Mánudagur, 26. júlí 2010
Aðeins aðlögun er í boð, annað er blekking
Á meðan umsóknin um aðild Íslands að Evrópusambandinu er ekki dregin tilbaka heldur aðlögunarferlið áfram. Á vefsetri Evrópusambandsins er samantekt um hvernig aðlögunarviðræður ganga fyrir sig en reglurnar voru síðast endurskoðaðar árið 2007. Viðræðurnar ganga út á að skipuleggja hvernig umsóknarríki tekur upp lög og reglur Evrópusambandsins.
Hér heima hefur málflutningur aðildarsinna gengið út á að við ættum ,,kíkja í pakkann." Öllum mál ljóst vera hvert innihaldið er. Evrópusambandið, með sínum kostum og göllum, er í boði og annað ekki.
Undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins geta aðeins verið tímabundnar. Í opinberri umræðu á Íslandi hefur ekki verið sýnt fram á að hagsmunum landsins sem best þjónað með inngöngu. Þvert á móti standa rök til þess að óbætanlegur skaði munu hljótast af inngöngu.
Íslandi hefur vegna best þegar þjóðin fer með forræði sinna mála. Framsal fullveldis til meginlands Evrópu er ekki í þágu íslenskra hagsmuna.
Við eigum að draga umsóknina tilbaka.
![]() |
Formlegar viðræður að hefjast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 26. júlí 2010
Ómar Vald og Magma: Sannfæring eða taxti?
Ómar Valdimarsson er almennatengill með bloggsíðu. Í kvöld mærir hann Magma og hnýtir í andóf gegn samningum sem tryggja kanadísk-sænska skúffufyrirtækinu auðlindanýtingu til áratuga.
Ómar þarf að svara því hvort hann skrifi samkvæmt sannfæringu eða taxta.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 25. júlí 2010
Kosningar strax
Kosningar eru samtal þjóðar við sjálfa sig. Höfuðborgarbúum leið í vor eins og fávitum og kusu bjálfaflokkinn. Akureyringum leið eins og allt væri betra en fjórflokkurinn og leiddu til valda valkost. Við þurfum þingkosningar til að hreinsa út af alþingi og ef það þýðir að eðjót koma í stað spillingarliðsins verður svo að vera.
Afgreiðum fjárlögin í október, rjúfum þing og kjósum í desember.
![]() |
Stjórnin óttast kosningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 25. júlí 2010
Góður ESB-samningur er ekki málið
Forysta Samfylkingarinnar skilur ekki kjarna málsins í umræðunni um Evrópusambandið. Þjóðin vill ekki inngöngu í sambandið vegna þess að aðild er ekki í samræmi við grundvallarhagsmuni Íslands. Árni Páll fetar í fótspor Össurar og talar um að ná góðum samningi. Búðarlokuhugsunarháttur af þessu tagi er til marks um hversu illa tengd forysta Samfylkingarinnar er við þjóðina.
Evrópusambandið hentar ekki íslenskum hagsmunum og enginn samningur breytir þeirri staðreynd.
![]() |
Meirihluti með góðum samningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 25. júlí 2010
Lýðræðishallinn í Brussel
Tveir reyndir blaðamenn kveðja Brussel í sumar og skrifa að skilnaði samantekt um stöðu Evrópusambandins. Báðir eru blaðamennirnir hlynntir tilrauninni með Evrópusambandið og vonast til að hún heppnist. Efasemdir beggja snúa fyrst og fremst að lýðræðishalla Evrópusambandsins.
Tony Barber sá um Brussel-skrifstofu Financial Times þangað til í sumar. Hann segir Evrópusambandið standa frammi fyrir þrem áskorunum. Í fyrsta lagi að stuðla að friði og hagsæld í nærsveitum; Balkanskaga, Tyrklandi og Úkraínu. Í öðru lagi að gyrða sig í brók í efnahagsmálum og loks er það lýðræðishallinn sem er átakanlega nakinn.
Dálkahöfundur Karlamagnúsar í Economist (nafnleynd er á blaðamönnum tímaritsins) rifjar upp merkisatburði í lífi Evrópusambandsins á vaktinni hans sem stóð í fimm ár. Lýðræðishallinn er honum nærtækur og hann segir örsögu um viðbrögðin í Brussel við írska nei-inu í þjóðaratkvæðinu um Lissabon-sáttmálann 2008.
Sitting on a gilt armchair in a panelled stateroom, I was told by the head of a Brussels think-tank that the Irish result proved the idiocy of putting EU treaties to the people. Fucking voters, he declared, languidly extending one arm so the hovering steward could refill his champagne glass. I mean, fucking voters, what do they know? I still wish I had walked out.
Þegar skynsamir aðildarsinnar eru gangrýnir á framtíð Evrópusambandsins er kannski ástæða til að þjóðir á jaðri álfunnar íhugi sinn gang og dragi tilbaka vanhugsaða aðildarumsókn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 24. júlí 2010
Hlutverkaskipti Samfylkingar og Vg
Til skamms tíma var Vinstrihreyfingin grænt framboð jaðarflokkur í íslenskum stjórnmálum en Samfylkingin stóð nærri miðju. Evrópustefna Samfylkingarinnar og auðmannadekur hefur málað flokkinn út í horn á meðan Vg sýnir sig vera ábyrgan flokk hagsmuni almennings að leiðarljósi.
Eftir hrun er lítill áhugi hjá þjóðinni að fara í pólitískar útrásaræfingar með umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Ríkjandi er tortryggni gagnvart fjárfestingum útlendinga hér á landi, einkum ef um er að ræða auðlindir. Í þessum málaflokkum báðum er Vg með stefnu sem höfðar til þjóðarinnar á meðan Samfylkingin er jaðarflokkur.
Vg stjórntækur flokkur en Samfylkingin er ekki húsum hæf.
![]() |
Draugasögur um afarkosti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 24. júlí 2010
Þorgerður Katrín er haldreipi Össurar
Össur Skarphéðinsson sagði í viðtali í gær að stuðningur við aðildarumsókn ætti meira fylgi á alþingi en áður. Steingrímur J. sver af sér vitneskju um að þingmenn Vg séu hlynntari umsókninni en þeir hafa gefið upp. Auðvitað á Össur við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokksins sem tilkynnti í vikunni að hún kæmi glaðbeitt til þings í haust.
Þorgerður Katrín tók sér frí frá þingstörfum vegna niðurfellingar skulda sem hún og eiginmaðurinn nutu frá Kaupþingi. Þegar Þorgerður Katrín mætir til þings á ný verður spurt um fjármögnun kosningabaráttu hennar síðustu ár.
Á alþingi 16. júlí 2009 þegar greidd voru atkvæði um tillögu Össurar að sækja um aðild að Evrópusambandinu sat Þorgerður Katrín einn þingmanna Sjálfstæðisflokksins hjá. Síðan hefur hún ásamt Benedikt Jóhannessyni stofnað félagsskap aðildarsinna.
Össur er eðlilega feginn að fá liðstyrk Þorgerðar Katrínar.
![]() |
Afstaða VG til ESB óbreytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 24. júlí 2010
Evran og lífskjör í ESB
Aðildarsinnar klifa á kostum þess að fá evru sem gjaldmiðil. Skilaboðin eru þau að með evru myndu lífskjör batna á Íslandi. Þorsteinn Pálsson skrifar í Fréttablaðið í dag
Sjálfstæðisflokkurinn og VG ætla að treysta á krónuna til frambúðar. Á sama tíma hafna útvegsmenn henni vegna óhagræðis. Þeir ætlast hins vegar til að heimilin sætti sig við það óhagræði.
Bókhaldslegt uppgjör í evru eða dollar fyrirtækja í útflutningi er fullkomlega eðlilegt. Áróður Þorsteins um að heimilin sitji uppi með ,,óhagræði" af krónunni er tilraun til að fá fólk til að trúa að mynt skapi auð. Fast gengi er engin trygging fyrir stöðugleika eins og Lettar þekkja á eigin skinni.
Lífskjör hér á landi eru til muna betri en að meðaltali í evru-löndum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 23. júlí 2010
Össur í orrustu fyrir undanþágur
Eins og aðrir á Össur Skarphéðinsson fulla rétt til að haga sér eins og hálfviti. Í rúmt ár er utanríkisráðherra búinn að undirbúa aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það líður að stóru stundinni og rúnnaði íslenski ráðherrann mætir evrópskum starfsbræðrum sínum. Hvað ætlar að Össur að segja? Jú, stóru málin eru tvö
Það er sjávarútvegur og landbúnaður, þó vitaskuld séu önnur atriði einnig reifuð. Megináherslan er þó á það tvennt.
Stóru málin eru sem sagt ætlaðar undanþágur frá reglum félagsskaparins sem kallar saman heila ríkjaráðstefnu vegna umsóknar Íslands.
Það er vitanlega ekki heil brú í málflutningi Össurar. Siðmenntaðar þjóðir þar sem ráðherrar eru með sæmilega dómgreind draga ekki ríkjasamtök á asnaeyrunum. Ef minnsti vilji væri hjá íslensku þjóðinni að ganga í Evrópusambandið væru þung og sannfærandi rök fyrir inngöngu sem utanríkisráðherra landsins myndi reifa á ríkjaráðstefnunni. Engum slíkum rökum er til að dreifa.
Össur Skarphéðinsson hagar sér eins og hálfviti á kostnað Íslendinga.
![]() |
Aukinn stuðningur við aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 23. júlí 2010
Árni Þór gengur erinda Samfylkingar
Samfylkingin er einangruð í afstöðu sinni til Evrópusambandsins. Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn sem vill inngöngu á meðan aðrir flokkar eru ýmist harðir á móti, þ.e. Sjálfstæðisflokkur og Vg, eða myndu íhuga umsókn ef Evrópusambandið breyttist - Framsóknarflokkurinn.
Árni Þór Sigurðsson var kjörinn á þing fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Í júní ályktaði flokksráð Vg á eftirfarandi hátt
Flokksráðsfundur VG samþykkir að vísa tillögu um að aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði dregin til baka, til málefnaþings sem haldið verður á haustmánuðum.
Forsendur ESB umsóknar eru breyttar og í því ljósi er mikilvægt að málið verði tekið til gagngerrar endurskoðunar. Jafnframt felur flokksráð stjórn flokksins að skipa hið fyrsta undirbúningshóp til að halda utan um meðferð málsins fram að málefnaþinginu vegna fyrirhugaðs málefnaþings.
Flokksráð ítrekar andstöðu VG við aðild að Evrópusambandinu og vísar til fyrri samþykkta í þeim efnum.
Árni Þór veit jafnvel og allir sem fylgjast með stjórnmálum að meginþorri flokksmanna Vg er á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu og vill draga umsóknina tilbaka.
Árni Þór ætti að sýna sitt rétta andlit og ganga í Samfylkinguna.
![]() |
Ganga erinda landsfundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)