Kaupir Svandís niđurstöđu um Brim?

Svandís ráđherra matvćla gerir samning viđ Samkeppniseftirlitiđ um rannsókn á útgerđinni Brim. Í verksamningi er kveđiđ á um ađ ráđuneyti Svandísar fylgist međ framvindu rannsóknar og hafi heimild til ađ stöđva greiđslur til Samkeppniseftirlitsins ef ráđuneytiđ fćr ekki ţá niđurstöđu sem ađ er stefnt.

Ofanritađ er endursögn á orđum Guđmundar Kristjánssonar forstjóra Brims, sbr. viđtengda frétt.

Allir og amma ţeirra vita ađ Svandís Svavarsdóttir ráđherra Vinstri grćnna stundar pólitík sem gefur sér ađ sjávarútvegurinn sé gerspilltur. Ef frásögn forstjóra Brims er rétt misbeitir Svandís ráđherravaldi í pólitískum tilgangi, kaupir rannsókn til ađ stađfesta pólitíska fordóma.

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins ţvertekur fyrir ađ hann stundi rannsóknir til ađ ţjóna pólitískum markmiđum Svandísar ráđherra. Haft er eftir Páli Gunn­ari Páls­syni forstjóra Samkeppniseftirlitsins:

Rann­sókn­inni mun ljúka međ skýrslu sem mun birt­ast op­in­ber­lega. Ráđherra mun fá hana á sama tíma og al­menn­ing­ur. Ráđherra hef­ur ekki, eins og Guđmund­ur virđist halda, mögu­leika á ţví ađ stöđva greiđslur ef hann er ekki sátt­ur viđ niđur­stöđur Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins. Ráđherra mun ein­fald­lega ekki sjá niđur­stöđur fyrr en at­hug­un er lokiđ. Ţađ er mik­il­vćgt ađ hafa í huga ađ í 8. grein sam­keppn­islaga er Sam­keppnis­eft­ir­lit­inu ćtlađ ađ skrifa skýrsl­ur af ţessu tagi. Ţađ er eng­inn póli­tísk­ur vink­ill á ţví.

Páll Gunnar viđurkennir ađ samningur sé á milli Samkeppniseftirlitsins og ráđuneytis Svandísar. Einfaldast er ađ leggja samninginn fram opinberlega. Ţá geta óvilhallir myndađ sér skođun á ţví hvort hér sé á ferđinni eđlileg athugun á mikilvćgri atvinnugrein eđa vinstri grćn pólitík klćdd í málefnalegan búning stjórnsýslu.


mbl.is Svör Páls Gunnars sögđ aumkunarverđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband