Þriðjudagur, 18. júní 2019
Helga Vala pantar falsfrétt um WOW
WOW fór í gjaldþrot vegna þess að tekjur félagsins stóðu ekki undir rekstri og skuldum. Hvert mannsbarn sem les fréttir veit þetta. Flestir eldri en tvævetra vita einnig að það er hvorki hlutverk ríkisins að stofna flugfélög né keyra þau í gjaldþrot.
Helga Vala þingmaður Samfylkingar pantar falsfrétt þegar hún biður um ,,skýra mynd af því hvað þeir lögbundnu eftirlitsaðilar vissu og voru að gera í aðdraganda falls WOW air og hvort öllum reglum hafi verið fylgt."
Í WOW-gjaldþrotinu var þeirri meginreglu fylgt að einkafyrirtæki fór á hausinn þegar það átti ekki fyrir rekstri og skuldum. Allt annað er aukaatriði í málinu.
,,Skýr mynd" af falli WOW fæst ekki með opinberri skýrslu. Slík skýrsla yrði annað tveggja hvítþvottur eða ákæruskjal. Helga Vala hefur engan áhuga á sannleikanum um ris og fall WOW; hún er aðeins að fiska í gruggugu vatni í von um pólitískan ávinning.
Vilja úttekt á aðkomu að WOW | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Helga Vala fær ekki næga athygli.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.6.2019 kl. 15:07
Ágúst ágúst Ólafur er kominn aftur og nú þarf Helga Vala að gera sig sýnilega.
Ragnhildur Kolka, 18.6.2019 kl. 18:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.