Katrín forsætis: hvar er Umhverfisstofnun?

Forsætisráðherra splæsti á samlíkingu farsóttar og loftslagsváar í 17, júní-ræðu sinni. Katrín sagði:

Við þurfum að halda áfram að takast á við loftslagsvána rétt eins og við tókumst á við faraldurinn; sameiginlega, á grundvelli rannsókna og gagna og með sem bestum upplýsingum til allra þannig að við getum öll lagt okkar af mörkum til að ná árangri í þeirri baráttu.

Í farsótt var upplýsingum miðlað daglega og víðtæk umræða var um talnagögn, smitvarnir og bóluefni. Þegar kemur að loftslagsvá er aftur fátt að frétta.

Eldgosið í Fagradal er þriggja mánaða. Leikmenn hafa reiknað út að koltvísýringurinn, CO2, úr gosinu sé orðinn jafnmikill og árleg losun allrar bílaumferðar á landinu. Þá er eftir að reikna losun vatnsgufu sem er áhrifameiri gróðurhúsalofttegund en CO2. Um 60-70 prósent útblásturs jarðelda er vatnsgufa.

Umhverfisstofnun heldur bókhald um losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum. En þaðan heyrist ekki múkk um áhrif eldvirkninnar á bókhaldið.

Er það kannski vegna þess að í raun er allt bókhaldið byggt á pólitík en ekki vísindum?


mbl.is Hvenær erum við Íslendingar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Upp úr Kötlugíg streyma árlega 10.2 milljónir tonna af CO2 sem er nærri þreföld losun allra bíla Íslands á ári sem losa 4.4 milljónir.. Hver skyldi Katrínu finnast að eigi að borga kolefnisgjald fyrir Kötlu.Álverið í Straumsvik losar 0.6 milljón tonna á ári og borgar milljarða í kolefnisskatta.

Halldór Jónsson, 18.6.2021 kl. 10:45

2 Smámynd: iNga Hall

Hanattrænar hlýnunar kenninginn er jafpólitísk og Covid og það merkilega er að það eru sömu pólitísku öflin að baki báðu, ásamt fleiru einkennilegu sem íslendingar gleypa við gagrýnislaust. Enda eru menntastofnanir notaðar sem kenna þessi fræði.

iNga Hall, 18.6.2021 kl. 11:24

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Tek undir það Inga Guðrún og Þeir sem ekki gleypa það en gagnrýna hispurslaust með sinni þekkingu, eru óvinir slíkra pólitískra afla.

Helga Kristjánsdóttir, 18.6.2021 kl. 16:15

4 Smámynd: Júlíus Valsson

Al Gore væri ekki hrifin af þessum pistli. 

Júlíus Valsson, 18.6.2021 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband