Fimmtudagur, 12. janúar 2017
Panama-Óttarr og tveir forsætisráðherrar
Óttarr Proppé er ráðherra í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar en var ekki í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs.
Vinstrimenn setja völd ofar dómgreind og siðsemi. Það er gömul saga og ný.
Panama-skjölin eru aðeins fíkjublað til að fela hræsnina.
![]() |
Segir mun á stöðu Sigmundar og Bjarna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 11. janúar 2017
Þrjú skref frá 29. okt til 11. jan
Eftir kosningaúrslitin 29. okt. var brýnast að keyra þau skilaboð heim að ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokksins væri óhugsandi.
Það tókst.
Í annan stað varð að gefa vinstriflokkunum og Viðreisn tíma og tækifæri til að rífa hverja aðra á hol.
Það tókst.
Í þriðja lagi að finna tvo smáflokka til að játast pólitískum staðreyndum.
Það tókst.
Ofanritað er í hnotskurn ferlið frá kosninganótt til ríkisstjórnarmyndunar.
![]() |
Ellefu lyklar skiptu um hendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 11. janúar 2017
Gjaldfall Panamaskjala og RÚV
Panamaskjölin voru rædd í hengla síðast liðið ár. Öllu heldur: RÚV bjó til ótal fréttir um Panamaskjölin. RÚV játar að skjölin sjálf séu ekki til. Við höfum aðeins fréttir RÚV að styðjast við. Þær fréttir eru hlutdrægar og ómálefnalegar.
RÚV og stjórnarandstöðunni tókst að knýja Sigmund Davíð til afsagnar vegna frétta af Panamaskjölum. Forsætisráðherra hafði það eitt til saka unnið að standa sig illa í sjónvarpsviðtali og að hafa borgað 300 milljónir í skatta til samneyslunnar.
Fréttaflutningur af Panamaskjölum er stormur í vatnsglasi. Þjóðin ákvað þá niðurstöðu í kosningunum 29. október.
![]() |
Fengu annan úr Panamaskjölum í staðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 11. janúar 2017
Páll sýnir metnað - hógværðin kemur síðar
Forystumaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Páll Magnússon, sýnir eðlilegan metnað fyrir sig og sitt kjördæmi með kröfu um ráðherrastól. Það er hluti af kappsemi þingmanna að gera slíkar kröfur við stjórnarmyndun.
En formaður stjórnarflokks getur ekki, og má ekki, setja sér markmið að svala metnaði allra þingmanna og kjördæma. Til þess eru ráðherraembættin ekki nógu mörg, svona til að byrja með. Formaður þarf að huga að fjölmörgum atriðum öðrum en stöðu þingmanna og kjördæma innan ríkisstjórnar.
Páll er nýr á þingi. Líkt og margur annar þingmaðurinn verður hann að bíða síns tíma. Þannig lærist að hógværð og metnaður haldist í hendur. Annars verður metnaðurinn að frekju. Hún er ekki góð.
![]() |
Reiknaði með að fá ráðherrastól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 11. janúar 2017
Sjálfstæðisflokkurinn plús
Ný ríkisstjórn er Sjálfstæðisflokkurinn plús tveir smáflokkar. Niðurstaðan er rökrétt af úrslitum þingkosninganna. Handavinnan var Bjarna Benediktssonar formanns og var unnin fumlaust og yfirvegað við fremur órólegar aðstæður.
Styrkur Sjálfstæðisflokksins er breið og almenn skírskotun, sem sést best á því að flokkurinn er stærstur í öllum kjördæmum landsins. Skilaboð Bjarna formanns er að stöðugleiki sé aðaldagskrármál nýrrar ríkisstjórnar og er það í takt við væntingar almennings.
Smáflokkarnir mega vel við una. Helmingur þingflokks Bjartrar framtíðar fær ráðherradóm. Þar af er þeim treyst fyrir jafn stórum og mikilvægum málaflokki og heilbrigðismálum. Viðreisn fær í sinn hlut fjármálaráðuneytið en þar bíða knýjandi verkefni.
Stór hluti af pólitískum stöðugleika landsins er að Evrópumál verði sett í neðstu skúffu stjórnarráðsins og geymd þar kirfilega. Bjarni formaður sá til þess með því að halda utanríkismálum innan flokksins. Til að smáflokkarnir héldu andlitinu voru skrifaðar tvær línur í stjórnarsáttmálann um að þingmenn þeirra mættu þjóna eðli sínu í lok kjörtímabilsins.
Með eins þingmanns meirihluta á alþingi verður meirihlutasamstarfið enginn dans á rósum. Pólitík er ekki áhlaupaverk heldur öguð vinna í þágu almannahags undir eftirliti. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins plús gæti gert góða hluti. Til hamingju.
![]() |
Sjö nýliðar í ráðherrastól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 10. janúar 2017
Katrín mikla og litlir vinstri grænir
Formaður Vinstri grænna er of stór fyrir flokkinn, sem þó telst stærstur vinstriflokkanna. Málflutningur Katrínar Jakobsdóttur í gegnum tíðina er málefnalegur og trúr almannahag.
Ef Katrín hefði fengið að ráða væru Vinstri grænir í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og einhverjum flokki til viðbótar.
En litlir vinstri grænir komu í veg fyrir ríkisstjórn breiddar og dýptar. Af því leiðir fáum við hægristjórn. Sem, vel að merkja, við vonum að farnist vel að starfa í þágu þjóðarhagsmuna. Nema við séum lítil vinstri græn.
![]() |
Með áhyggjur af fjármögnun markmiða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Þriðjudagur, 10. janúar 2017
Samfylking: kerfisbyltingin 2009 og tapið 2016
Samfylkingin boðaði árið 2009 kerfisbyltingu á Íslandi. Ný stjórnarskrá, nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi, nýtt landbúnaðarkerfi og Ísland í ESB.
Flokkurinn fékk tæplega 30 prósent fylgi 2009 og myndaði ríkisstjórn með Vinstri grænum. Þjóðin hafnaði kerfisbyltingunni og fylgi Samfylkingar fór niður í 12,9 prósent fjórum árum síðar.
Samfylkingin lærði ekkert og skilur fátt. Sama kerfisbyltingin var aftur á dagskrá í haust. Fylgi Samfylkingar hrundi niður í 5,7 prósent. Samfylkingin er núna flokkur með Reykjavík 101-stefnu en á aðeins þrjá þingmenn, alla af landsbyggðinni. Hversu lengi getur vont versnað?
![]() |
Stjórn um óbreytt ástand |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 10. janúar 2017
Óttarr og félagssálfræði vinstrimanna
Birgitta Jónsdóttir leiðtogi Pírata bauð Óttari Proppé formanni Bjartrar framtíðar að verða þjóðhetja ef hann aðeins hætti við að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og Viðreisn. RÚV lýsti yfir þjóðarsorg vegna myndunar ríkisstjórnarinnar.
Vinstrimenn eru í fjórum flokkum. Þeir láta samt eins og þeir eigi hvert bein í hverjum öðrum - en geta ekki starfað saman í einum flokki.
Ef vinstrimenn ætla sér áhrif í landsstjórninni verða þeir að fækka flokkunum sem þeir halda úti. En þeir geta það ekki vegna þess að málamiðlun er ekki til í orðabók vinstrimanna.
Vinstrimenn sjá heiminn í svörtu og hvítu. Menn eru hetjur eða skúrkar. Vinstrimenn eru eilífðargelgjan í íslenskir pólitík. Þeir eru fjarska meðvitaðir um allt það sem þeir eru á móti en vita fátt um hverju þeir eru fylgjandi.
Óttarr Proppé er skrítni gaurinn sem eyðileggur gelgjupartí vinstrimanna.
![]() |
Við eigum eftir að ræða málin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 10. janúar 2017
Evrópuflokkarnir: þrír minnstu á alþingi
Evrópuflokkarnir, sem Björt Ólafsdóttir kallar svo, eru þeir þrír minnstu á alþingi. Samanlangt fylgi Viðreisnar, Bjartar framtíðar og Samfylkingar nær ekki 24 prósentum.
Tveir flokkanna taka sæti í ríkisstjórn í boði Sjálfstæðisflokksins. Þeir skrifa upp á stjórnarsáttmála sem felur í sér að ekki verði hreyft við Evrópumálum fyrr en í lok kjörtímabilsins.
Kjörtímabilinu lýkur árið 2020. Þá verða 11 ár síðan ESB-umsókn Samfylkingar var send til Brussel.
Ef einhver stjórnmál eru dauðadæmd á Íslandi þá eru það þau sem kennd eru við Evrópu.
![]() |
Evrópufrumvarp verði lagt fyrir Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 9. janúar 2017
Kristnir fagna frelsun Aleppo undan múslímum
Kristnir söfnuðir í Aleppo, og þeir eru nokkrir, fagna frelsun Aleppo og þakka Assad forseta trúfrelsið, segir í Economist. Assad er veraldlegur harðstjóri sem leyfir ólík trúarbrögð.
Súnní-múslímarnir sem stjórnuðu lengi austurhluta Aleppo eru líkt og trúbræður þeirra í Sádí-Arabíu á því að leyfa aðeins eina sanna trú - þeirra eigin.
Bandaríkjamenn höfðu forystu um að steypa Assad af stóli. Afleiðingarnar hefðu orðið þær sömu og í Írak eftir fall Saddam Hussein 2003. Ormagryfja opnaðist og margir hópar tóku til við að stríða innbyrðis um völd og áhrif. Stundum er skynsamlegra að staðaryfirvöld haldi ormagryfjunni lokaðri. Jafnvel þótt yfirvöldin standist ekki vestrænar kröfur um lýðræðislega stjórnarháttu.
![]() |
Nauðsynlegt að sprengja Aleppo |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)