Sunnudagur, 27. október 2019
RÚV og Íslandsbanki - við erum ríkið
Viðskiptabann Íslandsbanka á karllæga fjölmiðla og RÚV með sinn rétttrúnað eiga það sameiginlegt að vera í boði ríkisvaldsins.
Án ríkisvalds væri hvorki Íslandsbanki né RÚV.
Ríkisvaldið á ekki að móta skoðanir fólks. Meginhlutverk ríkisvaldsins er að setja almennar reglur og leyfa fólki að mynda sér skoðanir á lífinu og tilverunni í friði. Aukahlutverk ríkisvaldsins er að tryggja lágmarksvelferð s.s. með heilbrigðisþjónustu og menntakerfi. Í neyðartilvikum, sbr. bankahrunið, grípur ríkið inn í og ábyrgist kerfislega mikilvæga starfsemi eins og fjármálaþjónustu.
Ríkisvald sem skiptir sér af frjálsri umræðu og beitir þvingunum í þágu tiltekinna skoðana er komið langt út fyrir eðlileg mörk. Löngu tímabært er að endurskilgreina hlutverk ríkisins í skoðanamyndun.
Segir áætlun Íslandsbanka kjánalegt ofstæki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég er að minnsta kosti hættur við að lána Íslandsbanka peninga mína.
Enn eitt bjánaveldið komið um borð í bankana. Það endar ekki vel.
Gunnar Rögnvaldsson, 27.10.2019 kl. 14:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.