Brexit í Bretlandi, bylting í Tyrklandi

Úrsögn Breta úr Evrópusambandinu, Brexit, er niðurstaða lýðræðislegs stjórnarfyrirkomulags. Breska þjóðin vildi fullveldið sitt tilbaka. Bylting hersins í Tyrklandi og gagnbylting Erdogan forseta er afleiðing af vanmáttugu lýðræði, sem ekki lengur stendur undir nafni.

Að Tyrkland skuli enn vera í biðröð eftir aðild að Evrópusambandinu en ekki hafnað algerlega og afdráttarlaust er enn ein staðfesting á því að ESB er ekki í þjónustu lýðræðis heldur þjakað af stórveldaórum. ESB er valdahyggjan uppmáluð en metur lýðræðið til fárra fiska.

Evrópusambandið er söguleg tilraun - sem mistókst.


mbl.is Ekki í stöðu til þess að ganga í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband