Fríblöð eru láglaunaverkefni

Í viðtali á heimasíðu norsku blaðamannasamtakanna, journalisten.no, segir útgáfustjóri nokkurra norskra fríblaða að forsendan fyrir því að útgerðin geti borið sé að halda launum í lágmarki.

Í viðtalinu viðurkennir Ivar Brynildsen, útgáfustjóri hjá Edda Media, að afkoman fríblaða sé háð því að kostnaði sé haldið í lágmarki og engin leið sé að keppa við launakjör sem áskriftarblöð bjóða blaðamönnum sínum.

Gunnlaugur Júlíusson hagfræðingur var duglegur að vekja athygli á slæmum kjörum blaðbera Fréttablaðsins fyrir nokkrum misserum. Á meðan blaðberar Morgunblaðsins fengu laun samkvæmt kjarasamningi hélt Baugsútgáfan sínu fólki í launalegu skrúfustykki.

Á hinn bóginn hafa ekki borist fréttir af launakjörum blaðamanna á íslensku fríblöðunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband