Heimildin í taprekstri, herjar á Morgunblaðið

Heimildin var stofnuð sl. áramót með sameiningu Stundarinnar og Kjarnans sem höfðu ratað á glæpastigu með RÚV í byrlunar- og símastuldsmálinu. Fjórir blaðamenn Heimildarinnar eru sakborningar. Rekstur Heimildarinnar er í ógöngum. Í gær opnaði Heimildin víglínu gagnvart Árvakri/Morgunblaðinu. En það er einmitt dótturfélag Árvakurs, Landsprent, sem prentar Heimildina.

Árásin á Morgunblaðið var útvistuð til annars fjölmiðils. Til verksins var fenginn blaðamaðurinn Kristinn Haukur Guðnason. Í vor var Kristinn Haukur blaðamaður á Vísi.is og skrifaði tvær fréttir fyrir Þórð Snæ ritstjóra Heimildarinnar um Samherjamálið. Tilfallandi tók fréttirnar fyrir í bloggi.

Kristinn Haukur er kominn á DV en áfram í þjónustu Þórður Snæs og Heimildarinnar. Síðdegis í gær birti Kristinn Haukur frétt með þessari fyrirsögn:

Aðalsteinn stefnir Páli og Árvakri – Prófmál um hvort Árvakur beri ábyrgð á Moggablogginu

Skrítið, hugsaði tilfallandi með sér. Aðalsteinn stefndi bloggara í vor og það er ekkert að gerast í málinu. Réttarhald er ekki komið á dagskrá. Hvers vegna eru Heimildarmenn að setja það á flot núna að ásamt tilfallandi Páli er Árvakri stefnt? Í fréttinni á DV kemur fram að Árvakri er aðeins stefnt til málamynda. Engar kröfur eru gerður á hendur Árvakri. Fréttin er tittlingaskítur, ekkert nýtt er í henni. Samt er komið á framfæri þeirri hugsun að Árvakur gæti verið í ábyrgð með tilfallandi fyrir það eitt að halda á lífi frjálsi umræðu sem óháð er fjölmiðlum. Moggabloggið er opinn vettvangur fyrir alla til að tjá skoðun sína á hverju sem er milli himins og jarðar.

En þá rifjaðist upp að Heimildin er rekin með bullandi tapi. Á síðasta ári var tap miðlanna að baki útgáfunni 50 milljónir kr. Í ár kemst Heimildin hvorki lönd né strönd í markaðssókn með fjóra sakborninga á ritstjórn og trúverðugleika í ruslflokki.

Samkvæmt Gallup er meðaltal innlita á heimildin.is ríflega 20 þús. á viku. Til samanburðar eru innlit á Tilfallandi athugasemdir 13 þús. á viku. Tilfallandi er einyrki sem bloggar í tómstundum og birtir einu sinni á dag. Heimildin er með 15-20 manna ritstjórn.

Heimildin kemur einnig út á prenti og þar er komin líklegasta skýringin á fréttinni í DV sem spyrðir saman tilfallandi og Árvakur. Heimildin er komin í stóra skuld við Landsprent, dótturfélag Árvakurs, og vill beita fjölmiðlaumræðu fyrir vagn sinn í fyrirsjáanlegu uppgjöri. Hugmyndin hjá liðinu í kringum Heimildina er að gera sig að fórnarlambi, láta í það skína að samsæri sé um að knésetja útgáfuna. 

Sannleikurinn er sá að Heimildin er ótrúverðugur fjölmiðill sem ítrekað hefur verið staðinn að því að skálda fréttir, misfara með heimildir og segja hvítt svart. Almenningur hefur einfaldlega ekki áhuga á að láta ljúga að sér.

Svo er það auðvitað byrlunar- og símastuldsmálið, sem er í lögreglurannsókn. Heimildarmenn eru ekki beinlínis fermingadrengir í ljótasta máli íslenskrar fjölmiðlasögu. Blaðamenn gerðust hjónadjöflar, misnotuðu andlega veika konu til byrla eiginmanni sinum og stela síma hans. Heiðarlegt fólk heldur sig frá Heimildinni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dögg Sverrisdóttir

Kristinn Guðnason er ekki mikill pappír þegar kemur að blaðamennsku. Hann virðist hjakka í gömlum hjólförum og heldur að það selji. Hann hefur m.a. reynt að gera umfjöllun mína um trans-málaflokkinn að einhverju skelfilegu. Sjálfur hefur hann farið verst út úr því, situr uppi með kjánalegar fréttir rétt eins og þessa sem hann skrifaði um þig. 

Játa fúslega, það sem þú skrifar er ekki bara mun betur skrifað á íslensku heldur setur þú upp áhugaverð sjónarhorn, það vantar oftar en ekki hjá blaðamönnum nútímans. Það vantar tilfinnanlega hjá Kristni Guðnasyni.

Skyldi blaðamaðurinn Kristinn Guðnason á Dv spyrja... - formannslif.blog.is

Helga Dögg Sverrisdóttir, 31.10.2023 kl. 08:11

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er aumur fjölmiðill sem telur sér hættu standa af einum bloggara. Kannski ættu bara þeir sem að þessum fréttamiðli standa að gerast bloggarar að moggablogginu. Hugsanlega gætu þeir náð til einhverra fleiri með því. Þá myndu þeir einnig komast að því, við skráningu inn á bloggið, að hver sem þar skráir sig og tjáir sig, gerir það algjörlega á eigin ábyrgð. Þar kemur hvorki mogginn né Árvakur neitt að málum, annað en að lána aðganginn. Þetta er skýrt og skorinort við skráningu inn a bloggið og einnig kemur þetta skýrt fram í hvert sinn er nýrri bloggfærslu er hleypt út í vefheima.

Heimildin gæti því slegið tvær flugur í einu höggi, með því einu að stofna hér bloggsíðu. Komist að því að þeir gætu sparað sér peninga með þessari fyrirhuguðu málshöfðun, þar sem skýrt er hver ber ábyrgð á því sem fram kemur í moggabloggi og hugsanlega fengið einhverja örlítið meiri áheyrn landsmanna á bulli sínu. Ekki er þó víst að síðari kosturinn raungerist.

Gunnar Heiðarsson, 31.10.2023 kl. 16:08

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Les ykkur oftast þið eruð áhugaverð.

Helga Kristjánsdóttir, 1.11.2023 kl. 02:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband