Trans í leikskólum

,,Hvað er kyn?" er yfirskrift veggspjalds sem dreift er í leikskóla til ,,skýringar fyrir börn, fjölskyldur og kennara." Textinn er samansúrruð transhugmyndafræði og tilræði við velferð barna. Meginmáli er skipt í fjórar efnisgreinar með feitletruðu upphafi: Hver ertu?, Líkaminn, Kyntjáning, Ást og skot. Við skulum líta á boðskapinn og notum sömu feitletrun og á veggspjaldinu.

Hver ertu? ,,Kynvitund segir til um hver við erum og hvernig við upplifum kyn okkar." Rangt. Allur þorri manna gengur að kyni sínu vísu. Hjá venjulegu fólki eru kyn og vitund sjálfgefin, líkt og andardrátturinn, sjón og heyrn. Enginn skilgreinir sig út frá frumum líkamans. Aðeins þeir sem kljást við kynbrenglun aðskilja kyn sitt vitundinni. Það er til að renna stoðum undir þau ósannindi að hægt sé að fæðast í röngum líkama. Aðeins veruleikafirrt fólk telur sér trú um þann ómöguleika. Við fæðumst karlkyns eða kvenkyns, meðvitundin kemur ekki aðskilin frá líkamanum. Í örfáum tilvikum er nýburi með óræð kyneinkenni. Það er læknisfræðilegt úrlausnarefni.

Líkaminn. ,,Við giskum á kyn ungabarna út frá líkömum þeirra. Oftast giskum við á stelpa eða strákur út frá kynfærum barnsins. Líkamar geta þó verið alls konar. Í sumum tilfellum giskum við rétt, í öðrum ekki." Rangt. Kyn er ekki ágiskun heldur líffræðileg staðreynd. Líkamar geta ekki verið alls konar; enginn nýburi fæðist fiðraður eða með kalt blóð og tálkn. Örfáir fæðast með fæðingargalla og fá læknismeðferð. Að tala um kyn sem ,,ágiskun" er hrein og klár móðgun við heilbrigða skynsemi.

Kyntjáning. ,Við notum klæðnað, föt, leikföng, hlutverk og hegðun til þess að sýna fólki kynið okkar." Rangt fyrir allan þorra manna. Fólk klæðir sig eftir veðri og tilefni, fer t.d. ekki í jakkafötum á ströndina og ekki í stuttbuxum í jarðaför. Flestir leika ekki annað hlutverk en sig sjálfa, börn þó undantekning, og velja sér leikföng til samræmis við aldur og áhuga - en ekki kyn. Hvað hegðun varðar þá vaknar ekki heilbrigður einstaklingur að morgni og veltir fyrir sér hvernig hann geti þann daginn hegðað sér í samræmi við kyn sitt. Aftur: aðeins þeir sem glíma við kynbrenglun spá í hvort eigin hegðun sé í samræmi við ímyndað kyn. Það er eins hversdagslegt og að draga andann að vera karl eða kona frá fæðingu. Transfólk er vitanlega í annarri stöðu. Enda fær það hjálp heilbrigðiskerfisins að greiða úr flækjunni. 

Með boðskap um ,,kyntjáningu" er reynt að sá fræjum efa og óvissu í sjálfsmynd barna. Ljótur er boðskapurinn og hann á eftir að versna. Síðasta efnisgrein veggspjaldsins er svona í heild sinni:

Ást og skot. ,,Þegar við verðum eldri getum við orðið skotin í annarri manneskju. Þessi manneskja getur verið með kynvitund, líkama og/eða kyntjáningu sem er svipuð, ólík eða eins og okkar eigin. Stundum þróast skot í ást.“

Með leyfi, hvernig dettur nokkrum í hug að rómantískar kenndir skuli vera á dagskrá í leikskóla? Hvers vegna er ,,ást og skot" til umræðu fyrir börn 2-6 ára? Börn á þessum aldri hafa engar forsendur til að skilja rómantískar tilfinningar. Aðeins fólk með verulega brenglaða hugsun lætur sér til hugar koma að færa í tal við smábarn, sér óskylt, að verða ,,skotinn" í einhverjum.

Einn angi transmenningar er barnagirnd. Í Bretlandi eru dæmi um að frammámenn í transumræðunni leggi lag sitt við hópa sem vilja lögleiða barnagirnd. Nýlega var íslensk transkona, trúnaðarmaður í transhreyfingunni, ásökuð um kynferðisbrot gegn börnum. Viðkomandi hafði starfað í grunnskóla og líklega einnig leikskóla.

Kaflinn um ,,ást og skot" er skrifaður til að rugla börnin enn frekar í ríminu, gera þau móttækileg fyrir fullorðnum sem þjást af barnagirnd. Á ensku er þetta kallað ,,grooming". Sá fullorðni brýtur niður varnir barnsins til að gera það að kynlífsleikfangi. Fyrst er hrært í huga barnsins og það látið efast um eigið kyn og hvernig skal ,,tjá" kynferði. Látið er í það skína að eðlilegt sé að ,,ást og skot" fari fram á milli barns og perra. Af því að við erum ,,alls konar."

Veggspjaldið er í heild sinni skelfilegur boðskapur í bland við hindurvitni og rangfærslur. Áður en börn verða fyrir óbætanlegum skaða eiga ábyrgir aðilar að grípa í taumana. Transmenningin á ekki heima í leikskólum. 

    

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Hvað varð um að börn mættu leika sér og uppgötva heiminn á sinn hátt?

Rúnar Már Bragason, 27.1.2023 kl. 10:25

2 Smámynd: Loncexter

Væri ekki meira vit að kenna börnum um banka, fjárfestingar og lán ?

Ef þú veist ekkert um þau mál í framtíðinni er lítil von.

Loncexter, 27.1.2023 kl. 11:53

3 Smámynd: Helga Dögg Sverrisdóttir

Sorglegt að foreldrar rísi ekki upp og andmæli. Það gerðist í Bretlandi, USA og nú hafa danskir foreldrar mótmælt. Systursamtök Samtaka  78 hafa farið í skóla og nú leikskóla til að kynna transheiminn. Við erum komin langt út fyrir það sem teljast má eðlilegt. Sorglega er að þeir kennarar sem taka þessu ekki þegjandi og hljóðalaust eru þaggaðir niður.

Helga Dögg Sverrisdóttir, 27.1.2023 kl. 12:16

4 Smámynd: Baldur Gunnarsson

,,En hverjum þeim, sem tælir til falls einn af þessum smælingjum, sem á mig trúa, væri betra að vera sökkt í sjávardjúp með mylnustein hengdan um háls."

Matteus 18:6

Baldur Gunnarsson, 27.1.2023 kl. 17:48

5 Smámynd: Baldur Gunnarsson

"There are few things more dishonorable than misleading the young."

Thomas Sowell 

Baldur Gunnarsson, 27.1.2023 kl. 17:58

6 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Perrahátturinn er orðinn þjóðarböl. Þeim leyfist að heilaþvo börn á skólaaldri, fá þau til að efast um kyn sitt og leiða þau út í að fara í aðgerðir sem limlesta líkama þeirra. Þessi sömu börn eru of ung til að geta keypt sér tóbak eða vín, þau eru of ung til að láta setja á sig húðflúr, en mega taka ákvörðun um limlestingar á líkama sínum, aðgerðir sem ekki verða afturkræfar.

Það þarf að stöðva þetta lið sem fer svona fram, það hefur nú þegar fengið of mikið svigrúm í þjóðfélaginu, aðgerðir þeirra er þjóðarböl.

Tómas Ibsen Halldórsson, 27.1.2023 kl. 18:51

7 Smámynd: Helga Dögg Sverrisdóttir

Tómas Ibsen Halldórsson þú segir ,,Þeim leyfist að heilaþvo börn á skólaaldri," sem getur vissulega átt við. Hins vegar þurfa foreldrar leikskólabarna að rísa upp og mótmæla innrætingunni sem á sér stað með kynjafræðslu og staðreyndarvillum að kynin séu fleiri en tvö. Óviðunandi að á veggspjaldi skuli talað um að við giskum á kyn við fæðingu. Af hverju rísa foreldrar ekki upp? Skil það bara ekki!

Helga Dögg Sverrisdóttir, 28.1.2023 kl. 08:05

8 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Tek heilshugar undir með þér Helga Dögg, þú mælir rétt. Auðvitað þurfa foreldrar að láta í sér heyra, en það er búið að sá svo miklum ótta í fólk að flestir foreldrar þora ekki að tjá hug sinn. Það er búið að rugla svo mikið í fólki um kyn þetta og kyn hitt með allskonar villu kenningum.

Ég vildi sjá stjórnmálamenn og stjórnmálaflokka vera ærlega og tala gegn þessari villu sem hefur fengið að ganga allt of langt. Þjóðfélag okkar er orðið sjúkt af hræðslu og ótta.

GUÐ hjálpi okkur!!!

Tómas Ibsen Halldórsson, 28.1.2023 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband