ESB eyðileggur 17. júní, Samfylking sátt

Á vettvangi íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar var lögð fram bókun í dag þar sem þorri viðstaddra studdi: 

Þeirri ósk er beint til ríkisstjórnar Íslands að sjá til þess að skugga verði ekki varpað á hátíðarhöld á þjóðhátíðardegi Íslendinga með því að að ákveðið verði að hefja aðildarviðræður á milli Íslands og Evrópusambandsins á þeim degi.  Hér er um viðkvæmt deilumál að ræða og minna má á að meirihluti þjóðarinnar hefur lýst sig andvígan aðild að sambandinu.

Einn nefndarmanna, fulltrúi Samfylkingar, mótmælti:

 Lögð fram eftirfarandi bókun Oddnýju Sturludóttur, Samfylkingu:
ÍTR er fáránlegur vettvangur til að ræða utanríkismál, hvað þá hvenær ESB heldur fundi sína. 17. júní á að vera dagur barnanna í borginni - ekki andstæðra fylkinga í Evrópumálum.

Samfylkingunni finnst allt í lagi að ESB ryðjist inn á 17. júní hátíðarhöld með yfirlýsingu um að sambandið ætli að taka upp viðræður þvert á margítrekaða andstöðu þjóðarinnar.


Ísland flýtur, ESB sekkur

Evrópusambandið sem Samfylkingin sótt um aðild að í fyrra er ekki lengur í boði. Fjármálakreppan mun breyta ESB varanlega. Í meginatriðum stendur Evrópusambandið frammi fyrir tveim kostum. Annars vegar að viðurkenna ofmetnað sambandssinna og rifa seglin með því að slá af evruna og hverfa frá samrunaþróun álfunnar. Hins vegar að verja evruna með því að auka miðstýringu á efnahagslífi aðildarþjóðanna.

Nær öruggt er að Evrópusambandið mun taka seinni kostinn, auka miðstýringuna og gefa framkvæmdastjórninni í Brussel auknar valdheimildir til afskipta af innanríkismálum aðildarþjóða.

Vandamálapakki ESB er risastór og vandséð hvernig álfan kemst út úr erfiðleikunum án verulegra umbrota. 

Ísland á að nýta sér fjarlægðina, eiga góð samskipti við Evrópusambandið en afþakka aðild.

Drögum umsóknina tilbaka.


mbl.is Grænt ljós gefið 17. júní?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkalýðselítan vælir

Skrifstofufólk ASÍ hefur á umliðnum árum einkum búið í haginn fyrir sjálft sig, dekkað sér borð á kostnað lífeyrisþega og stutt ESB-inngöngu Samfylkingar í trássi við hagsmuni óborinna kynslóða. Þegar verkalýðselítan sér fram á þrengingar í lífeyrisiðnaði og hugguleg Brussel-tilvera ekki í sjónmáli er gripið til belgings.

Verkalýðselítan þarf að svara til saka fyrir meðvirkni með auðmönnum á útrásartímum þar sem peningum lífeyrissjóða var fleygt í bullrekstur og að hafa hugsað meira um sérhagsmuni en almannahagsmuni í Evrópusækni.

Víst brást stjórnmálastéttin í heild sinni - en verkalýðselítan tók þátt í sukkinu og gætti ekki hagsmuna launþega. Forseta ASÍ ferst illa að þenja sig.


mbl.is Íhuga verkföll í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magma-fundur dregur línu í sandinn

Um 50 manns mættu síðdegis á fund í Höfðatúni til að ræða Magma-málið og viðbrögð. Af þingmönnum mættu Ögmundur Jónasson, Lilja Mósesdóttir og Birgitta Jónsdóttir. Farið var yfir málið vítt og breitt.

Helsta niðurstaða fundarins kemst fyrir í orðum Þorleifs Gunnlaugssonar borgarfulltrúa sem sagði:

Ef kaup Magma á HS Orku ná fram að ganga í skjóli ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. er ríkisstjórnin dauð.


Kennitöluflakk Íslandsbanka í Magma-málinu

Íslandsbanki hannaði atburðarás í kringum kaupin á HS Orku sem miðar að því að komast yfir eigur almennings. Kennitöluflakk, auðsveipur bæjarstjóri og kanadískur braskari eru aðilar að málinu en stóri gerandinn er Íslandsbanki og Árni Magnússon fyrrverndi ráðherra.

Meðhlauparinn í plotti Íslandsbanka er Ásgeir Margeirsson. Hann var forstjóri þegar Glitnir og FL group, þ.e. Jón Ásgeir Baugsstjóri, Hannes Smárason og fleiri, ætluðu að gera út á íslenskar orkuauðlindir. Þeir fengu með sér þekkta fjárfesta s.s. Ólaf Jóhann rithöfund og Wolfenson-fjölskylduna

Í októberhruninu 2008 hrökkluðust fjárfestar frá Geysi Green. Íslandsbanki, sem var reistur á grunni gjaldþrota Glitni, ákvað að halda orkuútrásinni áfram og keypti hlut Ólafs Jóhanns og fleiri. Ásgeir var áfram forstjóri.

Í árslok 2009 þurfti að finna nýja leið í orkuútrásinni. Íslandsbanki og Árni Magnússon höfðu fundið nýjan útlending til að vinna með. Leikrit var sett á svið þar sem Ásgeir Margeirsson sagði upp störfum hjá Geysir Green. Tveim mánuðum síðar er Ásgeir kynntur sem forstjóri Magma á Íslandi.

Íslandsbanki ætlar sér í orkuútrás með auðlindir almennings hvað sem tautar og raular. Bankinn spinnur blekkingarvef og reynir að fela sóðaslóðina. Íslandsbanki getur auðveldlega náð taki á stórskuldugum sveitarstjórnarmönnum sem spiluðu djarft og töpuðu.

 


ESB-milljarðar Samfylkingar og orðsporið

Umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu mun kosta um 6 - 7 milljarða króna. Samfylkingin er ein um að halda umsókninni til streitu þótt forsendubrestur hafi orðið með því að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar er mótfallinn aðild og ESB er í uppnámi vegna efnahagskreppu.

Þegar kemur að því að skera niður í opinberum rekstri verður spurt hvort sá niðurskurður væri nauðsynlegur ef umsóknin væri dregin tilbaka. 

Fyrir utan beinan kostnað af dauðadæmdri umsókn verður óbeinn kostnaður verulegur þegar það rennur upp fyrir Evrópusambandinu að það hafi verið haft að fífli. 

Bjölluat Samfylkingarinnar í Brussel verður skrifað á reikning íslensku þjóðarinnar.


mbl.is ESB efast um umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB efast um forystu Samfylkingar

Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir Evrópuþingið um umsókn Íslands er bent á veikleika í forystu Samfylkingarinnar til að vinna að framgangi stjórnarmála. Skýrslan er dagsett 17. maí og ekki ætluð til dreifingar.

Í skýrslunni segir að kannanir sýni að Vinstri grænum vaxi ásmegin en Samfylkingin tapi fylgi. Bent er á að margir efist um það hversu hæf forysta Samfylkingarinnar sé til að leiða ríkisstjórnina. Orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur fyrrverandi formanns Samfylkingarinnar eru ekki tilfærð en hún vakti athygli á forystuleysi í Evrópumálum.

í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar er talið að borgarstjórnarkosningarnar eftir rúma viku muni sýna hversu vel Samfylkingin stendur meðal þjóðarinnar.

 


500 m.kr. sóað í ónýta stjórnmálaflokka

Ríkisframlag til stjórnmálaflokka á alþingi er um hálfur milljarður króna. Kjósendur eru í uppreisn gegn þessu flokknum enda almennt mat að þeir þjóni ekki hagsmunum almennings. Stóru spillingarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin, standa keikir og neita að taka til í eigin húsi. Framsóknarflokkurinn líður fyrir fortíð sína.

Vinstri grænir, sem eiga að heita óspilltir, eru aumingjar til verka, samanber Magma-málið. Ríkisframlag til stjórnmálaflokka er réttlætt með því að flokkarnir eru vettvangur lýðræðislegrar umræðu. Á umliðnum árum breyttu flokkarnir sér í markaðstorg þar sem væntanlegir þingmenn og borgarfulltrúar seldu sig auðmönnum.

Þegar það liggur fyrir að starfandi stjórnmálaflokkar standa ekki undir nafni er himinhrópandi að þeir leysi til sín hálfan milljarð króna af opinberu fé. Vel að merkja eru þessir fjármunir til viðbótar við launakostnaðinn að halda upp 63 þingmönnum starfsliði fyrir þá.

 


Ensk lög í evrulandi

Írar verða eins og aðrir að hósta upp evrum í samevrópskan björgunarpakka handa Grikkjum. Á Írska þinginu er frumvarpið um reddingarsjóðinn ein síða en fylgiskjölin margir tugir. Á stað kemur þetta fram

This Agreement and any non-contractual obligations arising out of or in connection with it shall be governed by and shall be construed in accordance with English law.

Bretland er ekki hluti af evrulandi en samt eiga ensk lög að gilda um samkomulagið. Sniðugt.


Evran komin á hækjur - hvað segja aðildarsinnar?

Evran er komin á hækjur hafta sem eiga að koma í veg fyrir að hún annað tveggja hrynji sjálf eða valdi gjaldþroti Suður-Evrópuríkja. Líkt og íslenska krónan eftir hrun þarf evran á opinberum inngripum að halda. Kverúlantahagspekingar á Íslandi hafa reynt að telja okkur trú um að upphaf og endir á efnahagsvandræðum þjóðarinnar sé krónan og nauðsynlegt sé að skipta henni út fyrir evru.

Þegar það liggur að evruríki sum hver standa á barmi gjaldþrots og gjaldmiðillinn sjálfur er í uppnámi skyldi ætla að aðildarsinnar myndu hugsa sinn gang og endurskoða forsendurnar fyrir umsókn Íslands að ESB.

Eins og allir vita stendur ESB fyrir Evran Sekkur Bara.


mbl.is ESB vill samræmdar aðgerðir gegn spákaupmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband