Laugardagur, 3. desember 2022
Sanna og Úrsúla um Ameríku og evrópskt siðferðisþrek
Játningar tveggja leiðtoga í Evrópu síðasta sólarhringinn eru fréttnæmi. Sanna Marin, forsætisráðherra Finna, sagði í Eyjaálfu að Evrópa væri háð Ameríku. Án Bandaríkjanna væri Evrópa upp á náð og miskunn Rússa.
Sanna heimsótti Ísland áður en hún hélt héðan hálfan hnöttinn. Á Fróni sagði hún að Úkraína yrði að sigra Rússa. Séu þessi tvenn ummæli Sönnu lögð saman þýða þau að Evrópa sé á forræði Bandaríkjanna.
Sleppi Bandaríkin hendinni af Evrópu verður álfan að rússnesku áhrifasvæði.
Meiri líkur en minni eru á að Bandaríkin næstu árin reki hlédrægari utanríkisstefun en síðustu þrjátíu ár. Árangurinn svarar einfaldlega ekki kostnaði. Þýskur herforingi, Kujat, segir bandarísk yfirvöld leggja sig í líma að koma í veg fyrir stigmögnun Úkraínustríðsins. Bandaríkin neita stjórninni í Kænugarði um langdræg vopn, s.s. eldflaugar, sem ná inn í Rússland.
Rússar geta flutt mannskap og vopn óhindrað og stillt upp á vígvellinum. Úkraínu getur það ekki, hver þumlungur landsins er í skotfæri Rússa. Kujat segir Rússa hingað til aðeins hafa notað lítið brot af herstyrk sínum. Úkraína, aftur, skrapar botninn og fær stöðugt minni birgðir frá vesturlöndum. Skriftin á veggnum er öllum læs. Fyrr heldur en seinna tapar Úkraína, - nema samið verði um frið.
Yfirvofandi stefnubreyting í Washington skilur Evrópu eftir í lítt eftirsóknarverðri stöðu. Þeir á Íslandi sem vilja inngöngu í Evrópusambandið ættu að íhuga framtíðarsýn þar sem Brussel tekur mið af hagsmunum Rússlands, beinlínis af illri nauðsyn.
Seinni ummælin, sem urðu fréttaefni í gær, koma einmitt frá Úrsúlu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Hún flutti ávarp á Írlandi. Þar líkti hún stöðu Íra fyrrum, þegar þeir börðust við ofurefli með frelsisþrá eina að vopni, við Úkraínu samtímans. Samlíkingin fellur ekki í kramið hjá Englendingum. Ávarp Úrsúlu er ,,handan þess að vera viðbjóðslegt," er haft eftir enskum þingmanni.
England sat yfir hlut Íra, allt frá dögum Normannakonunga á miðöldum og fram á síðustu öld. Samlíking forseta ESB á Englendingum og Rússum hittir í hjartastað djúpa vestræna sannfæringu: við stöndum ofar Rússum að siðferði og menningu.
Samlandi Úrsúlu flutti sitt síðasta útvarpsávarp 21. apríl 1945. ,,Bolsévikkar [Rússar] standa við borgarmörk Berlínar," sagði hann, ,,framtíð Þýskalands og Evrópu er í húfi." Tíu dögum síðar var mælskumaðurinn allur. Hann féll fyrir eigin hendi og tók með sér í eilífðina eiginkonu og ung börn, fimm dætur og einn son.
Evrópskt siðferðisþrek andspænis Rússum er samt við sig í dag og það var á dögum þriðja ríkisins.
Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Bretar mættu gjarnan taka Þjóðverja til fyrirmyndar í gagnrýni á sína eigin fortíð.
Hörður Þormar, 3.12.2022 kl. 11:56
Takk fyrir góðan pistil að vanda.
Sammála Herði. Belgar, Spánverjar og miklu fleir þjóðir ættu að gera slíkt hið sama. Löngu orðið tímabært.
Ólafur Árni Thorarensen, 3.12.2022 kl. 12:47
Er ekki einfaldlega rétt að kalla Evrópusambandið Fjórða Ríkið?
Endurtekur sagan sig, eða er 2014 öðruvísi en 1708, 1812 og 1941 hvað örlög Rússlands varðar?
Jónatan Karlsson, 4.12.2022 kl. 11:16
Jónatan, hverjir gerðu bandalag við Hitler og nasista í byrjun stríðsins? Voru það Bandaríkjamenn? Voru það Bretar? Voru það Frakkar? Þú veist svarið.
Annars vil ég lýsa vanþóknun minni á grein Páls, að líkja Ursulu von der Leyen við Josef Göbbels. Menn geta haft sína skoðun á ESB, mín er ekkert alltof jákvætt, en svona sora er ekki hægt að bjóða fólki upp á, án þess að einhver mótmæli.
PS Enginn hefur gert ESB vinsælla en Rússland núna síðustu mánuðina, enda litur ESB vel út í samanburði við einræðisveldið í Kreml. Það er reyndar ekki mikið afrek, svona eins og að vera efstur í tossabekk.
Theódór Norðkvist, 4.12.2022 kl. 14:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.