Verkföll gegn sjálfum sér og lygarar til leigu

Verkalýðshreyfingin er í verkföllum gegn sjálfri sér með því að lífeyrissjóðir launþega eiga ráðandi hlut í flestum stærstu fyrirtækjum landsins. Verkalýðshreyfingin situr á upplýsingum um afkomu fyrirtækja og veit vel hvað hægt er að borga í laun.

Almannatenglar, sem stundum eru kallaðir lygarar til leigu, verða að hrista fram úr erminni stóra fjöður til að fela þá staðreynd að verkföllin eru niðurstaða ráðleysis verkalýðshreyfingarinnar í stjórnum fyrirtækja.

Verkalýðshreyfingin veit hvað fyrirtækin geta borgað en þorir ekki að segja það upphátt.

Lygarar til leigu geta reynt að snúa verkföllum upp á ríkisstjórnina. En málið snýst einfaldlega ekki um ríkisvaldið. Engin ríkisstjórn ákveður hvað er til skiptanna, heldur verðmætasköpun atvinnulífsins.

Verkalýðsforystan þorir ekki að koma til dyranna eins og hún er klædd og ræður almannatengla að sauma á sig nýju fötin keisarans.

 


mbl.is Almannatenglar veita ráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Nokkrar athugasemdir við þetta:

    • Verkalýðshreyfingin er nú ekki í verkföllum enn!

    • Það eru háskólamenntaðir starfsmenn Ríkisins sem eru komnir í verföll og það hlýtur að heyra undir ríkisstjórnina

    • Ef að atvinnulífið getur ekki borgað laun sem fólk getur lifað af þá er kannski tími til að endurskoða hvaða fyrirtæki starfa hér.

    • Minnst kosti er arður og hagnaðarðu t.d. af sjávarútvegsfyrirtækjum þannig að maður sé það borð fyrir báru að þau gætu borgað hærri laun

    • Sé alveg að ríkið gæti komið að þessum deilum öllum með t.d verulegri hækkun á skattleysismörkum sem mundi jú koma sérstaklega þeim sem eru með lægst launin og á bótum vel.

    • Eins væri hægt að hraða ýmsum frumvörpum t.d. varðandi húsnæðsmál í gegn.

    • Svona miðað við þjóðarframleiðslu og laun og tekjur þeirra sem hæst standa held ég að þurfi hér bara að fara að skipta kökunn á annan hátt.

    • P.s. Held að lifeyrissjóðir séu í fæstu tilfellum með menn í stjórnum þeirra fyrirtækja sem þeir eiga í. Þeir eiga í fæstum tilfellum meirihluta þar.

    Magnús Helgi Björgvinsson, 20.4.2015 kl. 08:53

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband