Launafeluleikur og áróðursstríð

Stéttafélög komast upp með að dylja almenning hverjar launakröfurnar eru í vinnudeilum en reka engu að síður áróður í fjölmiðlum sem höfðar til samúðar almennings.

Fyrirkomulag vinnudeilna er algerlega út í hött og þarf að stokka upp. Verkföll eru misnotuð af stéttum sem bestan höggstað hafa á almannahagsmunum.

Verkalýðshreyfingin, bæði sú almenna og opinbera, verður að taka ná samstöðu um ásættanlegt ferli á vinnudeilum.

Nái verkalýðshreyfingin ekki samstöðu verður ríkisvaldið að grípa inn í atburðarásina og setja lög sem koma í veg fyrir misnotkun verkfallsréttarins.


mbl.is Þorsteinn fari með rangt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það er ljótt að nota veikt fólk sem vopn.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.6.2015 kl. 21:09

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Ég minni aftur á það sem Páll Vilhjálmsson skrifaði 15. okt, 2013 á vef Kennarasambands Íslands:

„Þegar kemur að samningum við þá sem verðleggja starf kennarans, sveitarfélög og ríkisvald, eigum við að snúa veikleika okkar í styrk. Án kennara verða íslensk heimili óstarfhæf. Kennarar eiga að gera viðsemjendum sínum ljóst að verkfall, þess vegna til nokkurra mánaða, sé afleiðingin ef starf kennarans verði ekki metið að verðleikum." 

Heimild: http://fg.ki.is/pages/22/NewsID/4674

Wilhelm Emilsson, 18.6.2015 kl. 22:24

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þess vegna veit Páll hvaða víti ber að varast.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 19.6.2015 kl. 02:33

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Meinarðu víti hentistefnu, Heimir? :)

Wilhelm Emilsson, 19.6.2015 kl. 03:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband