Sunnudagur, 4. desember 2022
Fávitaréttur, mannréttindi og lýðræði
Saga mannréttinda er, í grófum dráttum, þessi: fram að frönsku byltingunni 1789 réð forréttindastétt, aðall. Réttlaus þriðja stéttin var allur almenningur. Stéttin þar á milli, önnur stéttin, var klerkaveldið er hafði í megindráttum það hlutverk að miðla málum milli hinna tveggja í anda kristilegs kærleika.
Klerkarnir voru eins og aðallinn forréttindastétt. Málamiðlunin gekk mest út á að verja forréttindi. Almenningur átti að sætta sig við sult og seyru í mannlífinu gegn loforði um himnaríkisvist að loknu jarðlífi.
Í Norður-Evrópu, snemma á nýöld, komu mótmælendur til sögunnar sem rugluðu í ríminu ríkjandi ástand. Fyrirkomulagið hélt þó fram á 19. öld er náttúruréttur verður ríkjandi skoðun. Samkvæmt náttúrurétti eru allir fæddir jafnir og eiga sama tilkall að láta ljós sitt skína.
Önnur stéttin, kennd við klerka, hætti að skipta máli og sneri sér að serimóníum s.s. skírn, fermingu og giftingu. Siðferðileg kjölfesta kirkjunnar gufaði upp í veraldlegu samfélagi. Enginn var lengur handhafi úrskurðarvalds góðs og ills.
Mannréttindi nútímans verða til í þessu umhverfi. Þau þýða að illa gerður til hugar og handa nýtur sömu réttinda og vel gerður einstaklingur.
Fávitavæðing 20. aldar birtist í ismum með forskeyti eins og fas, nas og kommún. Helstu fjöldamorðingjar sögunnar komu fram á sjónarsviðið. Á 21. öld gildir enn að hvaða imbi sem er á sama rétt og hver annar til áhrifa og mannaforráða. Stórir ismar síðustu aldar eru aftur að mestu á bak og burt.
Í skjóli tæknivæðingar s.s. samfélagsmiðla fjölgar þeim stórkostlega sem fá áheyrn og við það tvístruðust stóru ismarnir. Fávitavæðingin birtist í sérgreindum málaflokkum t.d. loftslagi og líffræði. Þar sem áður var viska og þekking er boðið upp á fávisku og vanþekkingu. Með reiknikúnstum í tölvulíkönum er loftslagið gert manngert; líffræðileg kyn eru ekki lengur tvö heldur þrjú, fimm eða seytján.
Fávitar ná forræði í málaflokkum þar sem þeir hópast margir saman. Fáviskan nýtur tæknivæðingar sem breytir lýðræði í atkvæðagreiðslu á samfélagsmiðlum.
,,Umræðan einkennist af pólitískri rétthugsun sem ákveðinn hópur áhrifavalda stjórnar," segir Óttar Guðmundsson geðlæknir og pistlahöfundur. Þeir sem hætta sér inn á lendur fávísinnar eru umsvifalaust útskúfaðir. ,,Mönnum er velt upp úr tjöru og borinn eldur að þeim í beinni útsendingu," segir geðlæknirinn.
Fávitaræði og lýðræði haldast í hendur. Það boðar ekki, í sögulegu ljósi, bjarta framtíð lýðræðis. Er fávitarnir komast í auknum mæli til valda vex þeirri hugsun ásmegin að ekki gangi til lengdar að illa gerðir til hugar og handa ráði ferðinni.
Ekki-fávitarnir sannfærast um að lýðræðið sé fyrir imba. Hver vill búa við imba-lýðræði?
Athugasemdir
Lýðræði er atvæðagreiðsla tveggja úlfa og einnar kindar um hvað á að vera í kvöldmatinn.
Geir Ágústsson, 4.12.2022 kl. 13:42
m
,,Það sýnir sig, hafði [Baldur Arnarness] sagt og hellt aftur í glasið aldrei þessu vant, að útkoman verður þeim mun fráleitari sem fleiri fá að kjósa. Þetta er í sjálfu sér eðlilegt því ekki er von að einfaldar sálir beri skyn á landstjórn. Múgurinn sér ekki mun á list og skrauti. Flestir halda að list sé emelerað kökubox. Hvað finnst þeim þá um stjórnmál? Einmitt. Kjósendur eru svoddan flón. Það er pólitískum konditorum heldur en ekki í hag og þeir dreifa um sig bakkelsinu. Þetta er til vandræða því það getur aldrei blessast að almenningur ráði því sem máli skiptir. Ekki bakar Vladimir sætabrauð í von um atkvæði. Enda hefur hann meiri vigt en leiðtogar Vesturlanda til samans. Nú eru umbrot í nánd, eldgos og landskjálftar, góðærið er á enda, millistéttin á útleið. Þegar hriktir í hrófatildri eru það ekki traustabrestir. Eða hvað gerist þegar samheldni skortir á ögurstundu? Hannibal Barca komst nú illilega að raun um það."
ARKÍTEKTARNIR, skáldsaga, Reykjavík 2021
Baldur Gunnarsson, 4.12.2022 kl. 14:30
Kannski ættu allir að undirgangast gáfnapróf til þess að fá að kjósa og auðvitað ættu þeir gáfuðustu að meta það próf.
Vandinn er að finna þá, nema þeir finni þá bara í sjálfum sér.
Hörður Þormar, 4.12.2022 kl. 20:17
Þetta er skelfileg dystópía, sem endar á því að boða... hvað ?
Upplýst einræði ?
Þórhallur Pálsson, 4.12.2022 kl. 23:13
Heimurinn er ekki að fara til fjandans, hann er farinn til fjandans. Menningarhrun eins og einn snillingur á blogginu hefur orðað það.
Ingólfur Sigurðsson, 4.12.2022 kl. 23:46
Skrýtið hvað fáir tengja við Biblíuna góðu. En þar er reynt að gera okkur ljóst, að skömmu fyrir endurkomuna æsist satann gífurlega og reynir að nota fólk til að koma öllu í allsherjar kaos.
Svo sannarlega er þetta allt að rætast, og vissara að fara að dusta rykið af bók bókanna, og finna leiðir til að komast í gegnum hörmungarnar miklu sem eru bara rétt að byrja.
Loncexter, 5.12.2022 kl. 16:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.