Mánudagur, 25. júlí 2016
Góða fólkið í skotgrafirnar gegn Sigmundi Davíð
Sigmundi Davíð var bolað úr embætti forsætisráðherra á grundvelli skjala sem ekki eru til. Já, þið lásuð rétt: Panama-skjölin eru ekki til og Reykjavík Medía/RÚV viðurkenna það. Eins og lögmaður þeirra segir:
Þeir hafa ekki aðgang að gögnunum með þeim hætti að þeir geti bara afhent einhver gögn. Þetta er físískur ómöguleiki. Þú getur ekki afhent eitthvað sem þú ert ekki með.
Góða fólkið, vinstrimenn af ýmsum sortum með RÚV sem bakhjarl, bjó til atburðarás sem leiddi til stjórnarkreppu í vor og afsagnar forsætisráðherra.
Nú þegar Sigmundur Davíð boðar endurkomu fer góða fólkið í skotgrafirnar, vopnað skjölum sem eru ,,físískur ómöguleiki." Verði þeim að góðu.
Fer á fullt í stjórnmálabaráttunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 25. júlí 2016
Brexit í Bretlandi, bylting í Tyrklandi
Úrsögn Breta úr Evrópusambandinu, Brexit, er niðurstaða lýðræðislegs stjórnarfyrirkomulags. Breska þjóðin vildi fullveldið sitt tilbaka. Bylting hersins í Tyrklandi og gagnbylting Erdogan forseta er afleiðing af vanmáttugu lýðræði, sem ekki lengur stendur undir nafni.
Að Tyrkland skuli enn vera í biðröð eftir aðild að Evrópusambandinu en ekki hafnað algerlega og afdráttarlaust er enn ein staðfesting á því að ESB er ekki í þjónustu lýðræðis heldur þjakað af stórveldaórum. ESB er valdahyggjan uppmáluð en metur lýðræðið til fárra fiska.
Evrópusambandið er söguleg tilraun - sem mistókst.
Ekki í stöðu til þess að ganga í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 25. júlí 2016
ESB er í sjokki - engin stækkun til 2020
Johannes Hahn stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir í Guardian að engin ný ríki fái inngöngu í ESB næstu árin og alls ekki fyrr en eftir 2020. Útganga Breta út ESB, Brexit, setur sambandið í uppnám.
Gamla hugsunin um sístækkandi Evrópusamband er úrelt. Engin önnur framtíðarsýn er í boði. Carl Bildt, sænski ESB-sinninn, skrifar grein í Morgunblaðið í dag um nauðsyn nýrrar hugsjónar um ,,meiri Evrópu en minna Brussel" sem er orðalag yfir misheppnað samrunaferli ESB síðustu áratuga. (Hér er ensk útgáfa greinar Bildt).
Viðurkenning Giuliano Amato, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, í viðtengdri frétt, á merkingarleysu greinar 50 í Lissabonsáttmálanum, sem leyfir úrsögn úr ESB, er enn annað dæmið um rörsýn sambandsins. Höfundar ESB töldu sambandið sögulegan óhjákvæmileika sem ekki væri hægt að endurskoða.
Með Brexit hefst uppstokkun Evrópusambandsins. Enginn veit hvort ESB lifir af þessa uppstokkun og allra síst þeir sem stjórna sambandinu. Með Brexit tók lýðræðið yfirhöndina og vestrænt lýðræði er óútreiknanlegt nú um stundir.
Greinina átti aldrei að nota | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)