Miðvikudagur, 20. september 2023
Blaðamenn eru frekjuhópur
Blaðamannafélag Íslands vill fá sjálfdæmi að ráðast ,,gegn rétti einstaklinga til friðhelgi einkalífs" segir í bréfi frá stjórn stéttafélags blaðamanna til ráðherra. Blaðamenn frábiðja sér afskipti Fjölmiðlanefndar, rétt eins og þeir fordæma afskipti lögreglu af afbrotum blaðamanna. En blaðamenn krefjast þess að ríkið greiði þeim laun. Ríkislaun en engin ábyrgð, hvorki lagaleg né siðferðisleg, er mottó frekjuhópsins.
Fimm blaðamenn eru sakborningar í lögreglurannsókn á byrlun, gagnastuldi og broti á friðhelgi einkalífs. Blaðamennirnir misnotuðu kerfisbundið andlega veika konu til óhæfuverka. Eftir að upp komst var siðareglum Blaðamannafélags Íslands breytt í þágu sakborninga sem í ofanálag eru verðlaunablaðamenn. Tilfallandi blogg fjallaði um siðleysið:
Fagstétt sem verðlaunar miskunnarleysi lýsir yfir stríði gegn grunngildum samfélagsins.
Bréf Blaðamannafélagsins til ráðherra staðfestir yfirgang frekjuhópsins. Við erum ,,fjórða valdið" segir þar. Með leyfi, hvar stendur það í stjórnarskrá Íslands að blaðamenn séu handhafar valdheimilda eða fari með þann meið ríkisvaldsins er kallast ,,fjórða valdið"? Blaðamenn lifa i heimi ímyndunar um eigið mikilvægi. Þeir skálda sér valdheimildir, líkt og þeir spinna upp ásakanir til að koma höggi á mann og annan.
Vel að merkja, Blaðamannafélag Íslands er ekki neitt venjulegt verkalýðsfélag. Félagið er útibú frá RÚV, sem löngum lítur á sig sem ríki í ríkinu.
Sigríður Dögg fréttamaður RÚV er formaður félagsins. Hún varð uppvís að skattsvikum en hagar sér nákvæmlega eins og sakborningarnir fimm í byrlunar- og símastuldsmálinu. Ég stend ofar lögum, reglum og siðum samfélagsins, er viðhorf Sigríðar Daggar. Enda er hún formaður valdamesta frekjuhópsins á Íslandi.
![]() |
Blaðamenn neita að taka þátt í Fjölmiðlanefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 19. september 2023
Óttinn við að tjá sig, fjölmiðlar skoðanalögga
Meirihluti Íslendinga þorir ekki tjá sig opinberlega. Ein ástæðan er að fjölmiðlar í vaxandi mæli eru skoðanalögga; berja á þeim sem fylgja ekki pólitískri rétthugsun. Íslendingar bera lítið traust til fjölmiðla, mun minna en á Norðurlöndum. Norrænir fjölmiðar taka sér ekki hlutverk skoðanalögreglu, líkt og þeim íslensku er tamt.
Í viðtengdri frétt kemur fram vaxandi vantraust á fjölmiðlum hér á landi, samkvæmt könnun Fjölmiðlanefndar. Stærsti hluti fjölmiðla er í höndum fólks sem eru aðgerðasinnar en ekki blaða- og fjölmiðlamenn. RÚV er miðlæg aðgerðamiðstöð.
Eðlilega fjalla fjölmiðlar litið um minnkandi traust til þeirra, Morgunblaðið undantekning. En það eru aðrar tölur úr könnuninni sem eru enn meira sláandi en þær sem upplýsa um minnkandi traust til fjölmiðla.
Íslendingar eru afar virkir á samfélagsmiðlum, en þeir þora helst ekki að segja skoðun sína á þeim vettvangi, samkvæmt könnun Fjölmiðlanefndar. Aðeins 15 prósent landsmanna tjáir sig með opnum stöðuuppfærslum á samfélagsmiðlum. Lítið hærra hlutfall, tæp 19 prósent, tjáir sig með stöðuuppfærslum í lokuðum hópum. Aðeins 7 prósent gera athugasemdir við einstakar fréttir. Rúm 25 prósent tjá sig yfir höfuð ekki á samfélagsmiðlum. Jafnvel ,,læk" er áhættusamt.
Aðgerðasinnar á fjölmiðlum, í samvinnu við frekjuhópa, stunda árangursríka óttastjórnun. Meirihluti Íslendinga þorir ekki að segja hug sinn á samfélagsmiðlum.
Einn frekjuhópurinn vill kynóra á dagskrá í leik- og grunnskólum. Formaður Kennarasambands Íslands skrifar blaðagrein þar sem hann biður fólk að þegja og andmæla ekki nýmælum í velferð barna. Undirgefni formaðurinn er B-ið í BDSM.
Óttastjórnunin veldur skekkju í opinberri umræðu. Áhrif og völd í samfélaginu eru meira í höndum vinstrimanna, en þau annars væru, einmitt vegna þess að aðgerðasinnar eru nær alltaf vinstrimenn af einhverri sort.
Það er ekki í þágu lýðræðis og frjálsra skoðanaskipta að ríkisvaldið hækki fjárframlög til fjölmiðla sem böðlast þannig á almenningi að hann þorir ekki að tjá hug sinn. Böðullinn er feitur fyrir. Almenningur er fyrst látinn kyssa vöndinn og síðan borga kvalara sínum.
![]() |
Lítið traust Íslendinga til fjölmiðla áhyggjuefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 18. september 2023
Sigríður Dögg: meiriháttar brot, minniháttar sekt
Sigríður Dögg Auðunsdóttir fréttamaður RÚV og formaður Blaðamannafélags Íslands var staðin að skattsvikum. Skattrannsóknastjóri fékk vorið 2021 upplýsingar frá höfuðstöðvum Airbnb á Írlandi um útleigu Íslendinga á íbúðarhúsnæði í skammtímaleigu fyrir ferðamenn.
Tilfallandi greindi í gær frá umfangi útleigu Sigríðar Daggar, sem líktist meira gistihúsarekstri en íbúðaleigu.
Margir voru í sömu sporum og Sigríður Dögg, höfðu leigt út á svörtu og ekki gert skil á leigutekjum í skattframtali. Þáverandi skattrannsóknastjóri, Bryndís Kristjánsdóttir, innheimti vanskil með tvennum hætti. Undanskot undir ákveðinni fjárhæð sættu endurálagningu með 25 prósent sekt. Þegar um var að ræða meiriháttar undanskot var málið sent héraðssaksóknara.
Tilfallandi hefur heimild fyrir því að undanskot Sigríðar Daggar voru meiriháttar en sættu refsimeðferð líkt og þau væru minniháttar. Sigríður Dögg fékk endurálagningu og 25 prósent sekt. Aðrir, sem stungu undan skatti lægri fjárhæð en Sigríður Dögg, urðu að þola að vera dregnir fyrir dómstóla og sæta opinberri ákæru.
Þá fékk Sigríður Dögg tækifæri, sem aðrir fengu ekki, að flytja ólöglegan rekstur sinn afturvirkt í einkahlutafélag. Útleigan ólöglega hafði verið á kennitölu Sigríðar Daggar. Með því að flytja uppgjörið við skattinn af sinni kennitölu yfir í einkahlutafélag tryggði Sigríður Dögg enn frekar að nafn hennar kæmi hvergi nærri skattsvikunum.
Hver getur verið skýringin? Víst er að þær Sigríður Dögg og Bryndís þáverandi skattrannsóknastjóri voru í það minnsta málkunnugar. Sigríður Dögg tók ítarlegt viðtal við skattrannsóknastjóra fyrir áratug.
Auk þess að vera blaðamaður og útleigari á Airbnb stundaði Sigríður Dögg fjölmiðlaráðgjöf, kallað í daglegu tali almannatengsl. Sumir blaðamenn gera þetta, eru sannleiksleitendur í meintu umboði almennings öðrum þræði en hinum þræðinum selja þeir almannatenglaþjónustu verkkaupa með sérhagsmuni.
Um það leyti sem skattsvikamál Sigríðar Daggar var á borði Bryndísar skattrannsóknastjóra stóð Bryndís í stórræðum í opinberri umræðu. Fyrir jól 2020 var lagt fram frumvarp á alþingi um sameiningu Skattsins og embættis skattrannsóknastjóra. Veturinn 2021 og fram að vori barðist Bryndís skattrannsóknastjóri gegn frumvarpinu. Hennar hugmyndir voru að styrkja ætti stöðu skattrannsóknastjóra m.a. með því að embættið fengi ákæruvald.
Það heyrir til undantekninga að embættismaður fari fram í fjölmiðlum og á fundum gegn lagafrumvarpi er þá sjálfa varðar. En Bryndís hafði tröllatrú á mætti umræðunnar og styrk fjölmiðla. Kom þó fyrir lítið. Alþingi samþykkti frumvarpið 20. apríl 2021 og tíu dögum síðar voru embættin sameinuð.
Afar ólíklegt er að Bryndís hafi ekki keypt almannatengslaþjónustu til að aðstoða sig í opinberri umræðu. Þau viðskipti hafa tæplega verið nótulaus.
Gögn skattrannsóknastjóra geyma mikilsverðar upplýsingar sem hvernig var staðið að innheimtu á vangoldnum skatti vegna útleigu á Airbnb. Tilfallandi hefur sannfrétt að á alþingi sé í undirbúningi fyrirspurn til ráðherra um málið. Svör við þeirri fyrirspurn munu varpa skýrari ljósi á sérmeðferðina sem fréttamaður RÚV fékk.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 17. september 2023
Sigríður Dögg: um 100 m.kr. leigutekjur
Fréttamaður RÚV og formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, leigði út fjórar íbúðir á Suðurgötu 8 í miðborg Reykjavíkur. Leigusalan fór í gegnum Airbnb útleiguna. Samtals voru 8 svefnherbergi í íbúðunum fjórum með svefnplássi fyrir 28 manns. Starfsemin á Suðurgötu líktist meira gistiheimilarekstri en íbúðaleigu.
Sigríður Dögg játaði skattsvik vegna útleigu í færslu á Facebook á mánudag. Síðan hefur fréttamaður RÚV og formaður stéttafélags blaðamanna neitað að tjá sig um málið í fjölmiðlum.
Sigríður Dögg var sjálf skráð fyrir íbúðunum á Suðurgötu 8, ekki eiginmaður hennar. Samkvæmt tilfallandi gögnum var heildarleiga fyrir sólarhringsleigu á íbúðunum, miðað við fulla nýtingu, um 1000 bandaríkjadalir eða um 135 þúsund krónur.
Leigutekjur Sigríðar Daggar má áætla að hafi verið um 4 milljónir kr. á mánuði, 40 til 50 milljónir kr. á ári. Starfsemin var ólögleg og ekkert var gefið upp til skatts. Útleiga í miðbæ Reykjavíkur er ábatasömu og gera má ráð fyrir góðri nýtingu á íbúðunum fjórum.
Upp komst um skattsvik fréttamannsins þegar skattrannsóknastjóri knúði fram upplýsingar um ólöglega útleigu Íslendinga í gegnum Airbnb-bókunarkerfið. Upplýsingarnar náðu til áranna 2015-2018. Skattrannsóknarstjóri fékk upplýsingar frá Airbnb á Írlandi vorið 2021.
Hafi Sigríður Dögg verið með íbúðirnar á Suðurgötu í svartri útleigu öll fjögur árin vantaldi hún til skatts fjárhæð er nemur um eða yfir 100 milljónir króna.
![]() |
Formaðurinn tjáir sig ekki frekar um skattamálin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 16. september 2023
Tilraun á börnum, tilfallandi skúrkur
Börn eru notuð sem tilraunadýr fyrir róttækt lífsskoðunarfélag, Samtökin 78. Tilraunin gengur út á hvað er hægt að fylla barnshugann af mörgum ranghugmyndum, t.d. að kyn sé valkvætt en ekki líffræðileg staðreynd, annars vegar og hins vegar eru börnin tæld inn í heim sérviskuhóps fullorðinna með kynóra.
Börn í leik- og grunnskólum veittu ekki upplýst samþykki að vera tilraunadýr, geta það ekki. Foreldrar barnanna voru ekki spurðir. Samtökunum 78 var einfaldlega úthlutað verkefninu af yfirvöldum menntamála hjá ríki og sveitarfélögum.
Þau börn sem rata í ógöngur vegna tilraunarinnar munu, þegar fram í sækir, krefjast bóta frá hinu opinbera. Lífsskoðunarfélög ráðast inn í vitundarlíf sakleysingja og planta þar ranghugmyndum. Börn sem ekki eru þess betur nestuð að heiman geta orðið fyrir óbætanlegum skaða vegna innrætingarinnar.
Tilfallandi á fjögur barnabörn, tvö í leikskóla og tvö yngri. Honum hrýs hugur að þau verði tilraunadýr lífsskoðunarfélags er mælir fagurt en hyggur flátt. Í stað þess að þegja, krossa fingur og vona það besta, skrifaði tilfallandi blogg, sjá t.d. hér, hér og hér.
Fyrir bloggskrifin er tilfallandi úthrópaður skúrkur, óalandi og óferjandi. Það er léttur kross að bera.
Þegar fréttir berast um börnin sem verða illa úti í tilraunaverkefni Samtakanna 78 verður tilfallandi líklega hryggur að hafa ekki gert meira til að stöðva atlöguna að saklausu ungviði. Það á að heita að við lifum í siðuðu samfélagi. Orð verða að duga.
![]() |
Þurfa ekki að mæta í tíma til Páls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 15. september 2023
BDSM, rómantík með smábörnum, Samtökin 78
BDSM félagið fékk aðild að Samtökunum 78 fyrir sjö árum. Aðildin var umdeild og umræður hatrammar. Á RÚV segir einn af þeim sem tók þátt í umræðunni:
Allri þeirri röksemdafærslu sem var borin fram gegn aðild BDSM Íslands var svarað með grimmd, skætingi og jafnvel níði þegar verst lét.
Orðbragð og aðferðir samtakanna hafa lítið breyst. Þeir sem andmæla starfi Samtakanna 78 í leik- og grunnskólum fá yfir sig holskeflu af orðræðu sem ekki er hafandi eftir.
Samtökin 78 segjast standa fyrir kærleika og umburðalyndi. Í reynd eru samtökin harðdrægt lífsskoðunarfélag sem mjólkar ríkissjóð og sveitarfélög til að fjármagna sig og fá umboð yfirvalda til atlögu að saklausum börnum.
Talsmaður Samtakanna 78 segir fræðsluna ,,faglega og nærgætna". Kynferðistal við börn er hvorki faglegt né nærgætið heldur ósómi. Tilfallandi fjallaði um veggspjald í leikskólum fyrr á árinu og sagði m.a.
Ást og skot. ,,Þegar við verðum eldri getum við orðið skotin í annarri manneskju. Þessi manneskja getur verið með kynvitund, líkama og/eða kyntjáningu sem er svipuð, ólík eða eins og okkar eigin. Stundum þróast skot í ást.
Með leyfi, hvernig dettur nokkrum í hug að rómantískar kenndir skuli vera á dagskrá í leikskóla? Hvers vegna er ,,ást og skot" til umræðu fyrir börn 2-6 ára? Börn á þessum aldri hafa engar forsendur til að skilja rómantískar tilfinningar. Aðeins fólk með verulega brenglaða hugsun lætur sér til hugar koma að færa í tal við smábarn, sér óskylt, að verða ,,skotinn" í einhverjum.
Einn angi transmenningar er barnagirnd. Í Bretlandi eru dæmi um að frammámenn í transumræðunni leggi lag sitt við hópa sem vilja lögleiða barnagirnd. Nýlega var íslensk transkona, trúnaðarmaður í transhreyfingunni, ásökuð um kynferðisbrot gegn börnum. Viðkomandi hafði starfað í grunnskóla og líklega einnig leikskóla.
Kaflinn um ,,ást og skot" er skrifaður til að rugla börnin enn frekar í ríminu, gera þau móttækileg fyrir fullorðnum sem þjást af barnagirnd. Á ensku er þetta kallað ,,grooming". Sá fullorðni brýtur niður varnir barnsins til að gera það að kynlífsleikfangi. Fyrst er hrært í huga barnsins og það látið efast um eigið kyn og hvernig skal ,,tjá" kynferði. Látið er í það skína að eðlilegt sé að ,,ást og skot" fari fram á milli barns og perra. Af því að við erum ,,alls konar."
Veggspjaldið er í heild sinni skelfilegur boðskapur í bland við hindurvitni og rangfærslur. Áður en börn verða fyrir óbætanlegum skaða eiga ábyrgir aðilar að grípa í taumana. Transmenningin á ekki heima í leikskólum.
Grimmd, skætingur og níð lífsskoðunarfélags á ekki erindi í opinbera umræðu. Enn síður eiga trakteringar um rómantíska ást heima vettvangi ungra barna. Hvað BDSM áhrærir má spyrja: Hvaða foreldar telja nauðsynlegt að börnin sín fái kynningu á ofbeldiskynlífi?
![]() |
Gera engan hinsegin heldur kenna virðingu fyrir fjölbreytileika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 14. september 2023
Sigríður Dögg: 2 daga þögn fjölmiðla
Formaður Blaðamannafélags Íslands og fréttamaður RÚV, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, játaði með einhliða yfirlýsingu á Facebook að hafa ekki talið fram tekjur af húsnæði í útleigu á Aírbnb. Eftir yfirlýsinguna ríkir þögnin ein á fjölmiðlum.
Hvers vegna er þögnin stórundarleg? Jú, Sigríður Dögg sjálf sagði eftirfarandi í uppslætti á Vísi fyrir tíu mánuðum
Einhliða yfirlýsingar ekki heiðarlegt svar við erfiðum málum
Nánar útskýrði formaður Blaðamannafélags Íslands í fréttinni:
Það segir sig sjálft að stöðuuppfærsla eða einhver yfirlýsing eins og þetta er alltaf bara einhliða. Þetta er voðalega þægileg leið ef þú ert hræddur við að koma og reyna að svara spurningum, þá er þetta kannski auðveldasta leiðin en þetta er ekki heiðarlegasta leiðin, sagði Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélagsins.
Hvers vegna er Sigríður Dögg hrædd og gefur út einhliða yfirlýsingu? Hvers vegna eru fjölmiðlar hræddir og óheiðarlegir og þegja með formanni stéttafélags blaðamanna?
Áður en formaðurinn birti yfirlýsinguna sýndu fjölmiðlar málinu áhuga, t.d. mbl.is og Mannlíf. DV birti Facebook-færslu Sigríðar Daggar en síðan ekki sögunni meir. Engin eftirfylgni, aðeins einhliða útskýring gerandans. Mannlíf segir ástæðuna samúð með formanninum. Samúð með ófaglegri og óheiðarlegri blaðamennsku er játning um að fjölmiðlar séu tæki til að blekkja, hylma yfir og þar með stuðla að lögbrotum.
Mörgum spurningum er ósvarað um skattsvik Sigríðar Daggar. Hve lengi stóðu undanskotin? Hve há var fjárhæðin sem hún stóð ekki skil á? Hver var sektarfjárhæðin sem Sigríður Dögg varð að greiða? Hvers vegna sveik hún undan skatti? Finnst formanni Blaðamannafélags Íslands að skattsvikarar eigi að sitja átrauðir áfram í trúnaðarstöðum?
Í yfirlýsingu sinni segist Sigríður Dögg ekki hafa notið sérstakrar fyrirgreiðslu hjá skattrannsóknastjóra. Það felur í sér að hún hefur gert samanburð á meðferðinni sem hennar mál fékk hjá skattinum og öðrum sambærilegum málum. Hvernig lítur sá samanburður út?
Mörgum spurningum er ósvarað. En það spyr enginn Sigríði Dögg formann félags blaðamanna og fréttamann á RÚV. Stöðuuppfærslan á ein að nægja. ,,En þetta er ekki heiðarlegasta leiðin," eins og Sigríður Dögg og Vísri sögðu fyrir tíu mánuðum. Ganga blaðamenn til verka með óheiðarleika að leiðarljósi? Undanskot Sigríðar Daggar eru hluti af stærra máli, 25 milljarða skattsvikum í Airbnb-útleigu. Á að þegja um það uppgjör? Verður ekki spurt um hve mikið innheimtist af skipulögðu skattsvindli af tillitssemi við formann Blaðamannafélags Íslands?
Fjölmiðlar grafa sína eigin gröf með því að þegja yfir óþægilegum málum blaðamanna. Tveggja daga þögnin er hávær og verður háværari er dögunum fjölgar. Fjölmiðlar glata trúverðugleika sínum þegar þeir taka hagsmuni blaðamanna fram yfir almannahag. Upplýsingar um skattsvik blaðamanns í æðstu trúnaðarstöðu stéttarfélags blaðamanna eiga erindi til almennings. Blaðamenn sem ekki sjá þessa einföldu faglegu staðreynd eru almannatenglar í þjónustu sérhagsmuna og ómarktækir eftir því.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 13. september 2023
Samtökin 78: Regnhlíf fyrir tælingu barna
Í grunnskólum Reykjavíkur er BDSM-kynlífi haldið að börnum. BDSM stendur fyrir drottnun, undirgefni, kvalarlosta og píningarnautn. Samtökin 78 reka BDSM-deild. En það eru einmitt Samtökin 78 sem útvega kennsluefni í kyn- og kynlífsfræðslu grunnskóla Reykjavíkur og sjá um þjálfun og kennslu.
Samtökin 78 eru regnhlífarsamtök og lífsskoðunarfélag fullorðinna sem áhugasamir eru um klám, kynlíf, kynjaveröld og tælingu barna. Þegar samtökin eru afhjúpuð er það kallað upplýsingaóreiða. En það er ekki óreiða að sjá hlutina í réttu samhengi.
Á RÚV segir Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, ,,að námsefninu ætlað að sporna gegn áhrifum kláms." Það er léleg afsökun fyrir að klæmast í kennsluefni.
Námsefnið kennir börnum að fróa sér í baðkari og segir um nektarmyndartöku barna: ,,Þú átt þinn líkama og mátt taka myndir af honum, en þarft þess alls ekki."
Menntamálastofnun gefur út rit í anda boðskapar Samtakanna 78. Forstjórinn segir í Kastljósi að ekki sé fjallað um sjálfsfróun í ritinu. Fréttin afhjúpar ósannindin. Í ritinu grasserar efni sem á ekki heima í leik- og grunnskólum.
Kennsluefnið er tæling dulbúin sem upplýsingar. Meðfædd blygðunarsemi barna er skipulega brotin niður. Börn eru gerð móttækileg fyrir þátttöku í kynlífi og það jafnvel ofbeldiskynlífi - BDSM. Börn eru gerð efins um eigin sjálfsmynd og talin trú um að þau séu mögulega fædd í röngu kyni. Ringluð börn og óörugg eru síður í stakk búin að veita viðnám fullorðnum með eitthvað misjafnt í huga. Út á það gengur tælingin.
Samtökin 78 er lífskoðunarfélag fullorðinna með jaðarhugmyndir um kyn og kynlíf. Líkt og aðrir sértrúarhópar á félagsskapurinn sinn tilverurétt - í heimi fullorðinna.
Á RÚV er haft eftir Helga sviðsstjóra að kennsluefnið sé unnið af sérfræðingum Samtakanna 78.
Vottar Jehóva eru sérfræðingar í trúmálum. Ekki er þeim boðinn aðgangur að leik- og grunnskólabörnum. Ekki er kennsluefni frá vottunum notað í skólum. Almennt hafa lífsskoðunarfélög ekki aðgang að leik- og grunnskólum. Sérviskusjónarmið um lífið og tilveruna hafa sinn vettvang í félagasamtökum fullorðinna.
Ágengni samtaka gagnvart börnum sýnir að undir fagurgala um fjölbreytileika er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur, vammlausri og óreyndri æsku sem býr ekki að stálpaðri dómgreind. Fullorðinn sem talar fávisku ofan í börnin, t.d. að hægt sé að fæðast í röngu kyni, nýtir sér barnslegt sakleysi óharðnaðra ungmenna.
Foreldar vakna upp við þann vonda draum að kyn- og kynlífspælingar sem þeim dytti aldrei í hug að halda að börnum sínum er skipulega flaggað framan í börnin þegar foreldar eru fjarri.
Hvers vegna er lífsskoðunarfélaginu Samtökunum 78 hleypt inn í leik- og grunnskóla? Ástæðan er pólitísk. Vinstriflokkarnir, þ.e. Vinstri grænir, Samfylking, Píratar og Viðreisn eru allir hlynntir kreddum og hugmyndafræði Samtakanna 78. Vinstrimenn eru stærsti hópurinn í fræðslu- og skólastarfi. Ekki dettur þeim í hug að amast við verulega óæskilegri þróun þar sem börn eru leiksoppar í furðuveröld jaðarhóps fullorðinna.
Umræðan síðustu vikna og daga sýnir að lífsskoðunarfélagið Samtökin 78 á ekkert erindi með sérviskuskoðanir um kyn og kynlíf inn í leik- og grunnskóla. Það voru mistök að hleypa Samtökunum 78 í skólastarf. Þau mistök ber að leiðrétta.
![]() |
Fimmtán manns að rífa mig í sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 12. september 2023
Sigríður Dögg játar skattsvik
Formaður Blaðamannafélags Íslands og fréttamaður RÚV, Sigríður Dögg Auðunsdóttir játar skattsvik í færslu á Facebook. Sigríður Dögg skrifar:
Við hjónin fengum endurálagningu opinberra gjalda vegna útleigutekna fyrir nokkrum árum og greiddum þá skatta.
Sigríður Dögg leigði út húsnæði á Airbnb en gaf ekki upp leigutekjurnar á skattframtali. Það kallast að stela undan skatti. Skattrannsóknastjóri fékk upplýsingar frá höfuðstöðvum Airbnb á Írlandi eftir dómsmál þar í landi. Aðeins fengust upplýsingar um stærstu fjárhæðirnar sem skotið var undan skatti. ,,Þannig að það eru ekki smæstu aðilarnir sem eru þarna með," sagði Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknastjóri er hún fékk upplýsingarnar frá Írlandi.
Sigríður Dögg fékk ekki smáaura fyrir húsnæðið sem hún leigði út á Airbnb. Aðeins stóru fjárhæðirnar voru á listanum sem fékkst frá Írlandi og afhjúpuðu undanskotin.
Tilfallandi fjallaði um skattalagabrot Sigríðar Daggar í sumar. Blaðamenn reyndu að ná í formann Blaðamannafélagsins en hann lagði á flótta. Formaður stéttafélags á flótta undan eigin félagsmönnum er ekki góð frétt. Formaðurinn sá sitt óvænna og játaði skattsvikin á Facebook, gaf starfandi blaðamönnum í leiðinni langt nef sem urðu af fréttinni.
Sigríður Dögg notar orðið ,,endurálagning" um uppgjörið við skattinn. En það er sjálfur vinnuveitandi Sigríðar Daggar, RÚV, sem kallar verknaðinn skattsvik. Fyrirsögn RÚV á frétt af konu sem, eins og Sigríður Dögg, taldi ekki fram Airbnb-leigutekjur er eftirfarandi:
Sektuð um 15 milljónir fyrir skattsvik í Airbnb-útleigu
Endurálagning og skattsvik er ekki sami hluturinn. RÚV kallar það skattsvik sem fréttamaður stofnunarinnar er uppvís að. Líkindi Sigríðar Daggar og konunnar í skattsvikafrétt RÚV eru töluverð. Báðar lentu þær í fjárhagskröggum. Sigríður Dögg og maki hennar, Valdimar Birgisson, áttu misheppnuð útgáfuævintýri, gáfu út Krónikuna og Fréttatímann. Eins og skattsvikakonan í frétt RÚV reddaði Sigríður Dögg sér með ólögmætri útleigu á Airbnb.
Ef það er stefna RÚV að gera skattsvikurum hátt undir höfði og normalisera undanskot á opinberum gjöldum þá heldur Sigríður Dögg stöðu sinni á Kastljósi og þýfgar mann og annan um vafasamar athafnir verandi sjálf skattsvikari. Varla trúverðugt fyrirkomulag, að ekki sé sagt siðlaust.
Sigríður Dögg kemst ekki hjá því að leggja fram gögn um samskipti sín við skattinn og greina frá fjárhæðinn sem um var að ræða. Hún er fréttamaður RÚV og formaður Blaðamannafélags Íslands og fer sem slík með dagskrárvald í opinberri umræðu.
Samkvæmt fyrirtækjaskrá var Sigríður Dögg eigandi SDA-ráðgjöf ehf. frá 2016 þangað til í apríl í ár. Verið getur að útleigan á íbúðum hafi verið á kennitölu SDA-ráðgjafar ehf. eða á kennitölu Sigríðar Daggar sjálfrar. Formaðurinn á eftir að upplýsa málsatvik.
Tilfallandi heimild segir að Sigríður Dögg hafi fengið sérmeðferð hjá skattrannsóknastjóra, Bryndísi Kristjánsdóttur. Skattsvik Sigríðar Daggar hafi numið hærri fjárhæð en svo að réttlætti sátt með sekt. Aðrir í sömu sporum og Sigríður Dögg, en sviku undan lægri fjárhæð, sættu opinberri ákæru.
Tilfallandi fékk spurnir af því að á alþingi verði í haust lögð fram fyrirspurn um Airbnb-skattsvikin. Þá verður einnig spurt um málsmeðferð; við hvaða fjárhæð var miðað við er ákveðið var hverjir sættu ákæru og hverjir fengu tilboð um sátt og sektargreiðslu. Þeir sem sættu ákæru gátu ekki falið nafn og kennitölu. Sigríður Dögg fékk nafnleynd. Allt bendir til að formaður Blaðamannafélagsins og fréttamaður RÚV hafi notið fyrirgreiðslu skattrannsóknarstjóra sem aðrir í sömu stöðu nutu ekki.
Tilfallandi gisk er að Sigríður Dögg leiti sér brátt að nýjum starfsvettvangi og Blaðamannafélag Íslands fái nýjan formann, - þó ekki Aðalstein Kjartansson varaformann og sakborning í byrlunar- og símastuldsmálinu.
![]() |
Miðlar ehf. jók tekjur sínar í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 11. september 2023
Úkraínuvæðing alþjóðastjórnmála, tvær blokkir
Leiðtogafundur G20-stórríkjanna var sigur fyrir Rússland, segir Lavrov utanríkisráðherra Rússlands. Sigurinn fólst í að Rússar voru ekki fordæmdir fyrir innrásina í Úkraínu fyrir hálfu öðru ári og stríðsrekstri æ síðan ásamt hernámi á úkraínsku landi.
Úkraínustríðið þvingar fram tvær blokkir í alþjóðastjórnmálum. Í fyrsta lagi vestrið, í meginatriðum Bandaríkin og Evrópa, og í öðru lagi Rússland, Kína og vaxandi félagsskap BRICS-ríkja. Enn er ekki hægt að tala um að kalda stríðið sé endurvakið en stappar þó nærri. Meginmunurinn er að kommúnisminn er farinn veg allrar veraldar. Rússland, Kína og BRICs-ríkin eru laustengt bandalag gegn vestrinu.
Úkraínustríðið er síðasta tilraun vestursins að innheimta sigurlaun kalda stríðsins. Fyrri tilraunir í Írak, Sýrlandi og Afganistan fóru út um þúfur. Heimurinn vill kannski vestræna tækni og auðlegð en ekki vestræna afstæðishyggju í trú- og siðferðismálum og enn síður frjálslyndi í kyn- og kynferðismálum.
Rússland var meiri prófsteinn á viðskiptalegan og menningarlegan mátt vesturlanda en múslímaríkin fyrir botni Miðjarðarhafs og Afganistan. Líkt og vestrið er rússneskt samfélag byggt á kristnum gildum. All nokkur hluti rússnesku elítunnar fékk vestræna skólun á þeim 30 árum sem liðin er frá lokum kalda stríðsins. Vestrið gerði ráð fyrir að töluvert yrði um liðhlaup frá Pútín og ráðandi öflum þegar látið var sverfa til stáls í Úkraínu. Ekkert slíkt gerðist. Rússar í það stóra og heila fylktu sér um Pútín.
Úrslitin í Úkraínu eru ekki ráðin. Stoltenberg Nató-foringi segir sumarsóknina ganga vel. Aðrir hlynntir málstað Úkraínu, t.d. Richard Kemp, telja gagnsóknina búið spil og vestrið verða niðurlægt. Raunsæismenn á borð við Mearsheimer taka í sama streng.
Víst er að stjórnin í Kænugarði sýnir ótvíræðari merki um örvæntingu en Kremlarherrar. Vestrið er ekki jafn stöðugt í stuðningi og í fyrra, þegar átökin brutust út. Ekkert er þó hægt að fullyrða að svo komnu máli.
Mótsagnakennt eins og það kann að hljóma mun heimsskipanin sennilega breytast minna fyrsta kastið við rússneskan sigur en úkraínskan. Ólíklegt er að Rússar hygðu á frekari landvinninga í vestri. Evrópa, þ.e. Evrópusambandið, yrði að byggja upp, í veikri stöðu, nýtt samband við Rússland sem yrði formlega viðurkennt sem stórveldi. Nató kæmist í tilvistarkreppu, yrði að hverfa frá útþenslu og sætta sig við veigaminna hlutverk. Bandaríkin drægju þá lexíu að dagar einpóla heims væru taldir.
Fari vestrið og Úkraína með sigur af hólmi eru meiri líkur en minni að Rússland liðaðist í sundur. Upplausn landmesta ríkis jarðkringlunnar færi tæplega friðsamlega fram. Kjarnorkuvopnin í Bjarmalandi kæmust einhver í hendur aðila gefa ekki mikið fyrir heimsfriðinn.
![]() |
Komu í veg fyrir Úkraínuvæðingu fundarins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)