Sjálfstæð kona þarf ekki kvóta

Í pólitík, einkum nútímapólitík, standa kynin jafnt, ólíkt t.d. í kraftlyftingum. Það sást síðast í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi þegar Guðrún Hafsteinsdóttir skákaði sitjandi þingmönnum og tók fyrsta sætið.

Þrátt fyrir þau augljósu sannindi að kynin standa jafnt í pólitík ber á þeirri hugsun að konur eigi frátekið sæti sakir kynferðis.

Dálítið gamaldags, satt best að segja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einmitt; karlar stóðu upp fyrir konum í strætó.

Helga Kristjánsdóttir, 17.6.2021 kl. 11:54

2 Smámynd: Júlíus Valsson

"Jafnréttið" er farið að bíta í skotið á sér. 

Júlíus Valsson, 17.6.2021 kl. 14:31

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Kjósendur hafa trú á Guðrúnu. Hún virðist skelegg, kannski skeleggjari en karlpeningurinn og uppskar samkvæmt því. Það á ekki að skipta máli hvers kyns fulltrúar eru. Aðeins hvers þeir eru megnugir. 

Ragnhildur Kolka, 17.6.2021 kl. 17:21

4 Smámynd: Júlíus Valsson

Laukrétt hjá þér Ragnhildur

Júlíus Valsson, 17.6.2021 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband