Þriðjudagur, 31. ágúst 2021
Samfélag heiftar og haturs
Hatursorðræðan um nafngreint fólk, knattspyrnumenn og bakvarðasveit íþrótta, er ekki til marks um siðað samfélag.
Í fúsum fjölmiðlum er uppboð á ,,sögum" sem þessi og hinn hefur ,,heyrt". Bergmálshellir samfélagsmiðla magnar upp sögurnar. Fyrr en varir er sómafólk hundelt af æstum múgi sem vill að saklausir játi á sig glæpi sem sögur fara af en fáar sannanir.
Það er betra að búa í samfélagi þar sem góðu er trúað upp á náungann fremur en að ganga að illskunni vísri hjá meðborgurum sínum. Víst eru afbrot framin, og sum ljót illræðisverk. En það er ekki svo fólk sé unnvörpum glæpahyski.
Í samfélagi heiftar og haturs er ekki spurt um sekt eða sýknu. Lýðurinn vill blóð og það saklausa er jafn rautt og það seka.
![]() |
Drullan dunið yfir mann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 30. ágúst 2021
Guðni og Þórður Snær - Kjarninn og KSí
Fyrir þrem árum varð uppvíst kynferðisbrot á ritstjórnarskrifstofu Kjarnans. Þórður Snær Júlíusson ritstjóri vissi af brotinu en þagði. Þórður Snær útskýrði afstöðu sína fyrir þrem árum með þeim orðum að það er ,,alltaf þolenda að ákveða í hvaða farveg brot gegn þeim fara."
Guðni Bergsson fyrrum formaður KSÍ virti trúnað við þolanda kynferðisbrots þegar hann sagði ekki opinberlega frá afbrotinu. Alveg eins og Þórður Snær fyrir þremur árum.
En núna fær Guðni dembu á sig frá Þórði Snæ fyrir að stunda ,,þöggunartilburði."
Það verður ekki logið á rökvísi góða fólksins. Þegar nógu margir stunda grjótkastið kemur enginn auga á að sumir grýta úr glerhýsi.
![]() |
Stjórn KSÍ vissi af meintum brotum landsliðsmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 30. ágúst 2021
Talibanar hér og þar
Taliban er nemandi í hreinni trú. Hreintrúarstefna getur bæði verið veraldleg og annars heims. Sameiginlegt bókstafstrú er ofstæki enda hafa þeir trúuðu höndlað sannleikann og leita að villutrúarmönnum að kveikja í, krossfesta, skjóta eða niðurlægja opinberlega.
Upprunaland talibana er Afganistan og þeir tala pastú. Hreintrúarstefna og bókstafstrú eru aftur fyrirbæri sem kunna mörg tungumál.
Til dæmis íslensku.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 30. ágúst 2021
Nató eftir Afganistan
Nató verður að aftengja sig dómgreindarbresti Bandaríkjanna, segir þýskur öryggismálasérfræðingur, og forðast afganskt ástand í Írak í árslok.
En hvað er Nató yfir höfuð að þvælast í Afganistan og Írak? Nató var stofnað í upphafi kalda stríðsins að verjast kommúnisma og ásælni Sovétríkjanna. Kommúnisminn er dauður, Sovétríkin sömuleiðis en Nató sprelllifandi og þykist heimsveldi í miðausturlöndum og Asíu.
Afganistan sýnir svart á hvítu að vesturlönd vaða ekki inn á skítugum skónum og búa til vestrænt ríki í andstöðu við þjóð sem ekki er vestræn.
Vestræna hrokahugmyndin um eitt samfélag fyrir alla heimsbyggðina er dauð. En Nató lifir. Það er mótsögn.
![]() |
Flugskeytum skotið að flugvellinum í Kabúl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. ágúst 2021
Um félagslega ábyrgð nauðgana
Einstaklingar brjóta af sér kynferðislega. Það er ekki fjölskylda, vinir, skóli eða vinnustaður sem ber ábyrgð á afbrotinu, - heldur gerandinn.
Hvorki réttarríkið né siðareglur samfélagsins myndu virka ef gert yrði ráð fyrir félagslegri ábyrgð á kynferðisafbroti. Gerandinn fengi þá málsvörn í hendur að hann væri leiksoppur félagslegra kringumstæðna. Bæri ekki ábyrgð á eigin gerðum.
Þegar notuð eru hugtök eins og ,,nauðgunarmenning" er þeirri hugsun gefið undir fótinn að nauðgun og kynferðisbrot séu á ábyrgð samfélagsins. Nauðgari gæti borið við þeirri málsvörn að vera félagslega mótaður í leik- og grunnskóla og teflt fram ótal fræðiritum um að félagsmótun fari einmitt þar fram. Konur eru yfir 90 prósent leik- og grunnskólakennara.
Einstaklingurinn ber ábyrgð á eigin gerðum. Ábyrgð samfélagsins er að rannsaka meint brot og eftir atvikum ákæra og úrskurða um sekt eða sýknu. Dómstóll götunnar notar aftur skáldskap eins og ,,nauðgunarmenningu" í pólitískum tilgangi. Mannlífið verður ekki farsælla þegar dómstóll götunnar ræður ferðinni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. ágúst 2021
Nauðgunarmenning - ábyrgð kvenna
Ef það er til nauðgunarmenning bera konur sinn hluta ábyrgðarinnar á henni. Konur móta menninguna til jafns við karla. Í okkar menningu, þeirri íslensku, er konum gert hærra undir höfði en körlum. Þær eru ráðandi í sérfræðistéttum landsins, stjórna forsætisráðuneytinu, dómsmálum, lögreglunni, menntakerfinu, stærri hluta bankakerfisins og svo má áfram telja.
En það verður bið á því að kona stígi fram og játi ábyrgð á nauðgunarmenningunni.
Hvers vegna? Jú, orðið er pólitískt hugtak, tilbúningur sem á sér ekki stoð nema í umræðunni. Hugtakið er notað til að leggja ábyrgð á nauðgunum á valda staði í samfélaginu. Nauðgunarmenningu er hentugt að klína á sérvalin heimilisföng þar sem karl er í fyrirsvari.
Eins og dæmin sýna er karl sekur nánast um leið og hann er ásakaður um að hýsa nauðgunarmenningu. Pólitísk hugtök eru skæð vopn í höndum þeirra sem kunna með að fara.
Með nauðgunarmenningu er hægt að láta afmarkaða hópa, t.d. Vestamannaeyinga og fótboltastráka, sitja uppi með skömm og siðferðilega ábyrgð á afbrotum einstaklinga. Og það er gert miskunnarlaust. Enginn spyr um ábyrgð mæðra, systra, dætra og eiginkvenna gerenda. Sterkara kynið er stikkfrí.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 28. ágúst 2021
Katrín og Logi - eldgos og bílaumferð
Á 5 mánuðum hefur eldgosið í Fagradal losað meiri koltvísýring, CO2, í andrúmsloftið en allar vegasamgöngur á Íslandi losa í eitt og hálft ár. Ef aðrar gróðurhúsalofttegundir eru teknar með í reikninginn losar gosið við Grindavík álíka og bílaumferð í 3-4 ár.
Gosið er fimm mánaða, þykir lítið og er enn að.
Katrín í Vinstri grænum og Logi í Samfylkingu telja koltvísýring í andrúmslofti, og aðrar gróðurhúsalofttegundir, vera spurningu um líf og dauða.
Hvorki Katrín né Logi ræddu framlag jarðeldanna en varð tíðrætt um að fólk ætti að skattleggja ef það notaði bíla. Útblástur bíla er aftur aukaatriði í loftslagsframlagi Íslands.
![]() |
Beint: Ræða Katrínar á landsþingi VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 28. ágúst 2021
Samfélagsofbeldið gegn drengjum
Skipulagt ofbeldi er stundað gagnvart drengjum og ungum karlmönnum sem rænir þá lífsgæðum. Ofbeldið hefst þegar í grunnskóla.
Helga Hannesdóttir geðlæknir skrifar í Læknablaðið:
Í meira en áratug hafa konur verið um 70% af þeim sem ljúka háskólaprófi á Íslandi. Á þetta rætur að rekja til vanda í grunnskólanámi drengja eða eru þetta samfélagsleg áhrif? Brottfall drengja er um 50% meira en stúlkna í framhaldsskólum, sem eykur líkur á að háskólar verði kvenlægar stofnanir.
Menntun er lífsgæði sem æ stærri hluti drengja fer á mis við. Karlar verða hægt en örugglega ólæsir á menninguna. Þeim er vísað á jaðar siðmenningarinnar, fá verra atlæti og sagt að skammast sín fyrir það sem þeir eru.
Hvað gerist þegar ungum karlmönnum er sagt að þeir séu óalandi og óferjandi frummenn? Nú, vitanlega, þeir fara að haga sér sem slíkir.
![]() |
Hefur áhyggjur af geðheilsu nemenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 27. ágúst 2021
Prósentuvísindi
Einhver prósenta sem fær Codvid-19 deyr. Prósentan er hærri hjá þeim sem eru óbólusettir. Einhver prósenta, eða brot úr prósenti, af þeim sem fá bólusetningu fær aukaverkanir sem í geta jafnvel endað með dauða - en þar eru líkurnar afar litlar.
Út frá þessum prósentum keppist fólk við að mynda sér skoðun á Kínaveirunni og bólusetningum við henni. Töluverður hávaði er skoðanaskiptum andstæðra hópa.
Hér er önnur prósenta til að pæla í. Í venjulegu árferði deyr prósenta sjúklinga á heilbrigðisstofnunum landsins ótímabærum dauðdaga.
Samt dettur engum í hug að best væri að leggja af heilbrigðiskerfið, enda þótt það valdi ótímabærum dauðdaga prósentubrots sjúklinga.
Lyginni líkast er hve margir tapa dómgreind í prósentuvísindum.
Eina 100% örugga vitneskjan um lífið er að við deyjum öll áður en yfir lýkur.
![]() |
Hinir látnu voru erlendir ferðamenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 27. ágúst 2021
Fleiri framboð en minni áhugi
Almenningur sýnir stjórnmálum minni áhuga en pólitískum framboðum fjölgar. Hvernig er hægt að skýra þessa mótsögn?
Jú, auðveldara er en áður að efna til framboðs. Munar þar mestu um samfélagsmiðla. Sérviskuframboð geta með litlum tilkostnaði náð til fámennra kverúlantahópa sem þó eru nægilega stórir til að skila fimm prósentum og þingflokki.
Þess vegna höfum við pólitísk furðufyrirbæri eins og Pírata, Ingu og Gunnar Smára.
![]() |
Minnsta fylgishreyfing getur haft víðtæk áhrif |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)