Ríkisstjórn kúgunar

Júdas J. Sigfússon hótar þingmanni sínum sem vill ekki svíkja stefnuskrá Vg og kjósendur. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hótar stjórnarslitum ef þingmenn Vg leggjast ekki eins og hundar fyrir framkvæmdavaldinu. Eðlilegt framhald er að liðþjálfi Júdasar, Árni Þór Sigurðsson, krefjist undirgefni af embættismönnum og það þeir komi með rétta pólitíska línu í skýrslum sínum. Árni Þór lærði til verka í Moskvu á sínum tíma og veit mætavel hvernig á að tukta fólk til að halda því á línu stjórnvalda.

Ríkisstjórn kúgunar og hótana er ekki líkleg til að fá almenning með sér til endurreisnar.

 


mbl.is Ekki formleg umsögn Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Aðferð kúgunar til endurreisnar gengur aldrei upp.  Það á við þegar raunverulegur áhugi er á endurreisn.  Ég velti fyrir mér hvort sá áhugi sé til staðar hjá núverandi ríkisstjórn.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.7.2009 kl. 13:38

2 identicon

Mér vitanlega lærði Árni Þór ekki í Moskvu, held að þetta sé einhver undarleg söguskýring hjá þér.

Svo verð ég að segja að svona uppnefni eins og að kalla Steingrím J ¨Júdas", ekki vera þér ti framdráttar.

Held að það væri ykkur sjálfstæðismönnu fyrir bestu að hugleiða hver ykkar ábyrgð er á hruninu, í staðin fyrir að dreyfa skít í allar áttir.

Kannski að yfirliðþjálfi sálfstæðisflokksinn, Davíð Oddsson, blási ykkur byr í brjósti með fjarstæðukendum yfirlýsingum og fjarstæðukendum söguskýringum.

Helgi R. Jónsson (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 14:12

3 Smámynd: Kristján B. Jónasson

Það kemur fyrir að maður rekst á þetta blogg inn á mbl.is og stundum hef ég hrist hausinn og helgið yfir ofsanum.

En þessi færsla er eins og að lesa flokksblað frá 6. áratug síðustu aldar. Hvílíkt orðbragð og æsingur.

Hefur bloggskrifari aldrei heimsótt aðildarríki Evrópusambandsins? Ef marka má skrif hans er þar við lýði slík kúgun og helsi að engu tali tekur, ESB er yfirþjóðlegt skelfingarvald.

Burtséð hvort menn séu sammála því hvort Ísland gangi í ESB er þessi málflutningur hér því miður eitt stækasta dæmið um þær öfgar sem Ísland endurreisnarinnar þarfnat síst. Stöðugar upphrópanir, uppnefni, gífuryrði, sleggjudómar, órökstuddur dylgjur.

Við hljótum að eiga betra skilið en þetta sem nennum enn að lesa blogg frá manni sem sannarlega kann að beita móðurmáli sínu.

Kristján B. Jónasson, 14.7.2009 kl. 14:56

4 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Námsferill Árna Þórs er á heimasíðu Alþingis, hann nam við Moskvuháskóla. Kristján B. æsist svo yfir ofsanum í mér að hann svarar eins ég hafi hallmælt aðildarríkjum Evrópusambandsins þegar ég í raun gagnrýndi annars vegar yfirgang forsætisráðherra gagnvart þingmönnum og hins vegar loforðasvik Vg. Kristjáni B. er vorkunn, hann er nýkominn úr faðmi Björgólfs eldri sem fjármagnaði menningarbransann og nú vill Kristján B. fá peninga frá ESB undir merkjum íslenska nýkúltúrsins: Allt er falt.

Páll Vilhjálmsson, 14.7.2009 kl. 15:59

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hefur bloggskrifari aldrei heimsótt aðildarríki Evrópusambandsins? Ef marka má skrif hans er þar við lýði slík kúgun og helsi að engu tali tekur, ESB er yfirþjóðlegt skelfingarvald.

.

Já það er einmitt reyndin. Núna er ESB tildæmis að kúga Lettland til að fórna efnahag landsins til þess að bráðnauðsynleg gengisfelling verði ekki framkvæmd af tilliti til bankakerfis ESB sem er í bráðahættu og í raun eignalast. Núna slást því ESB og AGS um málefni Lettlands á meðan efnahagur landsins brennur og AGS heldur til baka greiðslum til Lettlands. Allt heilbrigðiskerfi Lettlands er komið í bráða fjárþurrð og mun loka 1sta október ef ekki fæst fjármagn strax. Læknar yfirgefa landið. Svo á einnig að þvinga alla írsku þjóðina inn í kosningabúrin aftur þennan sama október mánuð því það kom ekki "rétt" út úr kosningum þar síðast. Ekki "rétt" að mati ESB. Því þarf að kjósa þar aftur og aftur þar til það kemur "rétt" út úr kosningabúrunum. Viltu að ég haldi áfram?

.

Kveðjur

.

PS; núna vantar bara að reka seðlabankastjórann í Seðlabanka Íslands. Þá er Vesalinga Ríkisstjórn Íslands þar með orðin hæf til að stýra öllu ESB.

Gunnar Rögnvaldsson, 14.7.2009 kl. 16:04

6 identicon

Óttalegt kjaftaedi er thetta í thér madur. Thú fretar úr thér órökstuddum stadhaefingum ótt og títt eins og grádugur einstaklingur rekur vid eftir ad hafa étid fimm djúpa diska fulla af baunasúpu.

Nei elsku kallinn minn...ég held thú aettir ad taka thér frí frá blogginu í mánud eda svo og íhuga thad ad leggja alveg nidur thessar illa yfirvegudu og algerlega órökstuddu faerslur thínar.

Med vinsemd og virdingu,

Goggi

Goggi (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 16:59

7 identicon

Samfylking=Stjórnarskrárníðingar!

Nýi Dexter (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 17:05

8 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Maðurinn sem um er rætt heitir Steingrímur Jóhann Sigfússon og er fjármálaráðherra núverandi ríkisstjórnar. Hann er upp runninn úr Alþýðubandalaginu, beinu eða óbeinu afkvæmi Kommúnistaflokks Íslands. Hann er talsmaður annarra meininga í pólitík en við Páll Vilhjálmsson. Allt að einu á hann fullan rétt á að talað sé um hann af kurteisi (þó kannski ekki vinsemi!).

Flosi Kristjánsson, 14.7.2009 kl. 18:07

9 identicon

Svona til að taka einn Samspillingarspuna á umræðun með gamla góða, - "Svo skal böl bæta og benda á annað verra" trikkinu.

Skilur Steingrímur J. eitthvað annað tungumál en einmitt það sem Páll brúkar?

Mér er til efs að nokkur þingmaður hafi leyft sér annað eins tungutak og Steingrímur J. gerir reglulega á þingu, fyrir utan etv. Álftanesniðursetninginn Ólaf Ragnar Grímsson. 

Páll er eins og biskupinn í samanburði við þá.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband