Samfylkingin, 20 ára skakki ESB-turninn

Samfylkingin var stofnuð til að verða hinn turninn í íslenskum stjórnmálum og keppa við Sjálfstæðisflokk um völd og áhrif í samfélaginu.

Stóra málið sem átti að fleyta flokknum til valda og frama var ESB-aðild Íslands. Tækifærismennska en ekki ígrundun var ástæða þeirrar stefnu. Með þjóðina í taugaáfalli eftir hrun tókst að knýja fram samþykkt á alþingi 15. júlí 2009 að Ísland sækti um ESB-aðild.

Samfylkingin náði að verða turn í kosningunum 2009, fékk 30 prósent fylgi. Í kosningunum fjórum árum síðar hrapaði fylgið í 12,9 prósent.

Síðan er Samfylking skakki ESB-turninn í íslenskum stjórnmálum.

Nýtt merki flokksins er punktur með skökkum línum. Vel við hæfi.


mbl.is Samfylkingin skiptir um merki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband