Lýðhyggja eða fjölmenning; lýðræði eða kommúnismi

Pólverjar kusu lýðhyggju umfram fjölmenningu í forsetakosningunum. Alveg eins og þeir kusu lýðræði umfram kommúnisma þegar færi gafst seint á síðustu öld. Brussel er háborg fjölmenningar líkt og Moskva var miðstöð kommúnismans.

Eftir að kommúnisminn féll leituðu vinstrimenn sér að annarri hugmyndafræði. Tvennt tóku þeir hrátt úr kommúnismanum. Annað er andstyggð á vestrænu borgaralegu lýðræði en hitt er alþjóðahyggjan. Í takt við tískusveiflur henda vinstrimenn á lofti sem hentar hverju sinni, Grétu Thunberg-loftslagsfræði og Svört líf skipta máli eru nýleg dæmi.

Lýðhyggja er andsvar við latté-kommúnismanum. Lýðhyggja er einfaldlega gamla átthagafræðin, sem kennd var í barnaskólum fyrir yfirtöku vinstrimanna á skólakerfinu. Heima er best, eru einkunnarorð lýðhyggjunnar.


mbl.is Duda endurkjörinn forseti Póllands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Mér sýnist að kosningarnar í Pólandi  hafi aðallega snúist um að

standa vörð um hjónaband karls og konu

 og þá gaypride/Sódómu-fólki stillt upp sem andstæðum hópi.

Frekar en að kosningarnar hafi snúist um

andstöðu við fjölmenningu sem að margir þættir geta heyrt undir.

Jón Þórhallsson, 14.7.2020 kl. 16:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband