Laugardagur, 15. maí 2021
Lygari til leigu í framboði
Óopinbert starfsheiti almannatengla er ,,lygari til leigu." Kemur það til að almannatenglar selja þjónustu sína að hygla einum en fordæma annan í opinberri umræðu. Eða, svo notað sé orðalag úr Njálu, berja í brestina og selja ónýt málefni sem þjóðþrifamál.
Almannatengill sækist eftir eftir öruggu þingsæti Sjálfstæðisflokksins í höfuðborginni. Eðli málsins samkvæmt veit alþjóð ekki hverra hagsmuna almannatengillinn gengur í prófkjörinu. Hagsmunaskrá almannatengla liggur í bankareikningum þeirra og þeir eru ekki opnir almenningi til athugunar.
Síðast þegar að var gáð gekk tengillinn erinda þeirra sem vilja framselja frumburðarrétt Íslendinga til Brussel með þriðja orkupakkanum.
Í lýðfrjálsu landi er öllum heimilt að sækjast eftir umboði almennings. Að sama skapi er almenningi frjálst að synja mönnum umboðs sem ekki eru trúir almannahag.
Slegist um efstu sætin í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.