Bakmút fallin, Hiróshíma-friður?

Yfir 200 daga umsátri um úkraínsku borgina Bakmút lauk í gær með rússneskum sigri. Selenskí forseti Úkraínu var í frægustu borg Japans, að hitta vestræna bakhjarla, þegar hann fékk fréttirnar. ,,Í dag færist friðurinn nær," sagði forsetinn. Hiróshíma-friður er annað orð yfir uppgjöf.

Opinbera frásögnin er önnur. Úkraínumenn eiga að fá F-16 herþotur til að breyta vígstöðunni. Áður fékk Selenskí undravopn eins og HIMARS eldflaugakerfi og Patriot-loftvarnir sem áttu að valda straumhvörfum en gerðu ekki.

Meint undravopn vesturlanda skipta ekki sköpum. Fjöldi hermanna vegur þyngra. Rússland er fimm sinnum stærra að mannfjölda en Úkraína.

Veigamesti einstaki þátturinn í stríðsátökunum er jafnframt sá sem erfiðast er að henda reiður á. Það er þanþol samfélaganna tveggja, úkraínska og rússneska. Mannslífum er fórnað í þúsundavís og verðmætum sóað. Hve lengi getur það haldið áfram án þess að veruleg ókyrrð grafi um sig? Enginn veit svarið við þeirri spurningu, ekki einu sinni valdhafar í Kænugarði og Kreml. Er átök dragast á langinn færist sá tími nær að annað tveggja samfélaganna í Garðaríki eða Bjarmalandi segir njet, hingað og ekki lengra. Augnablikið er kennt við október 1917.

Velgengi á vígvelli eykur þanþolið en mótgangur veit á vonleysi. Fall Bakmút er sálfræðilegur sigur Rússa en veikleikamerki Úkraínu.

Til að rétta hlut sinn er Úkraínu brýnt að sýna árangur á vígvellinum. Boðuð stórsókn í Suður-Úkraínu lætur ekki á sér kræla. Töfin gæti stafað af ótta við að sú aðgerð yrði síðasti naglinn í líkkistuna. Sókn tapar fleiri hermönnum en vörn, að öðru jöfnu. Stórskotalið er banvænsta vopnið í þessu stríði. Rússar eru sagðir í færum að skjóta 20-30 þúsund fallbyssuskotum á dag á afmörkuðum vígvelli, Úkraínumenn helmingi færri. Ólíku er saman að jafna.

Gríðarlegar mannfórnir í einni stríðsaðgerð er skilaði litlum landvinningum gætu riðið baggamuninn í Garðaríki. 

Í Die Welt birtist grein er segir snögg stríðslok möguleg. Er annar stríðsaðilinn sér fram á tap innan fyrirsjáanlegs tíma, þriggja til sex mánaða, leitar hann eftir vopnahléi. Annað orð yfir Hiróshíma-frið.


mbl.is „Í dag færist friðurinn nær“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðamenn sem almannatenglar, listamaður sem málaliði

RSK-miðlar nýttu sér þjónustu Lasse Skytt sem starfar jöfnum hönum sem blaðamaður og almannatengill. Almenna skilgreiningin á blaðamanni er að hann starfar í þágu almannahagsmuna, en almannatengill selur þjónustu sína verkkaupa.

RSK-miðlar eru hinum þræðinum þekktir fyrir skáldskap, bjuggu t.d. til framhaldssögu um skæruliðadeild Samherja, úr gögnum Páls skipstjóra Steingrímssonar, sem fengin voru með byrlun og þjófnaði. 

Skáldskapurinn leiðir ritstjórnir RSK-miðla á slóðir listamanna sem búa til ímyndir eftir pöntun verkkaupa, líkt og almannatenglar.

Lista­maðurinn Odee, Oddur Ey­steinn Frið­riks­son, gerði myndverk í þágu RSK-miðla þar sem sagði að Samherji bæðist afsökunar að hafa stundað veiðar og vinnslu í Namibíu. Afsökunarímynd Odee er búin til úr sektarímynd RSK-miðla. 

Rétt er að útgerðin er með hreinan skjöld þar syðra og þarf ekki að biðjast afsökunar á einu eða neinu. Enda eiga namibísk yfirvöld ekkert sökótt við Samherja.

Aftur hafa RSK-miðlar frá nóvember 2019, með Kveiks-þætti á RÚV, haldi fram ósökunum um að norðlenska útgerðin hafi framið stórkostleg rangindi í Afríkuríkinu. Ásakanir RSK-miðla hafa verið rannsakaðar á Íslandi og Namibíu en ekkert misjafnt kom fram. En sektarímyndin lifir á raðfalsfréttum.

Hver er listamaðurinn sem heldur skáldskap RSK-miðla á lofti? Í frétt Hringbrautar á síðasta ári segir:

Lista­maðurinn Odee, eða Oddur Ey­steinn Frið­riks­son, hefur verið sakaður um mynd­stuld á verkum er­lendra lista­manna í tengslum við um­búðir sem hann hannaði fyrir Opal sæl­gætið.

og

Árið 2014 var greint frá því að honum hefði verið fleygt út af síðunni Devianart fyrir að nýta list­sköpun annarra en í kjöl­farið rigndi yfir Odee nei­kvæðum skila­boðum og var hann út­hrópaður sem þjófur. Árið 2016 hótuðu svo teiknarar hjá Mar­vel og Dis­n­ey honum öllu illu fyrir sam­bæri­legar sakir en þá hafði Odee nýtt verk þeirra í eigið verk sem var sett upp á flug­vellinum í Eski­firði á sínum tíma.

Líkur sækir líkan heim, mætti segja um listamanninn Odee og lygaskáld RSK-miðla. Munurinn er þó sá að ekki er vitað til þess að Odee sé sakborningur en fimm blaðamenn eru einmitt undir rannsókn vegna aðildar að byrlun og gagnastuldi.

Sakborningarnir segjast grunlausir um hvað lögreglan sé að rannsaka. Allir og amma þeirra vita að gagnastuldurinn var í þágu RSK-miðla og engra annarra. RSK-miðlar vissu með fyrirvara að síma skipstjórans yrði stolið, keyptu síma sem var til reiðu þegar skipstjórinn var gerður óvígur með byrlun.

Aðeins í heimi ímyndunarinnar eru blaðamenn RSK-miðla saklausir. Það er einmitt ástæðan fyrir kaupum RSK-miðla á þjónustu almannatengla og listamanna: til að viðhalda ímyndinni. 


Pútín saklaus af Trump

Pútín skóp sigur Trump í forsetakosningunum 2016 var viðkvæðið alla forsetatíð Donald Trump. Fjölmiðlar klöppuðu þann stein í samvinnu við stjórnmálamenn.

En það var lygi frá rótum. Fréttin um að Pútín sé alsaklaus af Trump fer ekki hátt. RÚV sagði þó frá:

John Durham, sérstakur saksóknari, komst að þeirri niðurstöðu að engar eiginlegar sannanir væru fyrir meintu leynimakki Rússa og Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í kosningabaráttu hans um árið 2016. Alríkislögreglan í Bandaríkjunum hefði ekki átt að hefja allsherjar rannsókn á þeim forsendum sem voru til staðar.

Íslandsvinurinn Nigel Farage setur málið í samhengi. Dave Rubin er með samantekt.

Móðursýkin um að Pútin hefði ráðið úrslitum í bandarísku forsetakosningunum 2016 var tilbúningur sem frjálslyndir fjölmiðlar héldu á lofti í samvinnu við frjálslynda vinstrimenn. 

Trump er og var afurð bandarískrar stjórnmálamenningar þar sem íhaldsmenn og frjálslynda vinstrið eru meginpólarnir. 


RSK-miðlar og listræn fjárkúgun

RSK-miðlar bjuggu til Namibíumálið. Eina heimildin fyrir raðfréttir um meint afbrot Samherja í Namibíu var Jóhannes Stefánsson uppljóstrari. 

RSK-miðlar (RÚV, Stunin og Kjarninn, nú Heimildin) fóru með staðlausa stafi þegar þeir tók upp á sína arma ásakanir Jóhannesar. Við vitum það. Heimildin fyrir þeirri vitneskju er norska útgáfan Aftenposten-Innsikt. 

RSK-miðlar fengu danskan blaðamenn, Lasse Skytt, sem einnig starfar sem almannatengill, til að skrifa grein upp úr Jóhannesi um meinta spillingu í Namibíu. Norska útgáfan birti greinina en varð að biðjast afsökunar á tiltækinu. Afsökunin er ítarlegri en flestar sem birtast í fjölmiðlum. Ritstjóri norsku útgáfunnar taldi enda brotið alvarlegt. Kjarni málsins er eftirfarandi:

Í afsökunarbeiðni Innsikt er tekið fram að útgáfan hafi ekki séð neinar trúverðugar heimildir um að Jóhannes hafi fyrir hönd Samherja mútað embættismönnum í Namibíu. ,,Það hefði átt að koma fram í greininni," segir Innsikt, ,,að Jóhannes er einn til frásagnar um að hafa stundað mútur."

Danski blaðamaðurinn/almannatengillinn Lasse Skytt er í felum síðan Aftenposten baðst forláts á falsfréttinni. Enginn fjölmiðill spyr Skytt hvað RSK-miðlar borguðu honum fyrir þjónustuna og hvernig hann réttlætir að skrifa skáldskap en kalla frétt.

Einn til frásagnar þýðir að engin gögn eða annar vitnisburður styður frásögn uppljóstrarans. Jóhannes er ónýt heimild, ekki er orð að marka sem maðurinn segir. Með allar sínar ásakanir gegn Samherja og meintar sannanir þorir Jóhannes ekki til Namibíu að leggja málið fyrir þarlend yfirvöld. Hann er ekki með neitt í höndunum nema eigin skáldskap. En Jóhannes gasprar á Íslandi og nýtur stuðnings RSK-miðla og friðhelgi annarra fjölmiðla. Afleiðingin verður að trúgjarnir kaupa síbyljuna. Enda var það alltaf ætlunin að gera fjöður að fimm hænum.

Viðtengd frétt segir frá listrænni fjárkúgun þar sem ungur maður á RSK-glapstigum reynir að vekja á sér athygli og ná sér pening á siðlausan hátt. Undirbúningsvinna gjörningsins fór fram á Glæpaleiti. Án raðfalsfrétta þaðan væri ekkert tilefni uppákomunnar. Vonandi fer ekki fyrir unga manninum eins og blaðamönnum RSK-miðla sem bíða ákæru í þeim anga Namibíumálsins er snýr að byrlun og gangnastuldi. Siðleysi og lögbrot haldast gjarnan í hendur.


mbl.is Reyndi að hafa fé af Samherja með „listgjörningi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrútið slátur á heimavist kvenna

Artemis Langford fékk inngöngu í heimavist kvenna í Wyoming-háskóla. Í ærslum stúlknanna fékk Langford ekki hamið náttúrulegt eðli og reis hold. Ótti og óhugur greip um sig vegna bugspjótsins sem engar rétt fæddar konur kannast við að eiga í vopnabúrinu.

Kemur á daginn að Artemis Langford er karl. Ekki smár og pasturslegur, heldur tæpir 190 sentímetrar á hæð, þrekinn og orðinn 21 árs. Ungi maðurinn taldi þénugt að kalla sig konu, skellti framan í sig varalit, dillaði bakhlutanum og fékk inngöngu í kvennabúrið, afsakið, heimavist kvenna.

Í háskólafræðum er Langford transkona þar sem hann samsamar sig kvenleikanum. Þykja rétt fræði og sönn hjá pólitíska rétttrúnaðinum. Þar sem áður voru fyrirmyndir eru nú fórnarlömb.

Breska útgáfan Telegraph upplýsir að sjö stúlkur á heimavistinni standi að málssókn til að banna Langford og slátrinu aðgengi. Þær vilja einnig skaðabætur.

Stjórn heimavistarinnar harmar félagslegan vanþroska stúlknanna sjö að vilja ekki deila sameiginlegum baðherbergjum og búningsklefum með kvengerðum reðurhafa.  


Vitalía, Edda, Jóhannes og vegferð fjölmiðla

Engin frétt er betri en heimildin fyrir henni. Ef heimildin er ótrúverðug verður fréttin ótrúverðug. Ef heimildin lýgur er fréttin ósönn.

Þrjár heimildir raðfrétta um menn og málefni hafa reynst ósannar og hefðu aldrei átt að vera metnar trúverðugar af fjölmiðlum.

Vítalía var heimild fyrir ofsóknum fjölmiðla gagnvart fjórum mönnum. Flest bendir til að hún hafi farið með þvætting í auðgunarskyni. Edda Falak var áhrifavaldur sem Heimildin gerði að blaðamanni. Hún bjó til vettvang þar sem æra manns og annars var kurluð en reyndist sjálf lygalaupur og ritþjófur. Edda léði Vítalíu trúverðugleika sem heimild; lygi elur af sér lygi. Jóhannes Stefánsson uppljóstrari í Namibíumáli RSK-miðla er ógæfumaður sem enginn fjölmiðill vandur að virðingu sinni tæki trúverðugan.

Blaðamenn sem ekki kunna heimildarýni og búa ekki að dómgreind til að aðgreina ótrúverðugar heimildir frá trúverðugum eru ekki starfi sínu vaxnir. Þeir eru ekki hótinu betri en Gróa á Leiti.

Enginn fjölmiðill hefur beðist afsökunar á að hlaupa eftir slúðri og gróusögum þremenninganna. Hvergi sést vottur af sjálfsgagnrýni að ekki sé talað um auðmýkt blaðamanna sem gleyptu hráar tröllasögurnar og gáfu þeim lögmæti.

Á hvaða vegferð eru fjölmiðlar?

Jú, þeirri að draga upp tiltekna mynd af samfélaginu. Að glæpamenn tröllríði húsum, stundi kynferðisglæpi, svik og stórþjófnað.

Hvers vegna gera fjölmiðlar þjóðinni þann óleik að telja henni trú um að mannlífið sé forarpyttur afbrota og óheiðarleika?

Jú, til að valdefla sjálfa sig. Með því að þykjast afhjúpa spillingu og glæpi gera fjölmiðlar sig gildandi og krefjast ríkisfjár að borga ritstjórnum laun að skálda óhæfuverk. Svikamylla þar sem glæpasögur gefa vel í aðra hönd.

Á daginn mun koma að afbrot og lögleysa hafa grafið um sig, ekki í samfélaginu almennt, heldur hjá fjölmiðlum og blaðamönnum. Glæpaleiti er miðstöðin, RSK er lykilorðið.

 

 


Evrópa tapar í Úkraínustríðinu, burtséð úrslitum

Selenskí forseti fékk Karlsverðlaunin sem veitt eru fyrir starf í þágu sameiningar Evrópu. Verðlaunin eru kennd við Karlamagnús keisara á níundu öld sem lagði grunninn að Heilaga rómverska keisaradæminu. Höfuðborg keisarans var þýska Aachen og þar eru verðlaunin veitt.

Selenskí og Úkraína fá ekki þann stuðning sem myndi ráða úrslitum í stríðinu við Rússa, hermenn. Án fleiri evrópskra hermanna getur Úkraína í mesta lagi gert sér vonir um snautlegt jafntefli við Rússa. Meiri líkur eru á tapi.

Evrópska hermenn fær Úkraína ekki þar sem hálfvelgja einkennir stuðning ESB við Selenskí. Peningar og vopn eru send á austurvígstöðvarnar þar sem úkraínsku blóði er úthellt fyrir evrópsk ,,gildi." Karlamagnús var landvinningamaður, jók stórum ríki Franka og vissi hvað til þurfti, herstyrk og vilja til að beita valdi. ESB er aftur saumaklúbbur sem kjaftar sig upp í stórveldi. Kaupin gerast ekki þannig á eyrinni þegar stórveldi eiga í hlut. Metnaði verður að fylgja máttur.

Evrópusambandið tapar stöðu og tiltrú verði niðurstaðan í Úkraínu óhagfelld stjórninni í Kænugarði. Rússland eflist og gömlu nýlenduveldin falla niður um deild. Fyrirséðri hnignun er flýtt. 

Ef svo ólíklega fer að Rússland tapi stríðinu verður staða Evrópu enn verri. Rússneskt tap er ávísun á byltingarástand líkt og 1917. Rússland myndi leysast upp í borgarastyrjöld sem yrði útflutningsvara vestur á bóginn. Kjarnorkuvædd í ofanálag. Óðara reyndi ESB að finna nýjan Pútín sem gæti komið skikk á landmesta ríki jaðrðkringlunnar. En það væri of seint í rassinn gripið. Sovétríkin hrundu friðsamlega. Það er söguleg undantekning. Reglan er að ríki hrynja eftir tapað stríð. Stjórnleysi og byltingarástand eru tvær hliðar á sömu myntinni.

Eina skynsamlega sjónarhornið á Úkraínustríðið er að það sé innansveitarkróníka slavneskra bræðraþjóða. Úkraína þarf að haga sér eins og Finnland eftir seinna stríð, viðurkenna að Rússland er stóri bróðir. Sambærilegt við samskipti Bandaríkjanna annars vegar og hins vegar Kanada og Mexíkó. Litlu systkini hennar Ameríku létu sér aldrei til hugar koma að ganga í bandalag við Kína eða Rússland. Alþjóðapólitík 101, sem ætti ekki að þurfa útskýra fyrir fullorðnu fólki. Evrópuhrokinn í sjálfumglöðu Brusselliðinu er aftur slíkur að einföldustu atriði alþjóðastjórnmála fara fyrir ofan garð og neðan.

Úkraínustríðið minnir æ meira á sumardagana í júlí 1914. Evrópa flaut áhyggjulaus að feigðarósi, gerði ráð fyrir enn einu smástríðinu er lyki á nokkrum vikum, í mesta lagi stæðu átök til jóla. Fyrra stríð reyndist allt annað en snoturt skátastríð. Án hildarleiksins hefði austurrískur korpáll með frímerkjaskegg ekki fengið eldskírn. Reynsluna af vesturvígstöðunum notaði misheppnaði listmálarinn til að stofna Þriðja ríkið. Það fyrsta var ríki Karlamagnúsar og númer tvö drukknaði í blóðbaði fyrra stríðs.

Karlamagnús mun hafa verið greindur maður en óheflaður. Leiðtogar Evrópu samtímans eru heflaðir og fínpússaðir en sljóir. Þeir sjá ekki að versta sem gæti komið fyrir álfuna er grínistinn Selenskí legði Rússa að velli. Þá fyrst yrði fjandinn laus. 

Pútín bjargar Evrópu frá eigin glópsku fari sem horfir. En hann fær aldrei Karlsverðlaunin. Þau eru frátekin fyrir hræsnara. 


mbl.is Selenskí mættur til Parísar á fund Frakklandsforseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Inga Sæland, verkó: síðustu hrunmótmælin

Bandalag Ragnars Þórs formanns VR og Flokks fólksins hennar Ingu Sæland gat af sér rúmlega hundrað manna mótmælafund á Austurvelli í gær. 

Þegar Inga Sæland boðaði mótmælin úr ræðustól alþingis í vikunni vísaði hún í mótmælin eftir hrunið 2008. Sennilega fara mótmælin í gær í sögubækurnar sem síðustu hrunmótmælin.

Eftir hrun var óopinbert slagorð hverskyns mótmæla ,,ónýta Ísland." Öllu íslensku var fundið flest til foráttu. Stjórnarskráin þótti ónýt, fullveldinu yrði best komið fyrir í Brussel. Inn í þetta hugarfar blandaðist vestræn tíska sjálfsfyrirlitningar. Íslenska útgáfan er að við séum komin af þrælahöldurum þar sem Ingólfur og Hjörleifur áttu þræla.  

Að það hafi tekið 15 ár að kveðja hrunið í pólitískum skilningi segir að atburðirnir haustið 2008 sátu töluvert lengi í þjóðarsálinni. Pólitísk óreiðan er minnisstæð, t.d. ris og fall vinstristjórnar Jóhönnu Sig., stofnun stjórnmálasamtaka eins og Borgaraflokksins, Viðreisnar, Pírata og Bjartrar framtíðar, Sósíalistaflokksins (áður heimfarahreyfing Íslendinga til Noregs). Ónefndur er Flokkur fólksins, einkaflokkur Ingu Sæland, rétt eins og Sósíalistaflokkurinn er einkaframtak Gunnars Smára. Samfélagsleg ókyrrð kallar fram furðufugla sem þykjast hafa lausn á öllu en vita þeim mun minna.

Verkalýðshreyfingin gliðnaði. Uppreisnarfólk eins og Sólveig Anna og Ragnar Þór bjuggu til verkó með tilheyrandi hávaða og látum að ekki sé sagt stjórnleysi.

,,... hagnaður hef­ur verið æv­in­týra­leg­ur en á meðan versna lífs­kjör hjá al­menn­ingi," segir Ragnar Þór á meðan hálf þjóðin er á Tenerife að sleikja sólina. Enda komu aðeins rúmlega hundrað manns á fund Ragnars Þórs og Ingu Sæland í gær. Allur almenningur nýtur lífsins á meðan lukkuriddarar eftirhrunsins bölsótast út í allt og alla. 

Pólitík eftirhrunsins er að baki. Framundan er barátta sem ekki snýst fyrst og fremst um efnahagsmál, vexti og verðbólgu. Að því gefnu, auðvitað, að hér verði ekki kollsteypa. Enn síður snýst verkefnið um að stjórnvöld gerir borgarana hamingjusama og útdeili gæðum, hvort heldur ölmusu eða ríkisborgararétti.  Baráttan verður um hvernig Ísland við viljum byggja. 

Frá 1994, með EES-samningnum, hefur Ísland alþjóðavæðst hraðar en nokkru sinni í sögunni. Bremsa var sett á alþjóðavæðinguna þegar ESB-umsókn Samfylkingar var lögð í skúffu 2012. En við erum enn í viðjum EES-samningsins og opinna landamæra. Vitræna lausn þarf á þeim vanda, sem hvorki skellir í lás né heldur áfram feigðarflani með opingáttarstefnu.

Stjórnmálaflokkar sem finna málamiðlun þarna á milli fá áheyrn.  


mbl.is „Ekki á minni vakt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arndís Anna staðin að verki: segir hún af sér?

Arndís Anna K. Gunnarsdóttir þingmaður Pírata úthlutar almannagæðum, ríkisborgararétti, til skjólstæðinga sinna sem kaupa af þingmanninum lögfræðiþjónustu. Arndís Anna stundar einkarekstur sem lögfræðingur og færir skjólstæðingum sínum íslenskan ríkisborgararétt sem þingmaður.

Einkahagsmunir lögfræðingsins eru að skapa verðmæti fyrir kaupendur þjónustu. Þingmaðurinn skaffar þau gæði. Þegar lögfræðingurinn og þingmaðurinn eru einn og sami einstaklingurinn, Arndís Anna, er á ferðinni spilling í sinni tærustu mynd.

Við ætlum að tækla spillingu var kosningaloforð Pírata. Ósagt var hvernig. Nú vitum við það: með því að stunda hana sjálfir.

Ekki það að Arndís Anna viðurkenni spillingu þegar hún er staðin að verki. Hún segist hæf til að úthluta opinberum gæðum til skjólstæðinga sinna. Þingmaðurinn kveður spillingu eðlilegan þátt þingmennsku. 

Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra setur málið í samhengi:

Túlkun þingmannsins á ágæti þess að hún fjalli sem þingmaður í þriggja manna nefnd sem sinnir stjórnsýsluverkefni á vegum alþingis ber hvorki með sér virðingu fyrir vanhæfis- né siðareglum. Arndís Anna sótti hvað harðast að dómsmálaráðherra og lét eins og hún hefði lögin með sér í kröfum um sérmeðferð upplýsinga fyrir sig. Það var ekkert annað en ólögmæt frekja og svo kemur þessi afstaða til vanhæfis til sögunnar.

Ólögmæt frekja er milt orðalag yfir atferli Arndísar Önnu. Þingmaðurinn er gjörspilltur, kann ekki greinarmun á réttu og röngu.

Arndís Anna krafðist afsagnar Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra fyrir engar sakir. Segir Arndís Anna af sér þingmennsku, nú þegar hún er staðin að verki að selja lögfræðiþjónustu sem þingmaður?


mbl.is Metur sig ekki vanhæfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úkraína: stutta stríðið lengist

Stríðinu lýkur fyrir áramót, sagði Selenskí forseti Úkraínu fyrir tæpu ári. Í dag heitir það að frekari aðstoð frá vesturlöndum er forsenda fyrir gagnsókn til að hrekja Rússa úr landi.

Selenskí er ekki einn um misreikning. Pútín Rússlandsforseti gerði ráð fyrir stuttu stríði er lyki annað tveggja með snöggum rússneskum sigri en til vara viðunandi friðarsamningum. Hvorugt gekk eftir.

Sígilt stef í stríðsfræðum er að einfalt sé að hefja stríð en flókið að ljúka þeim. Hernaður lýtur eigin lögmálum sem ekki eru fyrirséð í upphafi átaka.

Staðan á vígvelli Úkraínu er i stuttu máli að Rússar hafa frumkvæðið en ekki bolmagn til að knýja fram afgerandi sigur. Í marga mánuði er beðið eftir gagnsókn Úkraínuhers. Ekki bólar á henni. Aðstoðarutanríkisráðherra Úkraínu segir, líkt og Selenskí forseti, að landið þurfi fleiri vopn og nefnir sérstaklega langdrægar eldflaugar til að skjóta á birgðastöðvar Rússar.

Langdrægar eldflaugar myndu stigmagna átökin. Vesturlönd eru þar treg í taumi. Vitað er að Rússar eiga ýmsa mótleiki þyki þeim stöðu sinni ógnað. Til dæmis að ráðast á birgðastöðvar á landamærum Póllands og Úkraínu. Pólland er Nató-ríki. Vesturlöndum er þvert um geð að láta reyna á samtryggingu Nató - að árás á eitt Nató-ríki jafngildi árás á þau öll. Úkraínustríðið fellur jafnt og niður vinstældalistann í vestrinu. Almenningur er ekki ginnkeyptur fyrir málstaðnum. Rússar eru læsir á vestræna umræðu.

Á talandi stundu eru litlar líkur á friði í Úkraínu í bráð. Hvorugur stríðsaðila sýnir þreytumerki.

Eiginleiki stríða, skrifaði Michael Howard, eru að þau í senn búa til ríki og tortíma. Forystan í Kænugarði sem og í Kreml er sannfærð um þegar linnir átökum megi annað tveggja afskrifa Úkraínu eða Rússland. Menn þreytast seint þegar í húfi eru heilu þjóðríkin.

 


mbl.is Gagnsóknin engin silfurkúla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband