Leifturstjórnmálin leika vinstriflokka grátt

Leifturstjórnmál er að grípa fylgisgæsina þegar hún gefst; sækja um ESB-aðild án undirbúnings, breyta stjórnarskránni, stofna nýjan flokk (Björt framtíð), fá Pírata til að leiða kosningabandalag eða Jón Gnarr í framboð.

Leifturstjórnmál eru pólitísk unglingaveiki þar sem sannfæringunni er skipt út með táfýlusokkum gærdagsins.

Leifturstjórnmál eru ær og kýr Samfylkingar enda er flokkurinn ekki stofnaður á grunni hugsjóna heldur valdeflingar vinstrimanna. Í hruninu, þegar þjóðin leitaði logandi ljósi að smeðjulegasta snákaolíusölumanninum, náði Samfylkingin háflugi og fékk tæp 30 prósent fylgi í kosningunum 2009.

Fjórum árum eftir stórsigurinn skildi Samfylkingin eftir sig sviðna jörð: ónýta ESB-umsókn, ónýtt stjórnarskrárfrumvarp og örverpið Bjarta framtíð. Í kosningunum 2013 fékk Samfylking 12,9% fylgi og hjakkar í því fari síðan.

Vinstri grænir krupu fyrir leifturstjórnmálum Samfylkingar með því að taka þátt í misheppnaða ESB-leiðangrinum. Flokkurinn klofnaði í beinu framhaldi og danglar í tíu prósent fylgi.

Vinstriflokkarnir eru í tætlum eftir leifturstjórnmál síðustu ára. Þeir vita ekki hvar sannfæring þeirra liggur og leita á náðir Pírata sem eru nördaflokkur.

Vinstripólitík á Íslandi er samheiti fyrir tækifærismennsku. Eftir því sem lengra líður frá hruni verður hallærislegra að reka heilu stjórnmálaflokkana sem gera ekki annað en að elta fylgisgæsina sem flögrar ýmist í austur eða vestur en þó mest norður og niður.

 

 

 


mbl.is Píratar á góðri siglingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Er það rétt, Páll, að þú hafir eitt sinn verið ritari Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi?

Wilhelm Emilsson, 2.4.2015 kl. 12:50

2 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Tja, Wilhelm, þegar stórt er spurt. Ég man að ég var í stjórn kjördæmafélagsins í kringum stofnum Samfylkingar og kannski mér hafi hlotnast ritaraembættið. Þá var ég fyrsti formaður Samfylkingarfélags Seltirninga. Ég sagði mig úr flokknum í kringum 2006.

Páll Vilhjálmsson, 2.4.2015 kl. 14:17

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk kærlega fyrir svarið, Páll.

Wilhelm Emilsson, 2.4.2015 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband