Miðvikudagur, 13. janúar 2021
Jón Ásgeir á stjá, banki til sölu
Skeljungur flyst kannski úr landi, en kannski verður fyrirtækið netverslun. Kannski verður fyrirtækið fjárfestingafélag en kannski selji það fjárfestingar í Færeyjum og einbeiti sér að kjarnasamstarfi á Íslandi.
Mótsagnirnar hér að ofan eru augljósar öllum sem kunna að lesa. En áður en eitthvert ,,kannski" raungerist þarf Jón Ásgeir Jóhannesson að eignast allan Skeljung.
Hraðar hendur vinna betur en margar hendur. Vasaþjófar birtast ekki í hópum heldur sérhver einn og stakur. Bandalagið, sem þeir hafa með sér, er allt á bakvið tjöldin. Fundirnir ýmist í Öskjuhlíð eða á snekkju í Karabíska hafinu.
Jón Ásgeir var í útrás I kenndur við Baug. Í útrás II er viðskeytið Skeljungur. Sniðmátið er það sama, fyrst Bretland síðan heimurinn og loks hrun á Íslandi.
Menn eins og Jón Ásgeir gefa kapítalisma vont orðspor. ,,Umbreytingin" sem hann talar um er að taka eigur, blása þær upp í verði, en stökkva frá borði áður en blaðran springur. Koma svo heim aftur, fá eigur á útsöluverði og byrja á ný.
Og nú er gamli bankinn hans Jóns Ásgeirs til sölu, Íslandsbanki. Við, almenningur á Íslandi, eigum bankann núna. Í sumar verður bankinn seldur.
Jón Ásgeir eða einhver af sama sauðahúsi kaupir bankann og byrjar að tala um ,,umbreytingu" og tækifæri erlendis. Allir læsir sjá skriftina á veggnum. Bitamunur en ekki fjár er á útrás I og útrás II.
Erum við ófær að læra af reynslunni Bjarni, Katrín og Sigurður?
Mikil tækifæri í rekstri í Bretlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er ekki bara sniðugast að gefa öllum landsmönnum íslandsbanka
eins og sýnt er í þessari tillögu?
https://sigridur.is/audstjorn-almennings/
Jón Þórhallsson, 13.1.2021 kl. 12:24
Jú auðvitað "Eigðu afganginn"...
Helga Kristjánsdóttir, 13.1.2021 kl. 16:55
Ætli sala á diet coke hafi aukist!???
Sigurður I B Guðmundsson, 13.1.2021 kl. 19:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.