Schengen er búið að vera, Áslaug - segðu Gulla það

Evrópa gefst upp á sameiginlegum landamærum, kenndum við Schengen-samstarfið, en ríkisstjórn Ísland þarf sérstakan fund til að skilja skriftina á veggnum.

Tornæmi er ríkjandi stjórnarstefna þegar kemur að málefnum Evrópusambandsins. EES-samningurinn lagðist á líknardeild 2016 þegar Bretar ákváðu Brexit. Glamúrliðið í utanríkisráðuneytinu heldur enn að EES sé á vetur setjandi og lét okkur kokgleypa 3 orkupakkanum í þágu Norðmanna.

Covid-18 farsóttin leggur Schenegn á líknardeild í ár. Öll ríki ESB loka landamærum sínum en íslensk stjórnvöld vita ekki í hvorn fótinn þau eiga að stíga.

Covid-19 gengur yfir á fáeinum mánuðum. ESB-veiran í stjórnarráðinu í Reykjavík er aftur viðloðandi andskoti í mörg herrans ár.


mbl.is Fundað um mögulega landamæralokun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Ætli símafundurinn með Pompeio standi enn hjá Gullutanríks? Aumingjans kjáninn Gulli og öll embættismannaelítan sem sleikt hefur út um undanfarin ár, í von um feita bitlinga, skattfrjáls laun og dúsur til vina og vandamanna, á kostnað samlanda sinna.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 16.3.2020 kl. 22:18

2 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Evrópusamstarfið getur aðeins leyst kostuð "vandamál" í hanastélsboðum eftir snákaolíukynnar. ESB er óstarfhæft vegna mútugreiðslna og spillingar. 

Mestallur tími þess fer í að leysa upp landamæri, veikja ríkisstjórnir heima fyrir, losa sig við öfluga leiðtoga með bein í nefinu og svo er endalaust talað um "migrant", rasisma og xenofóbiu gestgjafanna - og hamfarahlýnun. Þeir sem eru ekki sammála eru öfgahægrimenn og jafnvel nasistar. Það eru eilífar ásakanir um illt innræti þeirra sem ekki vilja hlýða skipunum æðra valds sem er einhverstaðar út í buskanum eða í Brussel. 

GLOBAL COMPACT FOR SAFE, ORDERLY AND REGULAR MIGRATION" samningurinn sem Gulli skrifaði undir ásamt ESB "samstöðu" í Maraokkó. Flott partý, glæsileg hótel og góð skemmtun. Það truflaði ekki þótt "samningurinn" væri saminn af kontrólfrík með sjúklega þráhyggju. 

Það er minnst á "migrant" í 243 skipti. 

Hingað til hefur verið hægt að kenna öðrum um allt sem á bjátar. Fólkið sem áður var með allt á hreinu er sem lamað.  

Sífellt voru sett "sameiginleg" markmið í ósátt við helming íbúa þjóðríkjanna. Það er því fullkominn sundrung, tortryggni og vantraust í Evrópu. Engin samstaða er um nokkrum skapaðan hlut. 

ESB er að leysast upp. 

Benedikt Halldórsson, 17.3.2020 kl. 05:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband