Undirgefni, woke-ismi og hugarfar þrælsins

Skilgreiningin á þræl er hann er ófrjáls. Sá sem er þræll þarf að sýna eiganda sínum undirgefni - annars væri hann ekki þræll.

Að krjúpa á kné er trúartjáning mótmælanna sem kennd eru við svört líf skipa máli. Kristnir eru vanir að krjúpa fyrir almættinu, múslímar ganga lengra og fara á bæði hnén í lotningu fyrir Allah. Á miðöldum krupu menn fyrir konungum.

Knésetning er tjáning á undirgefni. En svört líf skipta máli á að heita krafa um mannlega virðingu óháð hörundslit. Fyrir hverju er kropið?

Stjórnmálheimspekingurinn John Gray segir sjálfsfyrirlitningu rauðan þráð í mótmælahreyfingunni.  

Á ensku er sögnin ,,woke" notuð um þá sem næmir eru á óréttlæti. Þeir næmu sjá félagslegt óréttlæti í náttúrulegum fyrirbrigðum, eins og þeim að fólk fæðist með ólíkan hörundslit og eru annað tveggja karlkyns eða kvenkyns. Önnur andstyggð þeirra næmu er náttúrulegt loftslag - og þess vegna var búin til hugmyndin um manngert veðurfar. Gagngert í tilgangi sjálfspíningar. Maðurinn ber ábyrgð loftslaginu, sem verður sífellt verra, og skömmin er mín og þín.

Ungt fólk á vesturlöndum er ginnkeypt fyrir ,,woke-isma". Þeir sem fá gæðalíf án þess að dýfa hendi í kalt vatn vita ekki hvernig lífsgæði verða til. Undir  niðri er hugboð um að lífsgæðin séu óverðskulduð. Hugboðið ýtir undir skömm, að maður sé óverðugur gæðanna. Skömmin er eitt einkenni þeirra sem stunda sjálfspíningu.

Lækningin við sjálfspíningunni er að átta sig á að maður velur ekki eign fæðingu. Maður fæðist þeldökkur, hvítur, brúnn eða gulur, ýmist karl eða kona. Ekkert val þar. En maður hefur val um hvað skal gert við lífið sem fékkst ókeypis.

Eitt val er hugarfar þrælsins, sem á engan húsbónda, en krýpur fyrir kjaftæði og tileinkar sér ímyndaða skömm. Annað val er að standa teinréttur og hugsa sjálfstætt.


mbl.is Þrælafrídagurinn gerður opinber í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Nú streyma stærstu árgangarnir af vinnumarkaði. Flestir áttu mörg systkini og voru því ekki  miðja alheimsins og höfðu því ekki alla athygli foreldrana. Útileikirnir stóðu jafnvel frá morgni til kvölds.

Óvitarnir, nýkomnir í ópinn fengu strax leiðsögn hinna eldri; að atast ekki í skrýtna fólkinu af Kleppi, skilja ekki neinn útundan, fara eftir leikreglunum og leysa ágreining án þess að klaga í fullorðna fólkið. Engin var slíkur óviti að hann gat ekki lært að sýna ábyrgð, fara ekki í fýlu, hegða sér og virða "siðareglurnar" sem "óvart" voru undirbúningur undir lífið. Sjálfsagt hefur fullorða fólkið, haft góð áhrif og laumað að okkur nokkrum heilræðavísum. 

Fullorðna fólkið, sama hvar það stóð í pólitík, kenndi okkur að elska Ísland. Við elskuðum 17. júní.

Smáfólkið í öllum Kleppsholtum landsins lærði að vera sjálfstætt fólk og að standa á eigin fótum. Með dugnaði gætum við jafnvel vænst þess að eiga "áhyggjulaust ævikvöld" eins og það var orðað þá. 

Nú er öldin önnur. Nú ræður ríkjum költ sem hatar Ísland og þau "forréttindi" að fá að deyja nokkrum árum eftir að vinnu líkur! Meðlimir költsins eru svo "woke" - kolruglaðir.

En við sem lærðum góða siði á sínum tíma, munum taka að okkur að kenna "woke" óvitunum sem nú tröllríða menningunni - eftir því sem fleiri - sem lærðu að standa saman sem þjóð með sjálfsvirðingu á unga aldri - sest í helgan stein.

Benedikt Halldórsson, 20.6.2020 kl. 16:35

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Vók er jók.

Helga Kristjánsdóttir, 20.6.2020 kl. 18:33

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Getum sleppt að tala um "woke", vók er betra orð.

Benedikt Halldórsson, 20.6.2020 kl. 18:39

4 Smámynd: Benedikt Halldórsson

WHY EVEN BLACK AND BROWN-SKINNED JEWS ARE "WHITE IMPERIALISTS"

The subsequent Black Power movement articulated Marxist dogma, which went like this.

    • Capitalism created power and oppression;

    • white people were capitalists,

    • so white people were powerful oppressors;

    • Jews were behind capitalism,

    • so Jews were oppressors;

    • capitalism was bad because it was white;

    • Jews were white because they were capitalists.

    Þess vegna hata vókarar gyðinga með háttalagi sínu. ASÍ fer í vók ferðir til Palestínu til að skerpa á hatrinu gagnvart kapitalisma og kúgun, en hefur ekkert út á Hamas að setja.

    Benedikt Halldórsson, 20.6.2020 kl. 19:25

    5 Smámynd: Benedikt Halldórsson

    ..."critical race theory" part of post-modern academic orthodoxy, holds that science, reason and evidence are a "white" way of knowing. 

    So both Israel and western society are falsely denounced for "white imperialism," even black or brown-skinned Jews are white, and George Orwell is spinning in his grave.

    Benedikt Halldórsson, 20.6.2020 kl. 19:37

    6 Smámynd: Benedikt Halldórsson

    Karl Ágúst Úlfsson fyrrum djókari, en núna virtur og vinsæll vókari sem hatar kapitalsima, ávarpaði jarðarbúa á Grímunni. Hann talaði um að við (hvíta) forréttindafólkið ættum að gefa eitt eða tvö nýru til þeirra sem hafa ekki eins mörg nýru og við? Ekki veit ég hvort hann hafi gefið eitthvað af innyflum sínum til fátækra, en hann hefur sett sér það göfuga markmið, að vakna ekki bara á morgnana og þrauka daginn - án þess að tilkynna sig veikan - nei, hann gerir heiminn betri með nærveru sinni eftir morgunkaffi. Svo vók er hann (eða delúsjónal).

    Hvaða foréttinda nýtur allt það hvíta fólk sem liggur fyrir dauðanum með krabbabein? Það vakna margar aðrar spurningar...

    Benedikt Halldórsson, 20.6.2020 kl. 21:23

    7 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

    Woke = úrkynjun.

    Það er ekki flóknara.

    Ásgrímur Hartmannsson, 20.6.2020 kl. 21:25

    8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Já herra,mér lætur vel að gera gys (vók er jók),að þeim næmu sem sjá félagslegt óréttlæti í náttúrulegum fyrirbrigðum -  fjandi erfið glíma -   

    Helga Kristjánsdóttir, 20.6.2020 kl. 21:28

    9 Smámynd: Benedikt Halldórsson

    Það eru forréttindi að eiga móður og föður í æsku. 

      • Thats why the poverty rate among two-parent black families is only 7 percent.

      • Compare that with a 22 percent poverty rate among whites in single-parent homes.

      • Obviously the two-parent home is the decisive "privilege."

      no reasonable person can argue that white privilege applies to the great majority of whites, let alone to all whites. There are simply too many variables other than race that determine individual success in America. And if it were true, why would whites commit suicide at twice the rate of blacks

      Benedikt Halldórsson, 21.6.2020 kl. 05:58

      Bæta við athugasemd

      Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

      Innskráning

      Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

      Hafðu samband