Peningafólk í skólarekstri

Sjálftektarhugsun einkenndi eigendur menntaskólann Hraðbraut, samkvæmt skýrslu ríkisendurskoðunar. Peningar almennings voru teknir til afnota í formi lána og arðgreiðslna til eigenda skólans. Almenn samstaða er um að skólakerfið sé rekið af hinu opinbera.

Einstaklingar sem vilja reka skóla eiga vitanlega að hafa rétt til þess en eiga ekki að fá krónu úr opinberum sjóðum.

Allof mörg dæmi eru um að þykjustuhugsjónafólk í menntamálum sé í raun peningafólk með hugann við að mjólka ríkisspenann.

 


mbl.is Hagnaður af rekstri Hraðbrautar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversdagshetjur, auðmenn og þjófnaðarlán

Björn Margeirsson afreksíþróttamaður segir sig úr FH vegna þess að félagið hefur á mála hjá sér Kristján Arason en hann og eiginkonan, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi ráðherra, tóku kúlulán upp á milljarða hjá Kaupþingi og létu á nafn einkahlutafélags til að vera ekki persónulega ábyrg fyrir persónulegu láni.

Ein mest lesna frétt á Eyjunni í ár er um aðrar hversdagshetjur sem neituðu að sitja í sama borðsal og fallnir auðmenn, eða njóta leikhúsverka í návist þeirra.

Græðgisfólkið hefur ekki beðist afsökunar á framferði sínu. Vörn þeirra er iðulega útgáfa af þessu hérna: við máttum þetta og þess vegna gerðum við það. 

Þjóðin má úthýsa og útloka það fólk sem græðgisvæddi þjóðfélagið í eigin þágu. 


Hægrisinnaðir hugleysingjar eða trúgjarnir vinstrisinnar

Líffræðileg rök fyrir stjórnmálaskoðunum eru fengin úr rannsóknum á heila yfirlýstra hægri- og vinstrimanna. Í hnotskurn eru hægrimenn huglausir en vinstrimenn trúgjarnir. Íslensk reynslurök eru fyrir þessari niðurstöðu.

Forysta Sjálfstæðisflokksins sýndi af sér fádæma hugleysi haustið 2008 þegar hún féllst á kröfu Samfylkingarinnar um að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi halda landsfund um Evrópumál. Aðildarsinnar eru trúgjörnustu sveimhugar landsins enda trúa þeir enn á evru og Evrópusamband sem stendur í björtu báli á meginlandi álfunnar.

Samkvæmt þessu eru framsóknarmenn salt jarðar og hryggstykki samfélagins; hvorki mýs né bjánar.


mbl.is Stærð heilasvæða ræður stjórnmálaskoðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan, pundið og bullið

Atlaga Samfylkingar að krónunni var endurnýjuð um jólin með greinaskrifum Árna Páls Árnasonar viðskiptaráherra. Í stað þess að þakka fyrir sveigjanleika krónunnar sem lagar sig að efnahagslegum aðstæðum fullvalda þjóðar er myntinni kennt um nánast allt sem aflaga hefur farið í efnahagslífinu.

Árni Páll og samsinnungar hans eyddu miklu púðri á sínum tíma í þá staðreynd að verðbólgumarkið Seðlabanka Íslands hefðu ekki náðst í svo og svo marga mánuði. Af því leiddi, auðvitað, að við ættum að taka upp evru, kyrjuðu aðildarsinnar.

Liam Halligan skrifar um efnahagsmál í Telegraph og segir eftirfarandi um verðbólgu pundsins

Inflation has now been above the Bank of England's 2pc target for 40 of the past 49 months.

Þrátt fyrir að verðbólgumarkmið Englandsbanka hafi ekki náðst í meira en þrjú ár talar nær enginn í Bretlandi um að fórna eigi pundinu fyrir evru. 

Evrulöndin sem Samfylkingin vill að við tilheyrum slíta með að fjármagna skuldir sínar vegna þess að lánadrottnar treysta þeim ekki til að vera borgunarmenn. Hér er frétt frá Bloomberg sem segir að þrátt fyrir ávöxtun upp á 5,5 prósent á spænskum ríkisskuldabréfum fúlsa fjármálastofnanir við þeim.

 


Vigdís víkingur sló á putta Össurar

Össur Skarphéðinsson æðstráðandi í Samfylkingunni bauð Framsóknarflokknum nýtt ráðuneyti atvinnumála til að framlengja líf ríkisstjórnarinnar. Sumir þingmenn Framsóknarflokksins voru veikir fyrir tilboðinu en ekki Vigdís Hauksdóttir. Hún gerði kröfu um að hrunráðherrarnir Össur og Jóhanna Sig. tækju pokann sinn. Málið dautt.

Ríkisstjórnin á ekki í nein hús að venda. Enginn vill hýsa sjúklinginn af ótta við smit. Stjórnin mun líkast til druslast áfram fram á nýtt ár. Skilyrðin fyrir því að hún fari frá eru óðum að taka á sig mynd.

Ríkisstjórnin kann ekkert, getur ekkert og veit ekkert um atvinnumál og það verða þau sem fella stjórnina. Eftir því sem fastara land verður undir fótum mun sannfæringin vaxa að ríkisstjórnin sé dragbítur á endurreisnina. Það verður aldurtilinn.  


mbl.is Leita að Evrópusinnuðum þingmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur verslar með ráðherrastóla

Samfylkingarbloggarinn Gísli Baldvinsson segist hafa heimildir fyrir tilboði til Framsóknarflokksins um að fá nýtt atvinnuvegaráðuneyti í ríkisstjórn Jóhönnu Sig.

Gísli er beintengdur forystu Samfylkingarinnar og af því má álykta að Össur bjóði Framsóknarflokknum ráðherrastólinn til að framlengja líf stjórnarinnar sem tapað hefur trausti og tiltrú almennings.

Viðskipti af þessu tagi koma óorði á stjórnmálin og fara langt með að skýra hvers vegna aðeins einn af hverjum tíu aðspurðum ber traust til alþingis.


Fóstbræður í Samfylkingu og Framsókn

Í röðum Framsóknarflokksins var búist við því að Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi Samfylkingar og fyrrum formannskandídat fylgdi með Guðmundi Steingrímssyni yfir í Framsóknarflokkinn. Þeir félagar eru fóstbræður í pólitík og Degi B. leiddist tilveran í Samfylkingunni. Guðmundur fór á endanum einn yfir en hefur frá upphafi tónað samfylkingarstef í Framsóknarflokknum.

Þegar ríkisstjórnin riðar til falls og áhugi þingmanna á kosningum er í sögulegu lágmarki (gildir bæði um stjórn og stjórnarandstöðu) skapast ýmsir möguleikar. 

Einn er að þremenningarnar í þingflokki Framsóknar sem eru aðildarsinnar, Siv Friðleifs og Birkir Jón auk Guðmundar, gangi í ríkisstjórnarliðið. 

Guðmundur yrði aldrei formaður í Framsóknarflokknum enda á hann hvort eð er enga möguleika á þeirri vegsemd. 


Ríkisstjórnarvaldið góss Samfylkingar?

Kjósendur snúa baki við ríkisstjórnarflokkunum í tugþúsundavís, stjórnarþingmenn lýsa vantrausti á stjórnarstefnuna og þá boðar samfylkingarþingmaður að réttast sé að ,,stækka" ríkisstjórnina með því að taka Framsóknarflokkinn inn í ríkisstjórnina. Samfylkingin lítur svo á að ríkisstjórnarvaldið sé góss í flokkseign.

Samfylkingin stundar ekki stjórnmál í þágu almennings heldur viðskipti með völd. Dæmigert er að maður eins og Sigmundur Ernir Rúnarsson skuli falbjóða ríkisstjórnaraðild á opinberum vettvangi og ekkert skammast sín fyrir braskið.

Ríkisstjórnin er rúin fylgi, trausti og situr án starfhæfs meirihluta. Stjórnin á að biðjast lausnar strax í dag.


mbl.is Framsókn eðlilegur kostur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn myndi starfsstjórn fram að kosningum

Þjóðin þarf að ná í skottið á þeim sem sluppu inn á þing við síðustu kosningar og eiga ekkert erindi á þann vettvang. Þjóðin þarf líka að gjalda þeim rauðan belg fyrir gráan sem sá á svikráðum við kjósendur og buðu fram undir merkjum fullveldis en höfðu áður gert hrossakaup um að styðja umsókn um aðild að Evrópusambandinu.

Vinstriflokkarnir báðir fengu sitt tækifæri og klúðruðu því eftirminnilega. Nú er komið að öðrum að reyna sig.

Réttast er að Framsóknarflokkurinn myndi starfsstjórn fram að kosningum með stuðningi Ögmundararms Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins.

Kosningar verði í apríl eða maí.


mbl.is Engar stjórnarmyndunarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin er flokkur bakdyrafólks

Fréttir um að samfylkingarþingmenn þreifi á Framsóknarflokki um að koma inn í ríkisstjórnina staðfesta orðspor Samfylkingarinnar. Undirferli og lævísi einkennir eðli flokksins. Árni Páll viðskiptaráðherra reynir að berja lífi í dauða aðildarumsókn með því að níða skóinn af krónunni. Hann er ekki maður til að horfast í augu við þann veruleika að andstaðan við aðild að Evrópusambandinu vex í hlutfalli við haldbetri upplýsingar um hvað aðild hefur í för með sér.

Í stað þess að viðurkenna pólitísk afglöp eru eldar kveiktir annars staðar í samfélaginu til að draga athyglina frá mistökunum. Við síðustu kosningar gerði Samfylkingin útgerðina að blóraböggli. Til stóð að kippa fótunum undan rekstri sjávarútvegsins með vanhugsuðum breytingum á kvótakerfinu.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar getur valið á milli þess að kannast við pólitískan veruleika sagt af sér með reisn eða berjast um hæl og hnakka öskrandi og emjandi. Auðvitað velur hún seinni kostinn og í því ljósi er að skilja þreifingar þingmanna Samfylkingarinnar.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband