Föstudagur, 7. ágúst 2020
CO2 af mannavöldum breytir ekki loftslagi
Mennskur koltvísýringur(C02) er innan við 4 prósent af koltvísýringi andrúmsloftsins. Náttúran ber ábyrgð á 96 prósentum efnisins. Í ofanálag er koltvísýringur ekki nema örlítið brot af svokölluðum gróðurhúsalofttegundum.
Spár um hlýnun loftslags af mannavöldum byggja ýmist á ófullkomnum gögnum eða lélegri forritun, oftast hvorutveggja, segir japanski loftslagsvísindamaðurinn Mototaka Nakamura.
Náttúran breytir loftslagi, ekki maðurinn. Grænlandsjökull var t.d. minni fyrir hálfu árþúsundi en hann er í dag.
Hlýnun af mannavöldum er fyrst og síðast pólitísk hugmyndafræði.
![]() |
Samkomubönn hafa engin áhrif á hlýnandi loftslag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já, og Vatnajökull mun hafa veriið allt að helmingi minni fyrir rétt um 1000 árum eða á Landnámsöld og þá kallaður Klofajökull. Varla hefur mannskepnan átt þátt í því.
Daníel Sigurðsson, 7.8.2020 kl. 13:35
CO2 er ekki meira í andrúmsloftinu en svo að það þarf sérstaklega að bæta því við í gróðurhúsum fyrir grænmetisræktina.
Kolbrún Hilmars, 7.8.2020 kl. 13:59
Enda var um aldamótin 1000 hærri meðalhiti á Íslandi en í dag og skógi
vaxið frá fjalli niður í fjöru.
Sannar bara það að víkingarnir voru allir á díesel knúnum
seglskipum..:
Sigurður Kristján Hjaltested, 7.8.2020 kl. 17:13
Smá leiðrétting: "Landið var viði vaxið milli fjalls og fjöru."
Ómar Ragnarsson, 7.8.2020 kl. 17:44
Hér er gefin skýring á nafninu, Klofajökull, við það er engu að bæta: Vísindavefurinn: Var einu sinni íslaus dalur í miðjum Vatnajökli?
Hörður Þormar, 7.8.2020 kl. 21:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.