á mun ráða nokkru um úrslit forsetakosninganna þar vestra í nóvember.
Sem stendur er Trump með pálmann í höndunum. COVID-19 kínversk, stafræna heimsveldið Huawei sömuleiðis; Kínverjar berja á mótmælendum í Hong Kong og minnihlutahópum á meginlandinu.
![]() |
Íhuga ferðabann gegn Kommúnistaflokknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15. júlí 2020
Lífsgæði en minni ferðalög
Laukrétt hjá Þórólfi sótt að hægt sé að lifa góðu eðlilegu lífi þrátt fyrir farsótt. Aftur liggur fyrir að farsóttin mun draga úr ferðalögum, bæði Íslendinga til útlanda og erlendra hingað.
Fremur óhugnanlegar fréttir berast frá Norður-Ítalíu um eftirköst COVID-19 sýkingar. Ef rétt reynist verður hert á sóttvarnarkröfum, ekki síst á landamærum, og það til frambúðar.
Við lifum áhugaverða tíma.
![]() |
Getum lifað fínu, eðlilegu lífi með veirunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 15. júlí 2020
Hverjir stela af hverjum, Sólveig Anna?
Formaður Eflingar, Sólveig Anna, segir atvinnurekendur stela mörg hundruð milljónum af launþegum. Þetta er stór yfirlýsing.
Engin gögn fylgja sem styðja yfirlýsinguna um launastuldinn. Á meðan liggja allir atvinnurekendur undir grun um að vera þjófar.
Upphlaup Sólveigar Önnu er pólitískt.
![]() |
Sólveig Anna krefst hundraða milljóna frá ríkinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 14. júlí 2020
Lýðhyggja eða fjölmenning; lýðræði eða kommúnismi
Pólverjar kusu lýðhyggju umfram fjölmenningu í forsetakosningunum. Alveg eins og þeir kusu lýðræði umfram kommúnisma þegar færi gafst seint á síðustu öld. Brussel er háborg fjölmenningar líkt og Moskva var miðstöð kommúnismans.
Eftir að kommúnisminn féll leituðu vinstrimenn sér að annarri hugmyndafræði. Tvennt tóku þeir hrátt úr kommúnismanum. Annað er andstyggð á vestrænu borgaralegu lýðræði en hitt er alþjóðahyggjan. Í takt við tískusveiflur henda vinstrimenn á lofti sem hentar hverju sinni, Grétu Thunberg-loftslagsfræði og Svört líf skipta máli eru nýleg dæmi.
Lýðhyggja er andsvar við latté-kommúnismanum. Lýðhyggja er einfaldlega gamla átthagafræðin, sem kennd var í barnaskólum fyrir yfirtöku vinstrimanna á skólakerfinu. Heima er best, eru einkunnarorð lýðhyggjunnar.
![]() |
Duda endurkjörinn forseti Póllands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 14. júlí 2020
3 múslímaríki vildu ekki Ingibjörgu Sólrúnu
Tyrkland, Aserbaísjan og Tadsíkistan höfnuðu Ingibjörgu Sólrúnu sem forstjóra mannréttindastofnunar ÖSE. Öll þrjú eru múslímaríki.
Ríkin þrjú eru aðilar að OIC, samtökum 57 múslímskra ríkja, sem neita að skrifa upp á mannréttindaskrá Sameinuðu þjóðanna. OIC ríkin telja að mannréttindi eigi að skilgreina á grunni íslam, múslímatrú. Mannréttindaskrá múslímaríkja er Kairó-yfirlýsingin. Konur eru þar skör lægri en karlar og mannréttindi skal túlka samkvæmt sharía-lögum múslíma. Samkvæmt þeim er dauðasök að ganga af trúnni - múslímatrú.
Ingibjörg Sólrún og afdrif hennar í forstjórastólnum er enn eitt dæmið um vesturlönd og múslímsku mótsögnina.
![]() |
Fóru gegn Ingibjörgu sem lætur af störfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)