Nató eftir Afganistan

Nató verður að aftengja sig dómgreindarbresti Bandaríkjanna, segir þýskur öryggismálasérfræðingur, og forðast afganskt ástand í Írak í árslok.

En hvað er Nató yfir höfuð að þvælast í Afganistan og Írak? Nató var stofnað í upphafi kalda stríðsins að verjast kommúnisma og ásælni Sovétríkjanna. Kommúnisminn er dauður, Sovétríkin sömuleiðis en Nató sprelllifandi og þykist heimsveldi í miðausturlöndum og Asíu.

Afganistan sýnir svart á hvítu að vesturlönd vaða ekki inn á skítugum skónum og búa til vestrænt ríki í andstöðu við þjóð sem ekki er vestræn.

Vestræna hrokahugmyndin um eitt samfélag fyrir alla heimsbyggðina er dauð. En Nató lifir. Það er mótsögn.

 


mbl.is Flugskeytum skotið að flugvellinum í Kabúl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband