Afturkræf svik og óafturkræf handvömm

Svik Vg í ESB-málinu eru afturkræf, við munum kjósa nýtt þing áður en samningar við ESB eru undirskrifaðir og köllum sendinefndina heim. Icesave-samningurinn er því sem næst óafturkræfur slysist Alþingi til að samþykkja hann. Lögfræðileg rök, efnahagsleg og siðferðileg rök standa öll til þess að Alþingi eigi að hafna samningnum og fulltrúar þjóðarinnar verða að gera skyldu sína í þessu máli. Aukaatriði er hvort ríkisstjórnin standi af sér niðurstöðuna.

Alþingi má undir engum kringumstæðum samþykkja Icesave. Þótt það kosti málþóf fram að jólum.


mbl.is „Erfitt en verður að leysast"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Núna voru að koma enn ein rökin gegn Icesave Páll og tek undir enn einu sinni þetta með EU-svikin:

Jón Danielsson,hagfræði-prófessor: Útreikningur Icesave-samnings gallaður, 21. júlí, 09:http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item290657/


Elle_, 21.7.2009 kl. 11:15

2 identicon

Get over it! Við erum á leið í ESB, sem betur fer fyrir allan almenning í þessu landi. Ég fullyrði að okkur mun aldrei bjóðast slík kjarabót, nokkurn tíman.

Valsól (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 11:57

3 identicon

Valsól þetta er ekki búið enn.  Sönn og rétt skrif hjá þér Páll.

Það eru hverfandi líkur á að þessi ríkisstjórn standi í lappirnar og geri það sem er best fyrir þjóðina.   Það er okkar hagur að koma þessu fólki frá og það sem fyrst áður en það veldur meiri skaða en þegar hefur verið gert.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 12:00

4 Smámynd: Auðun Gíslason

Stundum er erfitt að skilja hvað þið Sjálfstæðismenn yfirleitt viljið gera í málinu.  Skv. þessu samkomulagi hér er það frágengið hvernig málið er leyst.  Svavars-nefndin fékk að ganga frá málinu í samræmi við þetta samkomulag.  Bjarni Ben og fleirri láta einsog þetta samkomulag hafi aldrei verið gert!  Samkomulagið sem skuldbindur okkur!

Beint í Leiðarkerfi vefins.
Gerast áskrifandi að fréttum forsætisráðuneytis

Fréttir

Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)

16.11.2008 Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum.Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna. Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið, undir forystu Frakklands, taki áframhaldandi þátt í að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrir­greiðslu sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) undanfarnar vikur. Erindi Íslands hjá IMF verður tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum miðvikudaginn 19. nóvember.Umsamin viðmið
  1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í lög­gjöf­ina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahags­svæð­ið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
  2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samninga­viðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóða­gjald­eyris­sjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
  3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.
Reykjavík 16. nóvember 2008

Auðun Gíslason, 21.7.2009 kl. 12:05

5 identicon

Auðun, mér sem borgara í landinu er slétt sama um einhver samkomulög sem vanhæfar fyrrverandi og núverandi ríkisstjórnin hafa gert.

Ekki hefur verið formlega gengið frá neinum samningum og ég sætti mig ekki við það að þurfa að borga skuldir auðmanna.  Ef að alþingismenn ætla að pína mig til þess þá mun ég berjast fyrir því að draga þá fyrir landsdóm og fangelsa fyrir föðurlandssvik.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 12:17

6 Smámynd: Arnar Guðmundsson

JA

Arnar Guðmundsson, 21.7.2009 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband