Föstudagur, 8. apríl 2016
Valdefling virkra í athugasemdum
Virkir í athugasemdum mættu í miðborgina í dag, sumir á Austurvelli en aðrir sátu í þingsal og gerðu hróp að meirihluta þingsins.
Virkir í athugasemdum í þingsal töluðu um svik og hótuðu samþingsmönnum sínum pólitískum dauða fyrir hönd virkra í athugasemdum utandyra sem börðu trumbur og gerðu hávaða.
Lýðræði virkra í athugasemdum er stóryrt, hávaðasamt en án innihalds.
![]() |
Atkvæðagreiðsla undir trumbuslætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 8. apríl 2016
Cameron gerir RÚV óleik, engin mótmæli í London
RÚV var óþreytandi eftir Kastljósþáttinn sl. sunnudag að auglýsa erlenda fjölmiðlaumfjöllun um reikninga eiginkonu Sigmundar Davíðs. Tilgangur RÚV var að hanna þau skilaboð að alþjóðsamfélagið gerði ráð fyrir að Sigmundur Davíð segði af sér.
Forsætisráðherra Bretlands, sem græddi á reikningshaldi í aflandi, ætlar ekki að segja af sér og það eru engin mótmæli við þinghúsið í London. Myndin sem RÚV kepptist við að draga upp reyndist kolröng. Erlendis standa fjölmiðlar, og allra síst ríkisfjölmiðlar, ekki fyrir áhlaupum á ríkisstjórnir.
Íslensku forsætisráðherrajónin höfðu engan hag af Wintris. Vandaðir erlendir fréttamiðlar sögðu að engar sannanir væru fyrir lögbroti eða óheiðarlegum ábata Sigmundar Davíðs og Önnu Sigurlaugar. Hér heima stundaði RÚV lygar og blekkingar til að sverta forsætisráðherra og beinlínis auglýsti mótmæli við alþingishúsið.
BBC í Bretlandi myndi aldrei leyfa sér þau siðlausu vinnubrögð sem RÚV stundar á Íslandi.
![]() |
Sakar Cameron um hræsni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 8. apríl 2016
Siðlaus blaðamaður sem tálbeita - RÚV verkkaupi
Viðtalið við forsætisráðherra í ráðherrabústaðnum var fyrirsát þar sem sænski blaðamaðurinn Sven Bergman var tálbeita fyrir vin sinn Jóhannes Kr. Kristjánsson. Sven Bergman laug að forsætisráðherra að viðtalið ætti að snúast um hrunið og endurreisnina.
Blaðamenn, sem fylgja siðareglum, gerast hvorki tálbeitur né ljúga vísvitandi nema brýnir hagsmunir séu í húfi, til dæmis að fletta ofan af barnaníði, ómanneskjulegaum aðstæðum á sjúkra- eða öldrunastofnunum og því um líkt.
Í ráðherrabústaðnum var ekki verið að afhjúpa eitt eða neitt, engar upplýsingar voru dregnar fram. Markmiðið var að láta forsætisráðherra koma illa út í viðtali. Forsætisráðherra settist í góðri trú fyrir framan sjónvarpsmyndavélarnar um að almennt yrði rætt um hrun og endurreisn.
Sænski sjónvarpsmaðurinn laug að forsætisráðherra um tilefni viðtalsins og hann beitti líka blekkingum - með því að geta þess ekki í upphafi að Jóhannes Kr. myndi aðstoða hann í viðtalinu. Jóhannes Kr. læddi sér inn í viðtalið eins og þjófur að nóttu og veifaði ljósritum af 5 til 7 ára gömlum skjölum og krafði forsætisráðherra svara á stundinni.
Í ritstýrðri útgáfu RÚV af fyrirsátinni kemur ekki fram að sænski blaðamaðurinn lýgur upp í opið geðið á forsætisráðherra í upphafi viðtalsins. Í útgáfu sem Aftenposten birti, kemur lygin fram svart á hvítu. RÚV vildi gera hlut forsætisráðherra sem verstan, með því að leyna alþjóð hvernig staðið var að verki.
Lygi og blekkingar héldu áfram hjá Jóhannesi og RÚV, sem var verkkaupi í aðförinni að forsætisráðherra. Því var haldið fram að skrifstofa alþingis hefði staðfest að forsætisráðherra hefði ekki farið eftir reglum um hagsmunaskráningu þingmanna. Þett er bláköld lygi. Skrifstofa alþingis veitti enga slíka staðfestingu.
RÚV ber ábyrgð á siðlausri blaðamennsku, blekkingum og lygum sem felldu forsætisráðherra Íslands. RÚV þarf að svara fyrir ábyrgð sína.
![]() |
Dómgreind okkar var rétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 7. apríl 2016
Unnur Brá staðfestir orð Sigmundar: vildi að Bjarni viki
Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins staðfestir orð Sigmundar Davíðs, að atlaga var gerð innan flokks að formanninum, Bjarna Benediktssyni.
Í Kastljósi RÚV sagði Unnur Brá að eðlilegt hefði verið að Bjarni Ben. formaður og Ólöf Nordal varaformaður vikju sæti. Þá hefðu losnað tvö ráðherraembætti.
Spurning hvort Unnur Brá verði hluti af þingflokki Sjálfstæðisflokksins á morgun.
![]() |
Vænir áhrifamenn innan Sjálfstæðisflokksins um eiginhagsmunasemi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 7. apríl 2016
ESB-sinnar fá löðrung, RÚV kann ekki að telja
ESB-sinnar á Íslandi bundu vonir við að nýr utanríkisráðherra, sem á að baki fortíð í samtökum ESB-sinna, myndi verða þeim liðsmaður. Í staðinn sagði nýr ráðherra skýrt og ákveðið að hann fylgdi stefnu ríkisstjórnarinnar að afturkalla ESB-umsókn Samfylkingar. Í viðtali við RÚV:
Þú hefur starfað fyrir Evrópusinna ekki satt?
Jú það er rétt. En það var á sínum tíma. Og það sem ég var að gera þá var að skoða kosti og galla aðildarumsóknar. Þetta var í kringum 2005. Það hefur ýmislegt breyst, bæði í Evrópu og á Íslandi. Þannig að ég styð það fyllilega að aðildarumsóknin var dregin tilbaka.
RÚV varð að gjalti og hljóp yfir til Bjarna Ben. og spurði hvort hann gæti talið mótmælendur fyrir utan Bessastaði. Bjarni spurði á móti: Kann RÚV ekki að telja?
Svarið vita allir, RÚV kann ekki að telja.
![]() |
Ný ríkisstjórn tekin við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fimmtudagur, 7. apríl 2016
Holland segir nei við ESB
Hollenska þjóðin segir nei við útþenslu Evrópusambandsins í austur. Viðskiptasamningur við Úkraínu er áfangi á leið landsins að verða aðili að ESB.
Þessi viðskiptasamningur leiddi til falls forseta Úkraínu og klofninu landsins í austur og vestur, líkt og Spiegel útskýrir. Í framhaldi hófst borgarastyrjöld þar sem takast á fylgismenn stjórnarinnar í Kiev, sem Bandaríkin og ESB styðja, og uppreisnarmenn er njóta velvildar Rússa.
Sókn ESB í austurátt undir hernaðarmerkjum Nató er endurvakning á kalda stríðinu. Hollendingar vilja ekkert með hernaðarævintýri Brussela að gera og sögðu nei við viðskiptasamningi við Úkraínu. Engin önnur ESB-þjóð greiðir atkvæði um samninginn, enda lýðræði í hávegum í Evrópusambandinu, eins og alþjóð veit. Eða þannig.
![]() |
Hollendingar neituðu viðskiptasamningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 7. apríl 2016
Katrín eflir Vg, hófsamir yfirgefa Samfylkinguna
Samfylkingin er hvorki né flokkur, stendur ekki fyrir róttækum breytingum en er heldur ekki heimili hófsamra sökum hatursfullrar orðræðu forystumanna flokksins. Hófstillt Katrín Jakobsdóttir leiðir aftur Vinstri græna til aukins fylgis.
Birgitta Pírataleiðtogi gefur þjóðinni fingurinn og horfir fram á fylgishrun.
Framsókn vinnur varnarsigur og heldur fylgi sínu frá síðustu könnun, þrátt fyrir ólgusjó. Sjálfstæðisflokkurinn heldur sjó í þessari könnun Gallup.
![]() |
Fylgi Pírata dalar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 7. apríl 2016
Virkir í athugasemdum verða þjóðfélagsafl
Virkir í athugasemdum og vinir þeirra mættu eins og kallaðir á Austurvöll á mánudag og fylgdu handriti, sem er með rauðan þráð og samsærisplotti en hörmulegan endi.
Rauði þráðurinn er að Ísland sé ónýtt, plottið að yfirvöld láti ekkert tækifæri ónotað til að níðast á almenningi og endirinn að ríkisstjórn Pírata taki völdin.
Virkir í athugasemdum verða þjóðfélagsafl í krafti góða fólksins á fjölmiðlum og í vinstriflokkunum.
![]() |
Boða til mótmæla við Bessastaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 7. apríl 2016
Samstarf um að gera lítið úr Íslandi
Þegar fjölmiðlar leggjast á eitt með stjórnarandstöðunni að gera lítið úr þjóðinni og stjórnmálamenningu hennar er viðbúið að alþjóð leggi við hlustir. Ekki síst þegar samstarfið leiðir til þess að ríkisstjórn lýðveldisins riðar til falls.
Allt síðasta kjörtímabil klappaði núverandi stjórnarandstaða, sem þá var í meirihluta og hét ríkisstjórn Jóhönnu Sig., þann stein að Ísland væri ónýtt. Stjórnskipun okkar væri ónýt, efnahagsstjórnunin væri ónýt og fullveldið sjálft væri ónýtt.
Ísland er ekki ónýtara en svo að þjóðin er í efstu sætum á alþjóðlegum mælikvörðum um hagsæld. Hvergi er meira jafnrétti kynjanna á byggðu bóli í henni veröld og hvergi er launajöfnuður meiri.
Bananalýðveldi eru þau lönd kölluð þar sem stórfyrirtæki ráða ríkjum, risavaxið bili er á milli fámennrar auðmannastéttar og fátæks almennings; þar sem menntun er munaður, lífslíkur langt undir meðaltali og barnadauði óhugnanlega hár.
Það er nokkurt afrek hjá fjölmiðlum og stjórnarandstöðu að gera Ísland að bananalýðveldi í augum umheimsins. Þjóðin hlýtur að fyllast þakklæti.
![]() |
Kalla Ísland bananalýðveldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 6. apríl 2016
Forsetakosningar æfing fyrir þingkosningar
Forsetakosningarnar í sumar verða æfing fyrir þingkosningarnar í haust. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að stytta kjörtímabilið mun óhjákvæmilega gera forsetakosningarnar stórpólitískar.
Á næstu dögum verður kallað eftir einstaklingum í framboð til forseta sem geta axlað þá ábyrgð sem óreiðan á alþingi krefst.
Stjórnmálamenn sem geta veitt forystu í landsmálum eru ekki margir. En þeir eru til og verða að stíga fram áður en apríl er úti.
![]() |
Sigurður Ingi næsti forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)