Uppgjöf meirihlutans

Ríkisstjórnin laug að þjóðinni í sumar þegar gerðir voru heimskustu milliríkjasamningar sem nokkru sinni hafa verið gerði á Íslandi. Ríkisstjórnin ætlaði að keyra Icesave-samningana í gegnum þingið á fáeinum dögum og lét eins og himinn og jörð myndu farast ef ekki væri farið að kröfu stjórnarinnar.

Icesave-málið, bæði samningarnir sjálfir og málsmeðferð, sýna að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er ofviða að gæta hagsmuna þjóðarinnar andspænis Bretum og Hollendingum.

Ríkisstjórnin gafst upp í öndverðu og þessi jólaspuni um að við höfum spillt fyrir okkur með því að birta lögfræðiálit undirstrikar það eitt að enginn endir er á sleifarlagi stjórnarinnar.


mbl.is Vöruðu við því að birta álitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Páll Vilhjálmsson, er ,,platan"  biluð ?

Hættu að reyna skemma meira en þú ert búinn að gera ?

JR (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 12:38

2 identicon

JR.  Er það að "skemma" að benda á fáránleika og hörmungar Icesave samningsóhroða ríkisstjórnarinnar undir stjórn ómerkingsins Steingríms J, sem 70% þjóðarinnar hefur hafnað alfarið?  Flestir þokkalega skarpir skólakrakkar myndu átta sig á að skemmdirnar liggja í ofbeldi stjórnvalda og 30% sem fylgja þeim í þrælsótta og eða einstakri heimsku.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband