Hversdagsillska

Einu sinni hírðist Anna Frank í feluíbúð í Amsterdam. Hún og fjölskyldan máttu ekki sjást á götum úti. Réttlætingin var að Heinrich í Hamborg og Erica í Bæjaralandi ættu síðri lífskjör með Önnu Frank og hennar fólk á almannafæri. 

Ingi Jón Sverris­son vill ekki selja fólkinu hennar Önnu Frank ferðaþjónustu. Réttlæting Inga Jóns er að gera bærilegra líf Fatímu og Amír í Gaza-borg, paradís mannvinasamtakanna Hamas. 

Ingi Jón er ekki fyrsti maðurinn sem stoltur þvær hendur sínar af óæskilegu fólki. Anna Frank endaði ævina í Bergen-Belsen. Einhver upplýsti böðlana um feluíbúðina í Amsterdam.

Gripalestir flytja ekki lengur þá óæskilegu í dauðabúðir. Hamas heimsótti aftur Suður-Ísrael 7. október og sendi 1400 konur, börn og gamalmenni, inn í eilífðina með nauðgunum og limlestingum í kaupbæti. Í ferðaþjónustunni á Fróni eru menn sem vilja að allir dagar séu 7. október. 


mbl.is Vilja ekki veita Ísraelum þjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Hvernig Íslendingar hafa komið sér upp gyðinga-andúð er með öllu óskiljanlegt. Hér eru gyðingar nánast ósýnilegir (kannski <200) svo ekki er það fyrirferðin. Allir Íslendingar komnir yfir tvítugt þekkja sögu helfararinnar svo ekki er það fáfræðinni að kenna. Það skyldi þá ekki vera pólitíkin - hún gerir hvorki kröfu um vit né þekkingu? Sögulega séð voru það kommúnistar, hliðhollir Sovét, sem studdu arabana gegn gyðingum, en svo fluttist andúðin yfir á rósbleika liðið og þá var fjandinn laus. Nú eru kommarnir útdauður en Samfylkingi tekin við. Mun stærri hópur sem samanstendur af menntuðum opinberum starfsmönnum og "do-gooders" Viðreisnar og Pýrata og auðvitað VG sem var gleypt af þeim rósbleiku. Eftir það gengur hjarðhegðunin laus.

Ragnhildur Kolka, 12.11.2023 kl. 15:11

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þetta er lélegasta rusl sem Páll Vilhjálmsson hefur skrifað og er þar af nógu að taka.

Pistlar hans um Samherja eða RÚV eru ekki öllum að skapi. Þegar viðskiptaþvinganir gegn Rússum, Afganistum, Afríkuþjóðum til dæmis er um að ræða er ekki verið að líkja því við Önnu Frank. Hvað eru margir einstaklingar af múslimsku ætterni sem hírast við sömu skilyrði og Anna Frank og hennar fólk?

Það er furðulegt hvað sumir þurfa að leita eftir skotgrafahernaði á hverju horni.

Fólkið í Gazaborg er varnarlaust þótt það sé ofurselt Hamasliðum líka, sem þykjast reyna að bæta lífsskilyrði þess. Er það skrýtið að sumir Íslendingar sýni því fólki samúð? 

Ingólfur Sigurðsson, 12.11.2023 kl. 17:32

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ég veit ekki til þess að ég hafi nokkurn tíman á ævinni hitt vonda manneskju
en ég hef hitt marga sem hafa hegða sér illa og oft óskiljanlega heimskulega

Grímur Kjartansson, 12.11.2023 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband