Fræðimaður og fjölmiðlakona kokka Brussel-óra

Stjórnmálafræðingur sem lætur í það skína að formaður Sjálfstæðisflokksins hafi það í hjáverkum að halda flokknum saman er ekki ýkja vel verseraður í íslenskum stjórnmálum. Fjölmiðlakona sem heldur að Sjálfstæðisflokkurinn beiti Samfylkinguna blekkingum í Evrópumálum er úti á þekju.

Flestir aðrir en Gunnar Helgi og Þóra Kristín eru búnir að sjá í gegnum málatilbúnað Evrópusinna. Tilgangurinn með Evrópuupphlaupinu var að draga athyglina frá bankahruninu og ábyrgð stjórnarflokkana.

Evrópusinnar eru á hröðu undanhaldi enda sér þjóðin í gegnum blekkingarvefinn sem spunninn var um að innganga í Evrópusambandið væri bjargráð.

Heimóttarskapur íslenskra Brusselsinna er með eindæmum. Evrópusambandið var ekki stofnað til að redda smáþjóðum frá fjármálaglæfrum. Evrópusambandið er valdablokk stóru meginlandsríkjanna sem gáfust upp á valdatogstreitu er leiddi til tveggja heimsstyrjalda. Eftir því sem fjær dregur meginlandinu verða þjóðríki fráhverfari sambandinu. Ísland er eina Evrópuþjóðin sem hefur heilt úthaf á milli sín og meginlandsins. 

Í fyrirsjáanlegri framtíð mun Ísland ekki ganga inn í Evrópusambandið. Óskhyggja stjórnmálafræðinga og fjölmiðlafólks breytir þar engu.


mbl.is Taugastríð Geirs og Ingibjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki-blaðamaður hugsar í hringi en kemst samt að niðurstöðu. Er hægt að fá vitræna umræðu í gang í hausnum á þér?

Útlaginn (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 23:27

2 identicon

Sæll Páll.

Í skjóli hverra (að þínu mati) voru glæpirnir framdir?

Takk fyrir hressandi blogg!!!

Davíð Guðmundsson (IP-tala skráð) 6.1.2009 kl. 00:58

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Óþægilegt að hafa trúboða í fréttamennsku. Hún ætti að finna sér annað starf.

Baldur Hermannsson, 6.1.2009 kl. 03:45

4 Smámynd: Einar Solheim

Þar sem við Evrópusinnar nennum ekki lengur að rífast í ruglinu á ykkur andstæðingum, þá er ótrúlegt hvað þið hafið allt í einu fengið á tilfinningunni að ykkar málstaður verði ofan á.
Málið er einfaldlega það að sem betur fer er stærri hluti þjóðarinnar skynsamt fólk og inn í ESB förum við.  Við leyfum svo bara karlfauskum að stunda sitt raus og rugla í friði.
Vona að þú munir ekki hafa það of gott innan ESB, enda yrði örugglega erfitt fyrir þig að sættast við það hlutskipti.

Einar Solheim, 6.1.2009 kl. 10:02

5 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Einar, skrifaðu nú vitrænt, síðasta setningin þín segir mér að þú sért varla fermdur.

Sigurður Sigurðsson, 6.1.2009 kl. 10:58

6 Smámynd: Baldur Hermannsson

ZiZi, verður þú ekki að taka krakkann í pössun?

Baldur Hermannsson, 6.1.2009 kl. 11:24

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Evrópusambandsblekkingin er sprungin í andlitið á Samfylkingunni og þá var farið að tala um þingkosningar og nú eru það umhverfismál.

Samfylkinginn fann upp hugtakið samræðustjórnmál, en skilur hvorki haus né sporð í inntaki þess. Hún getur ekki komist að niðurstöðu um neitt, því samræða Samfylkingarinnar er alltaf einhliða. Hún er í raun ekki samræða heldur mónólóg. Því er aldrei hægt að taka hana til enda því það sem heldur lífi í samræðu er að ný sjónarhorn bætis í hana.

Það leiðir til þess að umræða Samfylkingarinnar er alltaf á hröðu undanhaldi: <= umhverfismál <= þingkosningar <= evrópusambandsinnganga svo maður minnist nú ekki á ísbjarnardrápin. 

Allar stjórnarathafnir þeirra klúðrast því ákvarðanirnar eru teknar út frá "mér finnst" vinklinum, sem þó virðist haldin alvarlegum athyglisbresti. Aðeins Jóhanna nær að fókusera. Hún hefur aðeins eitt "mér finnst" á heilanum og það er að ausa úr vösum almennings. Og þar er sko ekkert fum. 

Ragnhildur Kolka, 6.1.2009 kl. 17:37

8 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Samfylkingin og hennar kumpánar flýja á náðir Evrópusambandsumræðunnar til að reyna að breiða yfir getuleysi sitt við stjórnvölinn. Það er orðið helvíti hart ef Össur á einn að draga vagninn.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.1.2009 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband